Fréttablaðið - 22.05.2012, Qupperneq 17
MARGT
BREYST
„Það hefur margt
breyst á þessum
tíma, þá sérstak-
lega viðhorf til
þess að nota
heyrnartæki. Fyrir
ekki svo mörgum
árum voru for-
dómar gegn
heyrnar tækjum
miklir og jafnvel
litið niður á þá sem
þau notuðu.”
MIKILL MUNUR
Ellisif segir fólk oftast
missa heyrnina smátt og
smátt og ekki gera sér
grein fyrir því hve illa það
heyrir fyrr en það fær
heyrnartæki. MYND/STEFAN
ALLUR ER VARINN GÓÐUR
Það er gaman að fá lit en sólbruni skemmir húðina og veldur
hrukkum. Því er óæskilegt að svindla á sólarvörninni.
Gætið þess að bera hana á ber svæði áður en farið er
út í sólina og setja nýtt lag ef farið er í vatn. Að bera
á sig sólarvörn er fyrirbyggjandi aðgerð. Það er of
seint að taka hana upp þegar húðin er orðin rauð.
Ellisif Katrín Björnsdóttir út skrifaðist úr námi sem heyrnarfræðingur frá háskólanum í Gautaborg fyrir tíu
árum. Fimm árum síðar stofnaði hún
fyrir tækið Heyrn sem staðsett er í Hlíðar-
smáranum. „Það hefur margt breyst á
þessum tíma, þá sérstaklega viðhorf til
þess að nota heyrnartæki. Fyrir ekki
svo mörgum árum voru fordómar gegn
heyrnartækjum miklir og jafnvel litið
niður á þá sem þau notuðu, en sem betur
fer er staðan allt önnur í dag,“ segir
Ellisif.
Starf heyrnarfræðings er meðal
annars fólgið í því að mæla heyrn fólks,
leiðbeina við val á heyrnartækjum, stilla
virkni þeirra að heyrnarskerðingu not-
andans ásamt því að veita almenna ráð-
gjöf. Heyrnarfræðingur sinnir þó engum
læknisverkum og til að njóta þjónustu
hans þarf ekki tilvísun frá lækni. „Í Sví-
þjóð er starfið lögverndað og heyrnar-
fræðingar þeir einu sem mega úthluta
heyrnartækjum og mæla heyrn. Hér
heima er þetta ekki eins strangt en það
eykur að sjálfsögðu líkur á fagmennsku
að vera með fagmenntun.“ Ellisif segir
að áður fyrr hafi fólk verið feimið við
að láta heyrnartækin sjást en í dag sé
meira hugsað um virknina og aukin lífs-
gæði. „Þetta er eins og með símana.
Fyrst voru allir að keppast við að hafa
þá sem minnsta en í dag er meira hugsað
út í notagildi og hvað sé hægt gera með
þeim.“
Spurð hvað sé skemmtilegast við
starfið segir Ellisif það vera að fá að
fylgjast með þeirri breytingu sem verður
á lífi fólks þegar það fær heyrnartæki og
uppgötvar hvað það hefur verið að fara
á mis við. „Fólk missir oftast heyrn-
ina smátt og smátt og áttar sig ekki á
því hve illa það heyrir fyrr en það fær
heyrnartæki. Eins og það hafi verið statt
í myrkri óafvitandi en komi svo út í sól
og sumaryl. Það er gefandi að fá að vera
hluti af því.“ Hún bendir einnig á að það
sé algengur misskilningur að heyrnar-
tæki séu einungis fyrir fólk á efri árum
því heyrnarskerðing spyr ekki um aldur
þó að hún tengist honum líka. Fyrir þá
sem hafa minnsta grun um að heyrnin
sé ekki upp á sitt besta er lítið mál að
panta tíma í heyrnarmælingu hjá Ellisif.
„Þá er farið yfir heyrnarsöguna, hlust
og hljóðhimna athuguð, heyrnin mæld,
talgreining framkvæmd og þrýstimæling
og svo útskýrt fyrir viðkomandi út frá
niðurstöðum hvernig heyrnin er. Einnig
erum við með heyrnarhermi þar sem að-
standendur geta fengið að heyra hvernig
ástvinur þeirra heyrir tónlist eða tal.“
TVÖFÖLD TÍMAMÓT
HEYRN KYNNIR Ellisif Katrín Björnsdóttir fagnar tíu ára útskriftarafmæli sem
heyrnarfræðingur auk fimm ára starfsafmælis Heyrnar sem hún á og rekur.
ted PATSY - létt fylltur og glæsilegur
í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.680,-
NÝKOMINN - sumarlegur
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Boston
leður
svart, hvítt st. 35-48
rautt st. 36-42
blátt st. 36-47
Roma
Rúskinn
lj.blátt d.blátt
36-42
Verona
svart, hvítt
st. 36-41
Bari
leður
rautt, sand, blátt
st. 36-42
Monako
leður
svart, hvítt
rúskinn og
microfib.
st. 36-46
Paris
leður
svart, hvítt,
blátt
m/microfib og
rúskinnssóla
st. 36-42
Boníto ehf. • Praxis
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 • www.friendtex.is • soo.dk
Opið mán. – fös. kl. 11–17. Lokað á laugardögum
Verð: 11.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 8.600 kr.
Verð: 10.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 6.990 kr.
Stuðnin
gs
stöngin
Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig
á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA.
Yfir 500
0 noten
dur
á Ísland
i síðan
1999
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3 100 • e irberg.is
Rafskutlur
hagkvæmur ferðamáti
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00