Fréttablaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 23
| FÓLK | 3HEILSA
Eplaedik hefur verið notað í gegnum aldirnar til að bæta heilsuna. Edikið er unnið úr þroskuðum lífrænum
eplum sem eru látin gerjast. „Það inni-
heldur öll þau næringarefni sem eplið
sjálft býr yfir, en við gerjunina myndast
fleiri góð efni. Til dæmis eykst magn
ensíma og góðra gerla sem er mikilvægt
til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.
Eplaedikið er steinefnaríkt, í því er meðal
annars kalíum, kalk og natríum auk þess
sem það inniheldur fjölda snefilefna,“
segir Þórunn Stefánsdóttir, einkaþjálfari
og kennari í Baðhúsinu, líkamsræktar-
stöð fyrir konur, sem hefur góða reynslu
af Alpha Daily-drykknum frá HP heilsu en
í honum er eplaedik, hunang og oreganó.
EPLAEDIK
Blandan eplaedik og hunang er þekkt fyrir
vatnslosandi eiginleika sína og hefur áhrif
á bjúg og bólgur. Hún styrkir ónæmis kerfið
og hefur sýrustillandi áhrif, það er gerir
líkamann saltari.
„Streita, langvarandi álag og næringar-
snautt mataræði uppfullt af skyndibitum
og gosdrykkjum hefur áhrif á sýrustig lík-
amans. Því súrari sem líkaminn er því við-
kvæmari er hann fyrir sýkingum. Ónæmis-
kerfið verður veikara og ójafnvægi kemst á
þarmaflóruna.
Fjölbreytt og hollt mataræði úr öllum
fæðuflokkum og regluleg hreyfing er leiðin
til betra lífs hvar sem við erum stödd í til-
verunni. Regluleg neysla eplaediks er ein
leið til að bæta og styrkja líkama okkar svo
við megum enn frekar njóta þess sem lífið
hefur upp á að bjóða,“ segir Þórunn.
Eplaedikið í Alpha Daily kemur frá Þýska-
landi og er ógerilsneytt og óeimað. Það
virkjar hreinsikerfi líkamans, það er nýrun,
lifrina og blóðrásarkerfið. „Á mannamáli
þýðir það að það er vatnslosandi, léttir
bjúg og bólgur, styrkir meltingarflóruna og
jafnar sýrustig líkamans.“
HUNANG
Hunangið í blöndunni er lífrænt ræktað
hráhunang frá Mið- og Suður-Ameríku.
„Hunang er þekkt fyrir græðandi eiginleika
sína, til dæmis við hósta og ertingu í hálsi.
Það þykir líka róandi að taka inn matskeið af
hunangi fyrir svefninn til að sofa betur. Hun-
ang er afar steinefnaríkt og hefur góð áhrif á
meltingu og ónæmiskerfi,“ segir Þórunn.
OREGANO
„Fyrir utan að vera dásamlegt krydd á
góða steik eða grillað grænmeti er oregano
þekkt fyrir góð áhrif á gerlaflóru þarmanna
og vinnur þannig gegn ýmsum örverum og
sýkingum,“ segir Þórunn. Alpha Daily-epla-
ediksblandan er tilbúin til drykkjar og
algengt er að fólk drekki eitt glas af
drykknum á morgnana og eitt á kvöldin.
„Mörgum hentar enn fremur að drekka
eitt glas fyrir hverja máltíð til að hjálpa
lík amanum að búa til saltsýru í maga-
sýrunni til að auðvelda meltingu. Margir
af skjól stæðingum mínum hafa látið vel af
virkni Alpha Daily,“ segir Þórunn.
Drykkurinn er í glerflöskum sem má
skila til HP Heilsu, Smiðjuvegi 38 í Kópa-
vogi, og fá áfyllingu. Ef skilað er inn sex
flöskum fæst áfylling á heildsöluverði.
EPLI Á DAG KEMUR
HEILSUNNI Í LAG
HP HEILSA KYNNIR HP Heilsa er ungt og framsækið fyrirtæki sem hefur það að markmiði að
koma með nýjungar byggðar á fornri hollustuhefð. Þar er lagður mikill metnaður í hreinleika og
náttúrulegan uppruna vörunnar. Alpha Daily, sem er unnið úr eplaediki, er flaggskip fyrirtækisins.
HOLLUSTA
„Fjölbreytt og hollt mataræði úr öllum fæðuflokkum og reglu-
leg hreyfing er leiðin til betra lífs hvar sem við erum stödd í
tilverunni. Regluleg neysla eplaediks er ein leið til að bæta og
styrkja líkamann svo við megum enn frekar njóta þess sem
lífið hefur upp á að bjóða,“ segir Þórunn.
MYND/STEFÁN
LÍFRÆNT
Eplaedikið í Alpha
Daily kemur frá
Þýskalandi og er
ógerilsneytt og
óeimað. Það virkjar
hreinsikerfi líkamans.