Fréttablaðið - 22.05.2012, Síða 34
22. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
ÍSLAND mætir Andorra í vináttulandsleik ytra í nóvember næstkomandi. Liðin mættust síðast í ágúst
árið 2010 og með þessum leik er verið að efna samkomulag sem var gert þá. Næstu leikir Íslands verða
vináttuleikir gegn Frökkum á sunnudaginn og svo Svíþjóð í næstu viku.
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
1-0 Gavin Morrison (1.), 1-1 Atli Jóhannsson
(8.), 1-2 Atli Jóhannsson (58.), 1-3 Kennie
Chopart (63.), 1-4 Mads Laudrup (69.)
Skot (á mark): 8-13 (3-8)
Varin skot: Óskar 3 - Ingvar 1
GRINDAVÍK (4-5-1): Óskar Pétursson 4 - Loic
Mbang Ondo 4, Ólafur Örn Bjarnason 4, Mikael
Edlund 3, Ray Anthony Jónsson 3, Óli Baldur
Bjarnason 3 - Gavin Morrison 5 (70. Alex Freyr
Hilmarsson 5 ), Scott McKenna Ramsay 5 (52. Páll
Guðmundsson 5), Marko Valdimar Stefánsson
4, Pape Mamadou Faye 5 (83. Jordan Edridge -)
-Tomi Ameobi 4.
STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 7 - Jóhann
Laxdal 7,Baldvin Sturluson 6 (73. Snorri Páll
Blöndal 5) 5, Alexander Scholz 7,Hörður Árnason
6 - Daníel Laxdal 7, Atli Jóhannsson 8, Halldór
Orri Björnsson 7 - Kennie Knak Chopart 8* (83.
Bjarki Páll Eysteinsson -),Mads Laudrup 7 (79.
Gunnar Örn Jónsson -), Garðar Jóhannsson 6
Grindavíkurvöllur, áhorf.: 775 Þorvaldur Árnas. (8)
1-4
Kolbeinn Tumi Daðason íþróttafréttamaður
„Þegar leikir fara í vítaspyrnukeppni er um happ-
drætti að ræða. Heppnin var einfaldlega með
okkur í kvöld,“ sagði knattspyrnustjórinn Roberto
Di Matteo að loknum dramatískum sigri Chelsea
á Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu á laugardag.
Petr Cech, markvörður Chelsea, fór í rétt horn
í öllum spyrnum Bæjara í leiknum. Heppni?
Prófaðu að kasta upp 50 krónu peningi og athuga
hvað það tekur þig langan tíma að fá upp krabba
sex sinnum í röð. Kannski er best að þú hellir upp
á kaffi áður en þú byrjar. Tékkneski markvörðurinn
hafði horft á allar vítaspyrnur þýska liðsins frá
árinu 2007 í aðdraganda leiksins og var einfald-
lega klár í slaginn þegar kom að keppninni.
Að tapa úrslitaleik í stórmóti í vítaspyrnukeppni
er súr niðurstaða fyrir tapliðið en betri lausn
er ófundin. Sú var tíðin að hlutkesti var varpað
um það hvort liðið færi með sigur af hólmi eftir
framlengingu. Ég þekki engan sem
telur það sanngjarnari lausn
en vítaspyrnukeppni. Þar
ræður heppni för en í víta-
spyrnukeppni reynir, líkt og í
leiknum sjálfum, á knatt-
spyrnuhæfileika leikmanna
undir pressu.
Jupp Heynckes, stjóra
Bayern München, brá í
brún þegar hann hóaði
mannskap sínum saman
fyrir vítaspyrnukeppnina.
Leikmenn hans þráuðust
við að fara á punktinn.
Þýska stálið reyndist
stökkara en menn höfðu
reiknað með. Ummerki um það
sáust raunar í framleng ingunni
þegar Bastian Schweinsteiger, holdgervingur
hins sjálfsörugga Þjóðverja, horfði undan
er samherji hans tók vítaspyrnu. Það
kom vafalítið fleirum en mér ekkert
á óvart þegar víti Schweinsteiger í
keppninni var varið.
Yngri leikmenn skora frekar í
vítaspyrnukeppnum og óþreyttari
varamenn einnig. Fyrstu spyrnur
keppninnar rata frekar í
netið en þær síðari eða
þær sem teknar eru
í bráðabana. Allt er
þetta staðfesting
á því að víta-
spyrnukeppnir snúist ekki um
heppni. Sýnum knattspyrnunni
meiri virðingu en svo að líta á víta-
spyrnukeppnir sem algjört lottó.
Vítaspyrnukeppni – algjör heppni?
0-1 Viðar Örn Kjartansson, víti (50.), 0-2 Joe
Tillen (88.)
Skot (á mark): 8-8 (3-3)
Varin skot: Ögmundur 2 - Duracak 3.
FRAM (4-3-3): Ögmundur Kristinsson 5 - Daði
Guðmundsson 3 (56., Jón Gunnar Eysteinsson
4 ) Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 5, Alan Lowing 5,
Sam Tillen 4 - Kristinn Ingi Halldórsson 5 (51., Orri
Gunnarsson 4) Halldór Hermann Jónsson 4, Al-
marr Ormarsson 3 - Samuel Hewson 4, Hólmbert
Aron Friðjónsson 5, Steven Lennon 4.
SELFOSS (4-3-3): Ismet Duracak 7 - Ivar Skjerve
6, Stefán Ragnar Guðlaugsson 7, Andri Freyr
Björnsson 7, Jon Andre Royrane 6 - Babacar Sarr
7, Endre Ove Brenne 6, Robert Sandnes 7 (90.,
Ingólfur Þórarinsson -) -J ón Daði Böðvarsson 6,
Ólafur Karl Finsen 6, (66., Joe Tillen 7) Viðar Örn
Kjartansson 8* (82. ,Moustapha Cisse -)
Laugardalsvöllur. Kristinn Jakobsson (8)
0-2
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir
náði ekki sínu besta fram þegar
hún keppti í 200 m baksundi á EM
í sundi sem hófst í gær.
Þetta er sterkasta grein
Eyglóar en hún tryggði sér þátt-
tökurétt á Ólympíuleikunum með
glæsilegu Íslandsmeti í síðasta
mánuði. Er hún hingað til eini
íslenski sundmaðurinn með
tryggðan farseðil til Lundúna í
sumar.
Eygló komst örugglega í undan-
úrslit í greininni í gær eftir
að hafa synt á 2:13,81 mínútu í
undanrásunum. Það var engu að
síður rúmum þremur sekúndum
frá Íslandsmeti hennar.
Í undanúrslitunum synti hún
á aðeins lakari tíma, 2:13,92, og
endaði í ellefta sæti. Íslandsmet
hennar hefði þó dugað sem fjórði
besti tími inn í lokaúrslitin.
Sveit Íslands í 4x100 m skrið-
sundi kvenna tvíbætti Íslands-
metið í greininni í gær. Fyrst í
undanrásum og svo í úrslitum,
þar sem sveitin hafnaði í átt-
unda sæti. Sveitin synti á 3:47,39
mínútum en hana skipuðu Ragn-
heiður Ragnarsdóttir, Eva Hann-
esdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir
og Sarah Blake Bateman.
Fleiri Íslendingar kepptu í gær
og má finna upplýsingar um gengi
þeirra á íþróttavef Vísis. - esá
EM í sundi hófst í gær:
Eygló nokkuð
frá sínu besta
EYGLÓ Náði ekki sínu besta fram á EM í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Stjarnan komst upp í
þriðja sæti Pepsi-deildar karla í
gær og nýliðar Selfoss stukku upp
í fimmta sætið með sínum öðrum
sigri í fjórum leikjum. Grinda-
vík er á botninum með eitt stig og
Fram í níunda sæti með þrjú.
Bjarni Jóhannsson vann þjálf-
arauppgjörið við Guðjón Þórðar-
son og varð um leið á undan honum
að vinna 100 leiki í efstu deild en
báðir voru þeir með 99 sigurleiki
fyrir gærkvöldið.
Það bjuggust flestir við því að
það yrði erfitt að skora hjá Grinda-
vík fyrir sumarið en liðið er búið
að fá á sig 13 mörk í fyrstu fjórum
leikjunum og múrinn mikli er
hriplekur.
„Þetta var mjög góður leikur hjá
okkur. Klassabarátta frá upphafi
til enda. Við byrjuðum skelfilega
og fengum á okkur skítamark en
mér fannst við vera betri aðilinn
allan leikinn,“ sagði Stjörnu-
maðurinn Atli Jóhannsson kátur í
leikslok. „Ég fer ekkert ofan af því
að við vorum betri aðilinn allan
leikinn, þó þeir hafi fengið eitt
færi þar sem við björgum á línu.
Að öðru leyti ógnuðu þeir okkur
ekkert. Mér fannst við aftur á móti
alltaf vera líklegir.“
Selfyssingar gerðu góða ferð í
Laugardalinn. Þeir lögðu þá arfa-
slaka Framara.
Fyrri hálfleikurinn var afskap-
lega tíðindalítill. Eina færi hans
fékk Viðar Örn en hann klúðraði.
Í síðari hálfleik mættu gestirnir
ákveðnari til leiks og uppskáru
vítaspyrnu á 50. mínútu. Viðar
Örn var felldur og skoraði sjálfur
úr spyrnunni.
Framarar sóttu án afláts eftir
markið en sköpuðu sér engin
teljandi marktækifæri. Gestirn-
ir gerðu svo út um leikinn á 88.
mínútu þegar Joe Tillen spólaði sig
í gegnum vörn Framara og tryggði
gestunum 3 stig.
„Við vitum að við getum spilað
góðan fótbolta og mér fannst við
gera það á köflum í þessum leik.
Mér fannst við stjórna leiknum
og er himinlifandi með 3 stig hér
í kvöld,“ sagði Selfyssingurinn
Viðar Örn. - hþg, kós
TVEIR SÆTIR ÚTISIGRAR
Það gengur hvorki né rekur hjá Fram og Grindavík sem máttu sætta sig við töp
á heimavelli í gær. Vormeistarar Fram hafa valdið miklum vonbrigðum í upp-
hafi móts og varnarmúr Guðjóns Þórðarsonar í Grindavík er hriplekur.
PÚÐURSKOT Steven Lennon hefur ekki staðið undir væntingum í upphafi móts og
var aftur slakur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL