Fréttablaðið - 05.06.2012, Síða 10
5. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR10
Tíu þúsund áskriftir bættust
við íslenskan farsímamark-
að á síðasta ári. Hlutdeild
Símans fór í fyrsta sinn
niður fyrir 40 prósent og
Vodafone fór niður fyrir 30
prósent. Nova og Tal bæta
við sig. Samkeppnin jafnari
frá næstu áramótum.
Jafnvægi er að myndast á farsíma-
markaði. Síminn og Vodafone tapa
viðskiptavinum á milli ára en Nova
og Tal bæta við sig. Þetta kemur
fram í nýrri tölfræðiskýrslu Póst-
og fjarskipta stofnunar (PFS) um
íslenskan fjarskiptamarkað á
árinu 2011. Markaðurinn saman-
stendur af þeim sem eru í tal-
þjónustu og þeim sem eru með 3G-
nettengla (punga).
Markaðshlutdeild Símans fór
í fyrsta sinn undir 40 prósent
á síðasta ári. Alls voru 153.191
manns með slíka þjónustu hjá
fyrir tækinu um síðustu áramót.
Í árslok 2007 var Síminn með
um 60 prósenta markaðshlut-
deild og drottnandi á markaðnum.
Síðan hefur viðskiptavinum
fyrir tækisins fækkað um yfir 30
þúsund auk þess sem Símanum
hefur ekki tekist að ná inn þeim 75
þúsund viðskiptavinum sem hafa
bæst við síðan þá. Staða Símans
virðist þó vera að ná nokkru
jafnvægi. Viðskiptavinum hans
fækkaði einungis um rúmlega
fimm þúsund frá lokum árs 2009
og fram að síðustu áramótum.
Samdrátturinn hefur eðlilega
haft áhrif á umfang starfsemi
Símans og móðurfélags hans
Skipta, sem tapaði 10,6 milljörðum
króna á síðasta ári. Samhliða
honum hefur verið ráðist í miklar
hagræðingaraðgerðir innan sam-
stæðunnar og í vikunni var 17
starfsmönnum sagt upp störfum.
Eigandi Skipta er Klakki, sem
áður hét Exista.
Hlutdeild Vodafone á farsíma-
markaði er komin rétt undir 30
prósent og hefur aldrei verið
lægri. Fyrirtækið hefur samt
sem áður verið að bæta við sig við-
skiptavinum á undanförnum árum
og hefur þeim fjölgað um rúmlega
sex þúsund frá árslokum 2009.
Viðskiptavinunum fækkaði þó um
þrjú þúsund í fyrra auk þess sem
fjölgun áskrifta á markaðnum
skilaði Vodafone ekki auknum við-
skiptum.
Ætla á markað í haust
Stjórn Vodafone ákvað í maí að
hefja undirbúning að skráningu
á markað. Stefnt er að því að hún
muni eiga sér stað í september eða
október. Vodafone er sem stendur
að mestu í eigu Framtakssjóðs
Íslands (FSÍ). Félagið hagnaðist
um 227 milljónir króna í fyrra, en
það gekk í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu árið 2009.
Vodafone hefur samt sem áður
þurft að grípa til hagræðingarað-
gerða. Í janúar var til að mynda 28
manns sagt upp störfum.
Nova hélt áfram að auka við
hlutdeild sína á síðasta ári. Við-
skiptavinir félagsins voru 99.636
um síðustu áramót og sá 100 þús-
undasti skilaði sér í hús í febrúar.
Fjöldi þeirra hefur aukist um 36
þúsund á tveimur árum, sem er
langmesta aukning allra farsíma-
fyrirtækja. Markaðshlutdeild
Nova er nú 25,8 prósent. Fyrir-
tækið skilaði 374 milljóna króna
hagnaði í fyrra og er það í fyrsta
sinn sem Nova skilar hagnaði frá
því það hóf starfsemi í desember
2007.
Tal lagaði stöðu sína á mark-
aðinum lítillega á milli ára. Við-
skiptavinir fyrirtækisins eru nú
19.111 og fjölgaði um rúmlega tvö
þúsund í fyrra. Markaðshlutdeild
Tals er 5,0 prósent. Tal tapaði um
900 milljónum króna á árunum
2008 til 2010. Fyrirtækið hefur
ekki skilað inn ársreikningi fyrir
árið 2011. Viktor Ólason, forstjóri
Tals, sagði í samtali við Frétta-
blaðið í febrúar að fyrirtækið
hefði skilað hagnaði á því ári. Eig-
endur Tals eru Auður 1 fjárfest-
ingasjóður og Kjartan Örn Ólafs-
son.
Fimmta fyrirtækið á íslenska
farsímamarkaðinum er Alterna,
sem hóf starfsemi sína vorið 2010.
Viðskiptavinum þess fækkaði
um tvö þúsund í fyrra og voru
einungis 1.091 um síðustu áramót.
Eigandi Alterna er bandaríska
fyrirtækið World Cell.
Farsímamarkaður að ná jafnvægi
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) tilkynnti í janúar síðastliðnum um þá
ákvörðun sína að lúkningargjöld íslenskra símafyrirtækja, sem greidd eru
þegar viðskiptavinir eins félags hringja í annað, eigi að vera í mesta lagi
4,0 krónur frá og með 1. janúar 2013. Ákvörðunin á við um öll símafyrir-
tækin fimm. Á undanförnum árum hafa Síminn og Vodafone þurft að
rukka lægri lúkningarverð en samkeppnisaðilar þeirra.
Í tilkynningu frá PFS vegna ákvörðunarinnar sagði að breytingarnar
„leiða til þess að ein meginforsendan fyrir mismunandi verði á farsíma-
þjónustu, þegar hringt er í annað farsímafélag, verður ekki lengur til
staðar“. Stofnunin telur því að lækkun lúkningarverðs muni bæta hag
neytenda á farsímamarkaði til muna.
Lúkningargjöld samræmd á næsta ári
Síminn
39,7%
Vodafone
29,3%
Nova
25,8%
Tal
5,0%
Alterna
0,3%
Markaðshlutdeild fjarskiptafyrirtækja
HEIMILD: PÓST- OG FJARSKIPTASTOFNUN
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
„Himneskir lífrænir gosdrykkir úr fyrsta okks
hráefni og allir í fjölskyldunni nna eitthvað
við sitt hæ.“
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus · www.lífrænt.is
Láttu hjartað ráða
FRÉTTASKÝRING: Staðan á fjarskiptamarkaði