Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 28

Fréttablaðið - 09.06.2012, Síða 28
9. júní 2012 LAUGARDAGUR28 Í nýársávarpi sínu 1968 staðfesti Ásgeir Ásgeirsson forseti að hann hygðist láta gott heita um sumarið eftir 16 ár á Bessastöðum. Um leið var almannarómur á þá leið að Gunnar Thoroddsen, tengdasonur hans, tæki væntanlega við embættinu. Sumarið 1965 hafði Gunnar gefið upp ráðherradóm, hætt á Alþingi og látið af varaformennsku í Sjálf- stæðisflokknum. Í staðinn gerðist hann sendi- herra í Kaupmannahöfn og undirbjó framboð á laun. Snemma árs 1968 virtist hann eiga sigurinn vísan; í óformlegum skoðanakönn- unum bar hann höfuð og herðar yfir aðra sem nefndir voru til sögunnar. Forystumenn í Alþýðubandalagi, Alþýðu- flokki og Framsóknarflokki vildu hins vegar allt til vinna svo að Gunnar Thoroddsen kæmist ekki til æðstu metorða á Íslandi. Til margra var leitað en hvorki gekk né rak. Um síðir mændu menn helst vonaraugum til Krist- jáns Eldjárns þjóðminjavarðar. Hann þótti vandaður maður og var vinsæll, ekki síst fyrir sjónvarpsþætti um forna muni og minjar. En Kristján var tregur til. Snemma í mars 1968 leit enn út fyrir að enginn yrði í framboði til forseta um sumarið nema Gunnar Thorodd- sen. Nánast á síðustu stundu lét Kristján Eld- járn þó undan. Þá hafði honum verið færður heim sanninn um að sannkölluð breiðfylking áhrifamanna úr öllum flokkum styddi fram- boð hans. Munaði þar ekki síst um atbeina Péturs Benediktssonar, bróður Bjarna for- sætisráðherra. Pétur hafði ímugust á Gunnari Thoroddsen. „Kiðfættur forseti á sauðskinnsskóm“ Kosningabaráttan hófst. Skrifstofur voru opn- aðar, fundir haldnir, blöð gefin út. Gunnar og liðsmenn hans sögðu að forseti Íslands ætti að vera „sameiningartákn þjóðarinnar“ sem örvaði til samheldni en veitti jafnframt festu og forystu á örlagastundum. Þannig hefði for- setinn „raunverulegt vald“ við myndun ríkis- stjórna og staðfestingu laga og því þyrfti hann að búa yfir langri reynslu úr heimi stjórnmál- anna. Völu Ásgeirsdóttur Thoroddsen var einnig hampað. Saman myndu þau Gunnar vera þjóðarprýði á Bessastöðum og glæstir fulltrúar Íslendinga í útlöndum, rétt eins og Ásgeir Ásgeirsson og frú Dóra Þórhallsdóttir hefðu borið hróður landsins víða. Þar að auki fékk Gunnar Morgunblaðið til að snúast á sveif með sér og flokksforystan lét þau leynilegu boð út ganga að sjálfstæðismenn skyldu kjósa Gunnar. Bjarni Benediktsson for- sætisráðherra og aðrir ráðherrar Viðreisnar- stjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks lýstu opinberlega yfir stuðningi við hann. Um leið beindi stuðningsfólk Gunnars spjótum sínum að Kristjáni Eldjárn. Hann væri í raun rammpólitískur vinstrimaður sem hefði verið í framboði fyrir Framsóknarflokk- inn, barist gegn varnarsamstarfi við Banda- ríkin og verið á móti sjónvarpsútsendingum varnarliðsins. Sín á milli sögðu hörðustu fylgj- endur Gunnars sömuleiðis að fornleifafræð- ingurinn Kristján vissi ekkert um eðli forseta- embættisins og einn þeirra spaugaði með þá fásinnu að Íslendingar kysu yfir sig „kiðfætt- an forseta á sauðskinnsskóm“. Loks væri Hall- dóra Eldjárn „púkó“ og lítt hæf til að sinna húsfreyjuhlutverki á þeim virðingarstað. Þannig var slúðrið. Því fundu Gunnar og Vala einnig fyrir, líklega í ríkari mæli en Eldjárnshjónin. Fyrr á árum hafði Gunnar stundum neytt áfengis meir en góðu hófi gegndi. Nú var það rifjað upp, ýkt og lagt á versta veg. Saman voru þau sögð gefin fyrir prjál sem líka var ósanngjarnt en að því var ekki spurt. Þetta hafði áhrif á kjósendur þó að það skipti ekki sköpum. Liðsmenn Kristjáns áttu einfaldlega auðvelt með að lýsa kostum hans þannig að fólkið hreifst með. Hinum pólitíska aðdraganda framboðsins var haldið leyndum eftir föngum. Sagt var að fram- bjóðandinn sjálfur væri löngu hættur öllum afskiptum af stjórnmálum og myndi halda sig utan hins pólitíska sviðs. Kristján Eldjárn væri öðrum fróðari um sögu Íslands og menn- ingu, maður alþýðunnar rétt eins og hin lát- lausa en virðulega eiginkona hans. Fólkið velur forsetann Við upphaf kosningabaráttunnar hafði Gunnar Thoroddsen sagt um sjálfan sig að „fólkið velur forsetann“, kjörorðið sem reyndist Ásgeiri Ásgeirssyni svo vel í for- setakjörinu 1952, ætti ekki við í þetta sinn. Það var öðru nær. Um leið og tilkynnt var um framboð Kristjáns Eldjárns var sem ferskur andblær færi um samfélagið. Fólki fannst það hafa val um eitthvað annað en fulltrúa valda- kerfisins og það vildi ekki vísi að erfðaveldi á Bessastöðum. Í raun hefði Gunnar ekki getað valið verri stund til forsetaframboðs. „68-kyn- slóðin“ var í blóma og kunni ekkert endilega að meta öll hans afrek á opinberum vettvangi. Gunnar Thoroddsen var bendlaður við óvin- sæla ríkisstjórn sem glímdi við erfiðleika í efnahagsmálum og galt þess auðvitað. Þar að auki höfðu margir eldri sjálfstæðismenn fráleitt fyrirgefið „svikin“ frá 1952 þegar Gunnar studdi Ásgeir tengdaföður sinn gegn óskum annarra í forystusveitinni. Síðast en ekki síst höfnuðu landsmenn öllum hræðsluáróðri. Jafnvel hörðustu hægrimenn létu sér í léttu rúmi liggja að Kristján hafði á yngri árum verið á móti því að erlendur her væri í landinu. Forseti ætti að standa utan stjórnmálabaráttunnar og þá væri best að hann hefði ekki verið í henni miðri árum saman. Kristján Eldjárn yrði „ópólitískur“. Íslendingar vildu reynsluleysið frekar en reynsluna. Himinn og jörð myndu ekki farast þótt fornleifafræðingurinn yrði valinn fram yfir ambassadorinn og þingmanninn, borgar- stjórann og ráðherrann fyrrverandi. Gunnar hafði búið sig of vel og lengi undir að verða forseti. Hann langaði of mikið til að verða for- seti. Þannig þjóðhöfðingja vildu Íslendingar ekki. Forsetinn heimakæri Kristján Eldjárn var kjörinn forseti með yfirburðum, hlaut tæpa tvo þriðju atkvæða. Fyrstu árin á forsetastóli urðu honum um sumt erfið. Eitthvað voru þau Halldóra áfram rægð, þau þóttu ekki nógu „höfðingleg“ að sumra mati. Tíðarandinn var líka annar, starfsskyldurnar stopulli en seinna varð. Kristján þurfti að fóta sig á nýjum stað og marka sér hlutverk. Forsetinn sat þó ekki með hendur í skauti. Senn fjölgaði fundum, móttökum og veislum og forsetahjónin fóru í viðhafnarferðir innan- lands. Ræður hans og ávörp snerust oftar en ekki um sögu lands og þjóðar. Vel komst hann að orði og virtist ná að snerta streng í hjörtum margra Íslendinga jafnvel þótt hann þéraði þá á hátíðarstundum. Á hinn bóginn gátu opinberar heimsóknir Kristjáns til útlanda vart verið færri. Hann hélt til hinna norrænu ríkjanna en lét þar við sitja fyrir utan eina Belgíuför. Forseti hefði gjarnan mátt fara oftar utan því þannig var hægt að vekja athygli á kostum Íslands og málstað þess, til dæmis í þorskastríðunum sem geisuðu í embættistíð Kristjáns. Í þessu efni nálgaðist hógværðin feimni eða jafnvel uppburðarleysi. Fæti skal ekki brugðið fyrir forsætisráðherra … Kristján Eldjárn komst snemma að því að þótt hann ætlaði sér að vera „ópólitískur“ í embætti þurfti hann að taka stórpólitískar ákvarðanir. Undan því vékst hann ekki en kappkostaði að sýna hlutlægni og gera öllum stjórnmálaflokkum jafnhátt undir höfði. Það var nýmæli en hiklaust í anda þess sem til var ætlast í stjórnskipun landsins. Sumarið 1970 reyndi fyrst af einhverri alvöru á pólitíska afstöðu forseta. Hafnaði hann þá þeirri málaleitan að staðfesta ekki lög út af umdeildum framkvæmdum við Lax- árvirkjun í Mývatnssveit. Ekki fór sú beiðni hátt en styrinn varð heldur betur meiri vorið 1974. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra leitaði þá samþykkis forseta fyrir því að þing yrði rofið, jafnvel þótt nær öruggt sýndist að meirihluti alþingismanna væri því andsnúinn eins og málum var komið. Kristján þáði ráð vina og embættismanna og rifjaði upp for- dæmið frá 1931 þegar meirihluti þings var augljóslega á móti því að til þingrofs kæmi. Þá hafði forsætisráðherrann sitt fram með atbeina þjóðhöfðingjans, Kristjáns X. í Kaup- mannahöfn. Ólafur Jóhannesson hafði verið prófessor í stjórnskipunarrétti og kvaðst kunna sitt fag; forseti væri „skyldugur“ til að verða við „til- mælum“ forsætisráðherra. Kristján Eldjárn taldi því rétt að rjúfa þing enda gæti forseti „ekki með nokkru móti brugðið fæti fyrir for- sætisráðherra nema með því að steypa sér og embætti sínu í ógurlegan háska og trufla stór- kostlega allan gang stjórnmálanna“. Þar að auki hafði Kristján fullvissað sig um að nær vonlaust var að mynda nýja ríkisstjórn sem nyti meirihluta þess þings sem sæti. Skynsam- legast væri því að láta gott heita og boða til kosninga þar sem nýr þjóðarvilji kæmi fram. Aftur á móti réð þingrofið 1974 miklu um það að stjórnarskrá var síðar breytt á þann veg að nú er ómögulegt að rjúfa þing þannig að þing- heimur missi samstundis umboð sitt eins og þá var gert. Hlutlægni og sanngirni Stjórnarmyndanir að loknum alþingiskosn- ingum 1971 og 1974 gengu sæmilega fyrir sig en sumarið 1978 syrti í álinn. Fram- sóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur guldu þá afhroð í kosningum en Alþýðubanda- lag og Alþýðuflokkur unnu stórsigra. Um leið var ljóst að illa gæti gengið að mynda meirihlutastjórn. Fyrst fékk Benedikt Grön- dal, formaður Alþýðuflokksins, að spreyta sig og síðan Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Ekki gekk það og þá lá beint fyrir að Lúðvík Jósepsson, for maður Alþýðubandalagsins, fengi umboð forseta til stjórnarmyndunar. „Ópólitíski“ for setinn tók að sjálfsögðu þá hlutlægu ákvörðun en uppskar hneykslun Morgunblaðsins og Sjálf- stæðisflokksins. Sósíalistar áttu áfram að vera utangarðs við stjórnarmyndanir, í anda Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirs- sonar. Áður en yfir lauk höfðu formenn allra flokkanna haft umboð forseta til stjórnar- myndunar. Um síðir tókst að mynda ríkis- stjórn en hún hrökklaðist frá völdum haustið 1979. Kristján Eldjárn sýndi þá á ný að þótt hann væri „ópólitískur“ gripi hann til sinna ráða ef með þyrfti. Forseti lét í það skína að yrði ekki mynduð ný stjórn hið snarasta skipaði hann eigin utanþingsstjórn. Þetta vopn virkaði og aftur snemma árs 1980 þegar formönnum stjórnmálaflokkanna fjögurra hafði öllum mistekist að mynda stjórn. Þá vofði utanþingsstjórn yfir en Gunnar Thoroddsen varð fyrri til að mynda sína umdeildu ríkisstjórn. Hefði Kristján Eldjárn mátt vera enn íhlutunarsamari? Hefðu stjórnarmyndanir þá gengið betur? Þess spurði hann sjálfur en svaraði réttilega að það stoðaði lítt að gera forsetann að blóraböggli. Vandinn lá á vett- vangi stjórnmálanna. Þar skipti ekki síst máli að tveir flokksforingjanna, Benedikt Gröndal og Geir Hallgrímsson, voru of veik- burða í flokkum sínum og skorti jafnframt eindreginn vilja til valda. Enginn er ómissandi Á nýársdag 1980 tilkynnti Kristján Eld- járn að hann léti af embætti um sumarið. Stjórnar kreppa ríkti og vinir forseta höfðu skorað á hann að sitja áfram út af þeirri óvissu sem virtist fram undan. Kristján hvikaði hins vegar hvergi, enda væru tólf ár æskilegur tími á Bessastöðum: „Og enginn hefur gott af því að komast á það stig að fara að ímynda sér að hann sé ómissandi.“ Kristján hvarf á braut en lést fyrir aldur fram árið 1982. Fyrstur forseta kostaði hann kapps að láta ekki eigin skoðanir hafa áhrif á gang stjórnmálabaráttunnar. Hann sinnti embættinu eins og til er ætlast í stjórn skipun landsins og uppskar eftir því. Kristján Eldjárn má örugglega teljast farsælasti forseti lýðveldisins. Farsælasti forsetinn Kristjáni Eldjárn tókst hvort tveggja, að láta til sín taka á hinu pólitíska sviði þegar nauðsyn krafði en vera um leið sameiningartákn sem langflestir kunnu að meta. Guðni Th. Jóhannesson fjallar um farsælasta forseta lýðveldisins. 1. ÁGÚST 1980 Fráfarandi forseti Kristján Eldjárn og Halldóra Eldjárn fyrir utan Alþingishúsið daginn sem Kristján lét af embætti forseta. Myndin birtist í Vísi og var myndatextinn sem birtist með henni svohljóðandi: „Kristján Eldjárn hefur látið af störfum eftir tólf ár á forsetastóli. Mannfjöldinn hyllti hann og frú Halldóru að lokinni embættistöku Vigdísar og hann tók eftirminnilega undir.” MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Kristján Eldjárn komst snemma að því að þótt hann ætlaði sér að vera „ópólitískur“ í embætti þurfti hann að taka stórpólitískar ákvarðanir. Undan því vékst hann ekki en kappkostaði að sýna hlutlægni og gera öllum stjórnmálaflokkum jafnhátt undir höfði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.