Fréttablaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 2
9. júní 2012 LAUGARDAGUR2
SPURNING DAGSINS
Opið: mán. – föst. 9-19 • laug. 10-18 • sun. 13-18
Sími 567 1213 • www.splass.is
fylgstu með okkur á Facebook
Fyrir ofan Smáralind
Kynningartilboð
Handþvoum bílinn að utan
á 10 mínútum.
1.500 kr*
- engin venjuleg bílaþvottastöð
G
ullsm
ári
Smáralind
S
m
ár
ah
va
m
m
sv
eg
ur
Hagasmári
Fífuhvamm
svegur
*gildir til kl. 18 sunnudaginn 10. júní
Davíð Óskar, gerir Gordon
Green myndina á annan veg?
„Já, hann er að því.“
Davíð Óskar Jónsson er einn framleið-
enda kvikmyndarinnar Á annan veg sem
nýverið var endurgerð í Hollywood.
SÝRLAND, AP „Það er verið að varpa fimm til tíu
sprengjum á Khaldiyeh-hverfið á hverri mínútu,“
sögðu mannréttindasamtökin Syrian Observatory
for Human Rights, sem eru með höfuðstöðvar í Bret-
landi.
Stjórnarherinn hóf árásir á Khaldiyeh-hverfið í
borginni Homs í gær, en þar hafa uppreisnarmenn
verið ráðandi lengi.
„Þetta eru verstu árásirnar hér síðan byltingin
hófst,“ sagði Tarek Badrakhan, einn uppreisnar-
manna í hverfinu í símtali á Skype. Hefur þó Homs
orðið einna verst úti í árásum stjórnarhersins á
almenna borgara frá upphafi átakanna í Sýrlandi
snemma á síðasta ári.
Fyrr í vikunni gerði stjórnarherinn sams konar
árásir á þorpið Qubair og í beinu framhaldi héldu
vígasveitir inn í þorpið og myrtu þar um 80 manns,
flest konur og börn.
Friðargæslumönnum á vegum Sameinuðu þjóðanna
og Arababandalagsins tókst í gær að komast inn í
Qubair, en þeim hafði áður verið meinaður aðgangur
að þorpinu.
Átökin í Sýrlandi hafa kostað meira en þrettán
þúsund manns lífið. Talið er að um ein milljón
manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda. Nokkur
hundruð þúsund manns hafa hrakist að heiman vegna
átakanna og nærri 100 þúsund flóttamenn eru komnir
til Tyrklands, Líbanons og Jórdaníu, auk fleiri landa.
- gb
Friðargæslumenn á vegum SÞ komust inn í þorpið Quabir í Sýrlandi:
Fóru á vettvang fjöldamorðanna
FIMM TIL TÍU SPRENGJUR Á MÍNÚTU Árásirnar í gær voru
sagðar þær hörðustu frá upphafi átakanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Áhöfnin á Hrafn-
reyði KÓ-100, skipi Hrafnreyðar
ehf., landaði sínu tíunda og ellefta
dýri í Hafnarfjarðarhöfn í gær
eftir um tveggja vikna veiðihlé.
Fullur kraftur verður settur í
veiðarnar á næstu vikum.
Gunnar Bergmann Jónsson,
framkvæmdastjóri Hrafn reyðar,
segir að veiðarnar hafi byrjað í
lok apríl og gengið ágætlega í upp-
hafi. Veður og fleira hafi síðan
sett strik í reikninginn á undan-
förnum vikum. „Aðaltíminn er að
byrja núna. Þeir fóru fyrst suður
fyrir land en voru á Faxaflóa í
gær. Þar höfum við aðallega tekið
okkar dýr en förum örugglega líka
inn á Breiðafjörð til veiða á næstu
dögum,“ segir hann.
Gunnar segir að ekki hafi verið
seinna að vænna að hefja veiðar
að nýju. Allt kjöt af fyrstu níu
dýrunum er selt en afli næstu mán-
aða verður einnig frystur til vetrar-
mánaðanna. Dýrin eru unnin í
vinnslustöð Hrafnreyðar í Hafnar-
firði þar sem þau eru skorin niður
fyrir verslanir og veitingahús.
Að sögn Gunnars er vandalaust
að finna hrefnu. „Straumar ráða
því líklega að sífellt fleiri dýr eru
að sjást. Apríl og maí geta verið
erfiðir en í júní og júlí, til dæmis
í fyrra, voru veiðarnar áreynslu-
lausar.“ - shá
Hrafnreyður KÓ-100 landaði sínu tíunda og ellefta dýri í Hafnarfirði í gær:
Veiðar að hefjast fyrir alvöru
HAFNARFJARÐARHÖFN Hrefnuveiðimenn
komu með tvö falleg dýr í land í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNARMÁL Stuðning borg-
arinnar þarf til að hægt verði
að koma á árvissri víkingahá-
tíð í Reykjavík í ætt við þá sem
haldin er í Hafnarfirði, að mati
Gunnars Víking Ólafssonar, for-
manns Víkinga félagsins Einherja í
Reykjavík. Hann segir borgina nú
hóta að taka af félaginu húsnæði
sem það hafði áður fengið gegn því
að gera það upp, verði reykvíska
víkingahátíðin ekki að veruleika.
Um leið neiti borgin að styðja
félagið til þess að halda hátíðina.
„Félagið hefur verið til í fjögur
og hálft ár,“ segir Gunnar Víking
og kveður þá Einherja mjög
ánægða með þá fyrirgreiðslu
sem þeir hafi fengið hjá borginni
í formi húsnæðis, þótt það hafi
engan peningastyrk fengið.
Félagið fékk inni í niðurníddum
bragga í Nauthólsvík sem Flug-
málastjórn hafði áður notað, gegn
því að gera húsnæðið upp. „Í þrjú
ár vorum við hins vegar bara að
skylmast niðri á Klambratúni.“
Félagsmenn, sem eru fjórtán
talsins, þar af tvær konur, hittast
reglulega til að æfa vopnaburð og
skylmingar fyrir sýningar. „Við
viljum slá skjaldborg um menn-
ingararf okkar,“ segir Gunnar Vík-
ing og kveðst finna fyrir miklum
áhuga erlendis á því að sækja heim
víkingahátíð í Reykjavík.
„En við þurfum að eiga hluti
á borð við sölu- og sýningar-
tjöld,“ segir hann, en tjöld verði
ekki keypt nema að félagið fái
styrk. „Við erum hins vegar til-
búin að byrja smátt, fyrst niðri
í Nauthólsvík og færa okkur svo
kannski síðar upp á Klambratún.“
Nú segir Gunnar Víking hins
vegar að félagið fái þau skilaboð
hjá eignaumsýsludeild borgarinnar
að það kunni að missa húsnæðið í
Nauthólsvík takist þeim ekki að
halda víkingahátíðina.
Gunnar Víking segir félagið
hafa fengið vilyrði fyrir stuðn-
ingi borgarinnar í borgarstjóra-
tíð Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur, þótt ekki hafi legið fyrir
í hvaða formi það yrði. Það hafi
svo breyst í niðurskurði hjá nýrri
borgarstjórn.
Einar Örn Benediktsson, for-
maður menningar- og ferða-
málaráðs borgarinnar, segir
peningaskort ástæðu þess að
styrkumleitan Einherja hafi
verið hafnað til þessa. Hins vegar
væru fyrir því fordæmi að borgin
styrkti uppákomur þar sem vel
hafi tekist til. „Ef þeim tækist
að halda hátíðina einu sinni í ein-
hverri mynd, þá væri kannski
komin forsenda til þess að styrkja
áframhaldandi starfsemi,“ segir
hann. olikr@frettabladid.is
Reykvískir víkingar
ósáttir við borg sína
Víkingafélagið Einherjar í Reykjavík telur stuðning borgarinnar forsendu þess
að hægt verði að setja upp víkingahátíð í ætt við þá sem haldin er í Hafnarfirði.
Félagið fékk félagsheimili hjá borginni, en gæti misst það komist hátíðin ekki á.
VÍKINGUR Í FÉLAGSHEIMILI Gunnar Víking Ólafsson, formaður Víkingafélagsins Ein-
herja í Reykjavík, í húsnæði félagsins í Nauthólsvík. Einherjar sýna sig og listir sínar í
Hallargarðinum í Reykjavík á hátíðarhöldunum 17. júní næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEGAMÁL Takmarkanir hafa verið
settar á umferð þungra ökutækja
um þjóðgarðinn á Þingvöllum.
„Umferð vöruflutningabíla sem
eru þyngri en 8 tonn er óheimil, en
umferð allra hópferðabifreiða og
áætlunarbíla verður áfram heimil
um þjóðgarðinn. Umferð allra öku-
tækja með vatnsspillandi farm og
hættulegan farm er bönnuð,“ segir
í tilkynningu Vegagerðarinnar.
Bannið hefur þegar tekið gildi
og hafa verið sett upp skilti við
leiðir inn í þjóðgarðinn því til stað-
festingar. - óká
Hópferðabílar fá undanþágu:
Vörubílar bann-
aðir í þjóðgarði
NÝTT SKILTI Vegagerðin biður vegfar-
endur að virða nýjar reglur um umferð á
Þingvöllum. MYND/VEGAGERÐIN
LÖGREGLUMÁL Höskuldur Þórhalls-
son, þingmaður Framsóknar-
flokksins, hefur verið sviptur
ökuréttindum
í átta mánuði.
Höskuldur var
tekinn ölvaður
undir stýri á
Akureyri.
„Ég taldi að
áfengið væri
runnið úr mér.
Ég mátti vita
betur – það
var rangt hjá
mér að taka
þá afstöðu,“ sagði Höskuldur í
samtali við Bylgjuna í gær. Haft
er eftir þingmanninum á DV.is
að hann telji sig ekki eiga við
drykkjuvandamál að stríða þrátt
fyrir að hafa keyrt undir áhrifum.
Hann geri sér þó nú grein fyrir
því að rauðvínsglösin sem hann
drakk fyrir bílferðina hafi verið
of mörg, án þess að hann viti
fjölda þeirra upp á hár. - sv
Þingmaður braut lög:
Verður próflaus
í átta mánuði
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
DÓMSMÁL Einar „Boom“ Mar-
teinsson, fyrrverandi forsprakki
Vítisengla á Íslandi, skal settur
aftur í gæsluvarðhald. Þar skal
hann sitja þar til dómur verður
kveðinn upp í máli á hendur
honum.
Hæstiréttur sneri með þessum
úrskurði í gær dómi Héraðsdóms
en Einari var sleppt úr gæslu-
varðhaldi á miðvikudag. Hann er
í haldi í tengslum við stór felldar
líkamsárásir, ásamt fjórum
öðrum. Fjórmenningarnir hafa
allir verið orðaðir við samtök
Vítis engla á Íslandi. Þeir hafa
setið í varðhaldi síðan í janúar.
Hæstiréttur snýr héraðsdómi:
Einar „Boom“
aftur í varðhaldEVRÓPUMÁL Ísland hefur uppfyllt þau viðmið sem framkvæmda-
stjórn ESB setti fram til að hægt
sé að hefja viðræður um byggða-
mál. Þetta segir á vef utanríkis-
ráðuneytisins.
Framkvæmdastjórnin hafði
óskað eftir tímasettri aðgerða-
áætlun um framkvæmd byggða-
stefnunnar komi til aðildar
Íslands og var þeirri skýrslu
skilað í vor.
Niðurstaða framkvæmda-
stjórnarinnar er að áætlunin upp-
fylli viðmiðin.
Samningahópur Íslands vinnur
nú að endanlegri mótun samn-
ingsafstöðu sem ráðgert er að
ljúka á næstunni. - þj
Viðræður um byggðamál:
Ísland uppfyllir
viðmið ESB
STJÓRNMÁL Þingflokkarnir á
Alþingi höfðu í gærkvöld ekki
náð samkomulagi um þing-
lok. Þingfundur stóð fram eftir
kvöldi í gær og þegar Frétta-
blaðið fór í prentun voru þrettán
þingmenn á mælendaskrá.
Ráðgert er að þingið komi
saman í dag. Enn er rætt um
frumvarp Steingríms J. Sigfús-
sonar, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, um veiðigjöld en
önnur umræða um málið hefur
staðið frá 1. júní.
- mþl
Enn ekkert samkomulag:
Þingfundur á
Alþingi í dag
Í þrjú ár vorum við
hins vegar bara að
skylmast niðri á Klambratúni.
GUNNAR VÍKING ÓLAFSSON
FORMAÐUR VÍKINGAFÉLAGSINS
EINHERJA Í REYKJAVÍK