Fréttablaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 10
9. júní 2012 LAUGARDAGUR10
HAFRANNSÓKNASTOFNUN: Ástand fiskistofna, aflahorfur og veiðiráðgjöf
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Þorskveiði á næsta fisk-
veiðiári verður aukin um 19
þúsund tonn verði ráðgjöf
fylgt. Innan seilingar er 250
þúsund tonna þorskkvóti
verði haldið rétt á spilun-
um. Vondu fréttirnar eru
hins vegar þær að ástand
ýsustofnsins er ískyggilegt
og veiðibann er ekki fjar-
lægur möguleiki.
Hafrannsóknastofnun kynnti í gær
niðurstöður sínar um ástand fiski-
stofna, aflahorfur og veiðiráðgjöf
fyrir næsta fiskveiðiár. Fyrst af
öllu boðaði forstjórinn, Jóhann Sig-
urjónsson, þau ánægjulegu tíðindi
að samkvæmt gildandi aflareglu
væri svigrúm til að auka afla-
heimildir í þorski um 19 þúsund
tonn; úr 177 þúsund tonnum í 196
þúsund tonn.
Verulegur árangur niðurskurðar
„Verulegur árangur hefur náðst
með niðurskurðaraðgerðum í
veiði á þorski. Það voru viðbrögð
við válegu ástandi þorskstofnsins
fyrir nokkrum árum. Hrygningar-
stofninn hefur verið allt of lítill
til skamms tíma en með þessum
aðgerðum erum við að ná hrygn-
ingarstofninum allverulega upp.
Hann hefur ekki verið stærri um
langt árabil.“
Jóhann lýsti því að tekist hefur
að ná upp þremur meðalsterkum
árgöngum sem bera munu uppi
veiðina á komandi árum. Í sögu-
legu samhengi höfum við haft
um 176 milljón þriggja ára nýliða
í stofninum en áætlanir gera ráð
fyrir að á árunum 2001 til 2007
hafi þriggja ára nýliðar aðeins
verið 120 milljónir nýliða.
„En nú sjáum við þessa meðal-
sterku árganga sem eru grunnur-
inn að því að auka veiðina á kom-
andi árum. Nú erum við líka komin
með mun hærra hlutfall af átta ára
og eldri fiski sem eykur marktækt
líkurnar á því að við fáum sterka
árganga á komandi árum,“ sagði
Jóhann sem hafði við þetta að bæta
að fiskurinn hefði greinilega meira
æti. Hann er betur haldinn og ekki
skal draga úr mikilvægi þess að
loðnustofninn hefur braggast að
miklum mun.
„Það er ekki ólíklegt að veiðin
verði komin í 250 þúsund tonn
árið 2016. Þessi árangur er innan
seilingar en það byggir á stöðugu
aðhaldi og aga,“ sagði Jóhann.
Ýsan á fallandi fæti
Hafrannsóknastofnun leggur til að
aflaheimildir í ýsu verði lækkaðar
úr 45 þúsund tonnum í 32 þúsund
tonn á næsta fiskveiðiári. Rétt er
að minna á að ýsuveiði árin 2003
til 2008 var 96 þúsund til 110 þús-
und tonn. Sú veiði byggði á risaár-
gangi ársins 2003 og þeirri stað-
reynd að stofnstærð ýsu var í
sögulegu hámarki á árunum 2004
til 2008. Hins vegar hafa árgangar
síðustu fimm ára verið mjög litlir
og á þeim mun veiði næstu ára
byggja. Þetta er einfalt; ýsustofn-
inn mun minnka verulega á næstu
árum þegar árgangar 2008 til 2011
koma inn í veiðistofninn.
„Það var gengið of skart fram
í veiði á þessum sterku stofnum
að okkar mati. Þegar stórir ár-
gangar koma er skynsamlegt að
dreifa veiðinni yfir lengra tímabil.
Við erum að horfa á þá staðreynd
að stofninn getur hreinlega farið
niður fyrir hættumörk. Það getur
leitt til þess að okkar ráðgjöf kalli
á lokun veiða. Þetta er svo lé legur
efniviður sem við höfum núna
að þá má alveg segja að það séu
blikur á lofti,“ sagði Jóhann.
Björn Ævar Steinarsson, sviðs-
stjóri veiðiráðgjafarsviðs, sagði
enn fremur að veiði á ýsu, þegar
ástandið var gott, skýri ekki
hversu illa stofninn er staddur í
dag. Þeirra skýringa verður að
leita í náttúrunni.
Í öðrum fréttum
Hafrannsóknastofnun leggur til
að hámarksafli ufsa á næsta fisk-
veiðiári verði 49 þúsund tonn,
sem er aukning um fjögur þús-
und tonn frá fyrra ári. Aflamark
á yfirstandandi fiskveiðiári er hins
vegar sjö þúsund tonnum hærra en
ráðgjöf Hafró sagði til um.
Á vertíðinni 2011/2012 varð
afli úr stofni íslensku sumargots-
síldarinnar rúm 49 þúsund tonn.
Fjórða árið í röð herjaði sýking
á stofninn og er talið að um 14%
veiðistofnsins hafi drepist af
völdum hennar vorið 2012.
Sterkar vísbendingar eru um að
sýkingarfaraldurinn sé í rénun og
horfur með stærð veiðistofnsins
bjartari en undanfarin ár með til-
komu sterkra, lítið sýktra árganga.
Hrygningarstofninn árið 2012 er
metinn 377 þúsund tonn. Lagt er til
að aflinn verði miðaður við kjör-
sókn og að hámarksafli verði 67
þúsund tonn.
Mælt er með áframhaldandi
banni við beinni sókn á lúðu og
að reglugerð henni til verndunar
verði áfram í gildi.
Hvalveiðar
Ástand hrefnustofnsins við Ísland
er gott og stofnstærðin metin
nálægt því sem talið er að hún hafi
verið áður en veiðar hófust. Haf-
rannsóknastofnunin mælir með
að árlegar veiðar nemi að hámarki
229 hrefnum á íslenska land-
grunnssvæðinu og auk þess 121
hrefnu á svokölluðu Jan Mayen-
undirsvæði, sem að hluta til er
innan íslenskrar lögsögu.
Niðurstöður talninga á lang-
reyði frá 2007 benda til að heildar-
stofninn á hafsvæðinu Austur-
Grænland/ Ísland/Jan Mayen sé
um 21 þúsund dýr, sem er svipað
og niðurstöður úr talningum frá
1995 og 2001. Mælir Hafrann-
sóknastofnunin með að ár legar
veiðar á hefðbundnum hval-
veiðimiðum vestan Íslands nemi
að hámarki 154 langreyðum
almanaks árin 2013 og 2014.
Ískyggilegt ástand á ýsustofninum
GOTT ÚTLIT Í ÞORSKI Auknar aflaheimildir í þorski gætu skilað á níunda milljarð
króna í útflutningsverðmætum en ýsan dregur þá tölu niður um eina tvo milljarða.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
2011
25%
VELTUAUKNING
HÉÐINN hf.
2010
60 NÝIR
SÉRFRÆÐINGAR
MANNVIT hf.
20
11 2010
36.000
FLEIRI HLUNKAR
KJÖRÍS ehf.
2010
2011