Fréttablaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 9. júní 2012 17 Íslensk-ensk fjölskylda í París óskar eftir au-pair frá sept til að gæta 2 barna, 4 ára (í skóla) og 1 árs. Þarf að vera sjálfstæð, ábyrgðarfull og barngóð, 18 ára eða eldri. Reynsla af störfum með börnum og einhver frönskukunnátta kostur. Sendið póst á margtogmikid@gmail.com fyrir 1. júlí nk. Starf sálfræðings við meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga að Stuðlum er laus til umsóknar Laust er til umsóknar starf sálfræðings hjá Stuðlum. Starfshlutfall er 100% . Ráðið er í starfið til eins árs til að byrja með, með möguleika á framlengingu. Tekið skal fram að viðkomandi þarf að hafa hreint sakar- vottorð og þarf að skila því inn áður en að ráðningu getur orðið. Stuðlar starfa á grundvelli barnaverndarlaga og reglugerðar um meðferðarstöð ríkisins. Stuðlar sinna unglingum á aldrinum 12-18 ára með hegðunarerfið- leika, þ.m.t. vímuefnavanda. Starfsvið Meðal verkefna sálfræðings er: • Greining og meðferð unglinga og vinna með fjöl- skyldum þeirra. • Gerð og framkvæmd meðferðaráætlana. • Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarnefndir og skóla sem og samvinna við ýmsar aðrar stofnanir. • Ráðgjöf og handleiðsla við starfsfólk Stuðla sem og við aðrar meðferðarstofnanir. • Þátttaka í almennri stefnumótun. • Þátttaka í ART (agression replacement training) og notkun áhugahvetjandi samtals (motivational interviewing) Persónulegir eiginleikar • Lögð er áhersla á persónulega eiginleika, svo sem góða samstarfshæfni og jákvæð viðhorf til skjól- stæðinga. Hæfnikröfur: • Réttindi til að starfa sem sálfræðingur. • Þekking og reynsla á meðferð og greiningu unglinga er æskileg. • Þekking og færni í hugrænni atferlismeðferð. • Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar. • Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi. Við úrvinnslu umsókna gildir mat forstöðumanns Stuðla á hæfni og eiginleikum umsækjanda. Launa- kjör eru samkvæmt kjarasamningi Barnaverndarstofu við Sálfræðingafélag Íslands. Umsóknarfrestur er til 25. júní nk. og þarf umsækjandi helst að geta hafið störf í byrjun ágúst. Umsókn ásamt náms- og starfsferilsskrá berist til Stuðla - meðferðarstöðvar ríkisins fyrir unglinga, Fossaleyni 17, 112 Reykjavík. Hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu Stuðla, www.studlar.is Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Viðar Hjaltason forstöðumaður netfang: thorarinn@studlar.is Stuðlar, Meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga Fossaleynir 17 (Grafarvogi), 112 Reykjavík www.studlar.is mru@studlar.is Okkur á leikskólanum Skerjagarði Bauganesi 13 101 Rvk. vantar að bæta við starfsmannahópinn okkar. Við leitum að áhugasömu fólki til starfa. Leikskólinn er einkarekinn, tveggja deilda fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til sex ára. Lögð er áhersla á faglegt starf þar sem einstak- lingurinn fær að njóta sín í notalegu og öruggu umhverfi. Uppeldis- starfið snýst um að hvetja börnin svo þau verði virkir, sjálfstæðir og umfram allt ánægðir einstaklingar. Á Skerjagarði ríkir gleði og jákvætt hugarfar. Allar nánari upplýsingar veita Ella í síma 822-1919 og Sóldís í síma 848-5213 eða á netfangið: skerjagardur@skerjagardur.is Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 10. September 2012. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar. Hlutverk sjóðsins: Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmda- sjóð ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði. Áherslur og ábendingar til umsækjenda: 1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða. 2. Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi. 3. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði. 4. Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis m.t.t. markmiða Framkvæmda- sjóðsins og Ferðamálaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða, nýnæmis ofl. 5. Áherslur Framkvæmdasjóðsins er varða skipulag og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga koma m.a. fram “Menningar- stefnu í mannvirkjagerð”, leiðbeiningarritinu „Góðir staðir“ og „Handbók um merkingar á ferðamannastöðum og friðlöndum“. Sjá nánar á umsóknarsíðu Framkvæmdasjóðsins á www.ferdamalastofa.is. Verkefni verða að uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum: 1. Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferða- mannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum. 2. Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamanna- stöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila. 3. Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunar- vinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum. Allar umsóknir skulu innihalda: a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti. b. Kostnaðar- og verkáætlun. c. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða til annarra framkvæmda þá verður deiliskipulag, fullnaðarhönnun og leyfi til framkvæmda að liggja fyrir. d. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunar- vinnu eða undirbúningsrannsókna þá verður að fylgja skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags. e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila. Hverjir geta sótt um: Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Hvar ber að sækja um: Umsóknareyðublöð ásamt leiðbeiningum um hvernig skal sækja um má finna á heimasíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamála- stofu í síma 535-5500 eða með vefpósti sveinn@ferdamalastofa.is. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum fyrir árið 2013. ICELANDIC TOURIST STOFA BOARD Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Iceland | Sími/Tel +354 535 5500 | Fax +354 535 5501 Strandgata 29 | 600 Akureyri | Iceland | Sími/Tel +354 535-5510 | Fax +354 535 5501 FRAMKVÆMDASJÓÐUR FERÐAMANNASTAÐA H ön n u n : P O R T h ön n u n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.