Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 29
| FÓLK | 3 Sagtækni ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1990. Fyrirtækið sérhæfir sig í steinsteypusögun, kjarnaborun og múr- broti. Eigendur eru Aðalsteinn Sigurhansson vél- virkjameistari og Helga Elísabet Kristjánsdóttir. FAGLEG AÐSTOÐ Hjá fyrirtækinu starfa reyndir fagmenn sem skap- að hafa Sagtækni gott orð fyrir fljóta og góða þjónustu, fagleg vinnubrögð, þrifalega umgengni og frágang. „Við komum á staðinn ef óskað er, skoðum fyrirhugaðar framkvæmdir, gefum góð og fagleg ráð ásamt að verðmeta framkvæmd- irnar.“ Allt þetta er viðskiptavininum að kostnað- arlausu. Aðalsteinn tekur fram að heiðarleiki sé nokkuð sem Sagtækni hafi haft að leiðarljósi frá upphafi. „Við leggjum metnað okkar í að sinna þörfum viðskiptavina okkar á persónulegan og faglegan hátt,“ segir Aðalsteinn og bætir við að fjöldi við- skiptavina Sagtækni hafa verið í viðskiptum við fyrirtækið til margra ára. „Meðal þeirra má nefna flestöll stóru byggingarfyrirtækin, öll sveitar- félög á höfuðborgarsvæðinu ásamt fjölda minni fyrirtækja í húsasmíði, pípulögnum, blikksmíði og raflögnum. Svo má ekki gleyma þúsundum einstaklinga sem hafa verið stór hluti viðskipta- vinanna frá upphafi,“ segir Aðalsteinn. VERKEFNI AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM Sagtækni tekur að sér bæði lítil og stór verkefni og er fyrirtækið vel búið tækjum sem eru endur- nýjuð reglulega. Einnig er Sagtækni í góðu sam- starfi við verkfræðistofur og önnur fyrirtæki sem eru með gröfur, krana, vörubíla og fleira sem kann að þurfa í mismunandi verkefni. Viðskipta- vinir Sagtækni eru því af ýmsum toga, bæði ein- staklingar og fyrirtæki, stór og smá. „Helstu verkefni okkar eru að saga dyra- og gluggagöt á veggi, fjarlægja veggi bæði úti og inni sem og skorsteina af húsum. Þegar veggir eru fjarlægðir þarf oft að setja upp stálstyrktar- bita í staðinn og Sagtækni tekur að sér smíði og uppsetningu slíkra bita. Auk þess kjarnaborum við fyrir lögnum og loftræstistokkum í gólf og veggi, sögum og brjótum rásir í gólf og veggi fyrir lögnum af ýmsum toga,“ segir Aðalsteinn og bætir við: „Öll verk sem við tökum að okkur eru unnin af fagmönnum.“ Hægt er að lesa nánar um verksvið Sagtækni ehf. á heimasíðu fyrirtækisins www.sagtaekni. is eða hafa samband, annaðhvort með því að hringja í síma 567-4262 eða senda tölvupóst á net- fangið sagtaekni@sagtaekni.is. REYNUM ALLTAF AÐ VINNA HRATT OG ÖRUGGLEGA SAGTÆKNI KYNNIR Sagtækni ehf. er fyrirtæki með áratugareynslu sem sérhæfir sig í steinsögun, kjarnaborun og múrbroti. Viðskiptavinir eru bæði einstaklingar og fyrirtæki en fagmenn sinna öllum verkum. EIGENDUR Aðalsteinn og Helga Elísabet.SAMSTARFSFÓLKIÐ Aðalsteinn Sigurhansson og samstarfsfólk í Sagtækni ehf. MYNDIR/ERNIR PERSÓNU- LEG ÞJÓN- USTA „Við leggjum metnað okkar í að sinna þörfum viðskiptavina okkar á persónu- legan og faglegan hátt.” Husqvarna Construction Products STEINSAGIR, KJARNABORVÉLAR, GOLF OG VEGSAGIR. K750 sögunardýpt 12,5 cm K3600 sögunardýpt 26 cm. HP 40 bensín glussadæla DM 230 FS 400 Steinsagarblöð og kjarnaborar www.mhg.is K2500 sögunardýpt 14,5 cm 6 MK II

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.