Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 27
KYNNING − AUGLÝSING Útilegan20. JÚNÍ 2012 MIÐVIKUDAGUR 7
BÍLFERÐIR MEÐ BÖRNUNUM
Flestir kannast við óánægju úr aftursætinu í löngum bílferðum út á
land. Hér eru hugmyndir að afþreyingu til að stytta börnunum stundir í
aftursætinu.
1. Klukk-gulur-bíll. Þessi leikur getur orðið þreytandi áheyrnar fyrir
foreldra en er ágætur ef börnin eru fleiri en eitt. Þá velja þau sér sinn
lit hvert og „klukka“ bíl sem ekur hjá í þeirra lit. Ef lætin eru orðin
óbærileg er upplagt að stinga upp á óalgengari litum eins og græn-
bláum eða kokteilsósubleikum.
2. Hver er maðurinn? Þetta er leikur sem allir kannast við og hentar
krökkum sem eru á skólaaldri. Einn hugsar sér mann og hinir mega
spyrja hann spurninga sem hann svarar annað hvort játandi eða
neitandi. Sá sem fyrstur áttar sig á hver maðurinn er vinnur.
3. Frúin í Hamborg. Hvað keyptirðu þér fyrir peningana sem frúin í
Hamborg gaf þér? Örugglega ekkert sem er svart eða hvítt – og svo
má alls ekki segja já eða nei.
4. Telja kindur. Hér er ekki átt við að svæfa börnin, þótt það myndi
vissulega stytta þeim stundir, heldur benda þeim á kindurnar og fá
þau til að telja þær.
5. Söngur. Flestir hafa gaman af því að syngja saman og getur það
reynst betur en að skella geisladiski í tækið. Rifjið upp leikskólalögin
og allir geta sungið saman.
6. Stigasöfnun. Þessi leikur er ekki ólíkur klukk-gulum-bíl en hér ákveða
þátttakendur reglur eins og þegar keyrt er yfir kindagrind verði að
segja „píanó píanó!“ og snerta bílþakið ef keyrt er yfir brú. Sá stiga-
hæsti í lokin sigrar.
Gott ráð er að hafa smánasl við höndina, rúsínupakka, Cheerios í poka
eða þess háttar því svengd eykur á pirring, það þekkjum við nú öll.
Þessar hugmyndir má nota til að stytta börnum stundir og auðvitað
finnst börnunum best ef mamma og pabbi nenna að vera memm.
Langar bílferðir geta virst enn lengri í huga barnanna. MYND/GETTY
HÚSAFELLSSKÓGUR
Tjaldsvæðið í Húsafelli er paradís fjöl-
skyldufólks. Þar er skemmtileg sundlaug,
spennandi leiktæki, golfvöllur, verslun og
veitingar. Yfir sumartímann er kveikt upp í
varðeldi á laugardagskvöldum.
ARNARSTAPI Á SNÆFELLSNESI
Á Snæfellsnesi eru mörg frábær tjaldsvæði.
Þar má nefna Arnarstapa sem var áður
kaupstaður og er í dag eina höfnin á sunn-
anverðu Snæfellsnesi. Gaman er að ganga
gömlu reiðgötuna og friðlandið á milli Arn-
arstapa og Hellna.
ÞJÓRSÁRDALUR
Tjaldsvæðið í Sandártungu í Þjórsárdal er
rómað fyrir náttúrufegurð. Þar er góð að-
staða fyrir ferðafólk og frumleg leiktæki
fyrir börn. Í göngufæri eru meðal annars
sögufrægir staðir frá landnámsöld og nátt-
úruundrin Háifoss og Hjálparfoss.
DYNJANDI VIÐ ARNARFJÖRÐ
Við fossinn Dynjanda við Arnarfjörð á Vest-
fjörðum er töfrandi tjaldsvæði. Þar er mikil
veðursæld og himnesk upplifun að hlusta á
formfegursta foss landsins dynja í takti við
náttúruna.
HAMRAGARÐAR UNDIR EYJAFJÖLLUM
Tjaldsvæðið í Hamragörðum er yndislegur
áningarstaður, mitt á milli tveggja tígulegra
fossa, Seljalandsfoss og Gljúfrabúa. Hægt er
að ganga á bak við Seljalandsfoss og inn að
Gljúfrabúa í gegnum ægifagurt gil. Aðstaða
fyrir ferðafólk er mjög góð í Hamragörðum,
fullkomið þjónustuhús og skemmtileg leik-
tæki fyrir börn í grónu og geysifögru landi.
SKAFTAFELL Í VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐI
Tjaldsvæðið í Skaftafelli stendur mitt í stór-
brotinni náttúrufegurð. Þaðan er stutt á
Hvannadalshnúk og fleiri fallega tinda.
Á tjaldsvæðinu er afbragðs aðstaða fyrir
ferðafólk í grónu og grösugu umhverfi,
ferðamannaverslun, sýningahald, veitinga-
sala og upplýsingamiðstöð.
ÁSBYRGI Í VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐI
Ásbyrgi er eitt mesta náttúruundur lands-
ins. Í þjóðsögum segir að Sleipnir, áttfætt-
ur hestur Óðins, hafi drepið þar niður fæti
þegar goðið var á yfirreið. Á tjaldsvæðinu
er fyrsta flokks aðbúnaður og hvarvetna
vel merktar gönguleiðir. Yfir hásumarið er
boðið upp á fræðsluferðir, barnastundir,
kvöldgöngur, varðeld um verslunarmanna-
helgi og sólstöðugöngu.
Áð í heiðanna ró
Tjaldbúskapur undir bláhimni íslenskra sumarnátta er indælt
hlutskipti. Að hlusta á föðurlandið anda, kúra í sjarmerandi
tjaldbirtu og sýsla með prímus og potta til að lifa frjáls í
náttúrunni. Í öllum landsfjórðungum leynast heillandi
tjaldsvæði og hér eru nokkur dásamleg nefnd til sögunnar.
Margir kjósa að njóta
orku Snæfellsjökuls í
návígi.
Veðursæld er mikil á
tjaldsvæðinu við fossinn
Dynjanda sem er 100
metra hár og 60 metra
breiður.
Það er
mögnuð
upplifun að
sofna og
vakna við
þungan nið
Seljalands-
foss.
Selið í Skaftafelli.
Hvannadalshnúkur
í baksýn.
NORDIC PHOTOS/GETTY
MYND/VILHELM NORDIC PHOTOS/GETTY
NORDIC PHOTOS/GETTY
ÍSLAND Á
EIGIN VEGUM
SUMARIÐ 2012
Blue Lagoon
Dettifoss
Goðafoss
Reykjahlíð
Keflavík
Reykjavík
Selfoss
Mývatn
Hella
Hvolsvöllur
AkureyriBrjánslækur
Látrabjarg
Stykkishólmur
Ólafsvík
Borgarnes
Hveragerði
Þingvellir
Laugarvatn
Flúðir
Markarfljót
Seljarlandsfoss
Skógar
Þórsmörk Mýrdalsjökull
Vatnajökull
Hofsjökull
Langjökull
Hvanngil
Emstrur
Vík
Kirkjubæjarklaustur
Laki
Landmannalaugar
Eldgjá
Leirubakki
HrauneyjarReykholt
Geysir
Gullfoss
Hvítárnes
crossroads
Kerlingarfjöll
crossroads
Hveravellir
Nýidalur
Jökulsárlón
Kverkfjöll
Hvannalindir
Askja
Herðubreiðarlindir
Aldeyjarfoss
Krafla
Hljóðaklettar
(Vesturdalur)
Ásbyrgi
Skútustaðir
Dim
m
uborgir
Tjörn
KrossHáls
Vestmannaeyjar
Króksfjarðarnes
Búðardalur
Reykhólar
Patreksfjörður
Höfn
Skaftafell
Egilsstaðir
Drangjökull
Drangsnes
Hólmavík
Skagaströnd
Varmahlíð
Siglufjörður
Kópasker
Húsavík
Raufarhöfn
Þórshöfn
Borgarfjörður eystri
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Reyðarfjörður
Ólafsfjörður
Vigur
Snæfellsjökull
Staðarskáli
Svartá
20
19
15
16
18
20a
21 21a
10 10a
62 62a
60 60a
14 14a
610 610a
650 650a
641
680
641a
661 661a
640 640a
SBA 5
SBA 2
SBA 3
SBA 4
SBA 2a
SBA 1 SBA 1a
17 17a
9 9a
1 1a
6 6a
11 11a
Ísafjörður
Grímsey
Ferry
Ferry
Ferry
Ferry
Ferry
Ferry
Á kortinu getur að líta víðfemt
áætlunarnet Reykjavik Excursions - Kynnisferða
ásamt tengingum við aðra landshluta.
Kynntu þér
m
öguleikana
á www.ioyo.is
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum