Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGÚtilegan MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 20124 Einfaldur baunaréttur sem nær úr þér hrollinum. Fyrir 8 3 dósir af chilibaunum 1 dós niðursoðnir tómatar 2 dósir salsasósa 1 laukur skorinn 2 tsk. salt ½ tsk. hvítlaukssalt Hellið úr öllum dósum í pott og hrær- ið. Saxið laukinn og hellið út í. Eldið yfir opnum eldi í tuttugu mínútur og hrærið vel svo ekki festist við botninn. Mjög gott er að hella baunaréttinum yfir grillaða hamborgara eða pylsur eða borða hann með brauði. Smjörbökuð kartafla Leggið álpappír flatan með glanshliðina upp og smyrjið rönd af smjöri í miðjuna. Skerið kartöfluna í tvennt. Setjið smjör á skornu hliðina og saltið. Vefjið lang- hliðunum á álpappírn- um að kart- öflunni og svo öðrum endanum. Bætið einum bolla af vatni inn í og rúll- ið hinum endanum upp. Eldið á grind yfir opnum eldi í 1 til 2 klukkutíma eftir stærð kartöflunnar. Súpa Fyllið pott til hálfs af vatni og skell- ið grænmetis- eða kjúklingateningi út í. Skerið niður grænmeti, svo sem kart- öflur, gulrætur, sellerí og lauk, magn eftir vild og setjið út í soðið. Látið malla á eld- inum í hálftíma. Bætið smá rjóma út í undir lokin til að fá smá mýkt í súpuna. Ómissandi eftirréttur Þræðið sykurpúða upp á grein og grill- ið yfir eldi. Eldað í útilegunni Matreiðsla undir berum himni vex mörgum í augum. Smurðar samlokur eru góðra gjalda verðar en duga skammt á hrollköldum íslenskum sumarkvöldum. Þá er fátt rómantískara en að sitja við varðeld meðan kraumar í pottunum. Fátt er rómantískara en að sitja við varðeld meðan kraumar í pottum. NORDIC PHOTOS/GETTY ÚTILEGUKORTIÐ ÚTILEGUKORTIÐ er ódýr og góður kostur fyrir þá sem ferðast um Ísland. Kortið gildir fyrir tvo fullorðna og fjögur börn undir 16 ára aldri. Hægt er að kaupa Útilegukortið á vefsíðu okkar utilegukortid.is, hjá SHELL, Orkunni, Íslandspósti, Víkurverki, ýmsum stéttar- og verkalýðs- félögum og á tjaldsvæðum Útilegukortsins. Ferðumst innanlands, eitt kort – 44 tjaldsvæði. ÁRSTÍMI EFTIRVAGNA ER RUNNINN UPP Sumarið er helsti ferðamannatími Íslendinga. Þá fjölgar eftirvögnum á þjóðvegum landsins, til dæmis fellihýsum, hjólhýsum og kerrum. Umferðarstofa gaf út leiðbeiningar fyrr á árinu til ökumanna varðandi ýmis öryggisatriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga. 1. Áður en lagt er af stað í fyrsta ferðalag ársins er gott að fara hringinn í kringum vagninn og kanna ástand ljósa og glitaugna og hvort ljósatengi séu virk. Hafa ber í huga að allir eftirvagnar eiga að vera með ljós sem eru hliðstæð aftur- og hliðarljósum bílsins. 2. Ferðavagnar breyta aksturseiginleikum bílsins og gera hann þyngri og óstöðugri á veginum. Einnig taka þeir oft á sig töluverðan vind og þarf fólk að hafa það í huga á ferðum sínum um landið. Fólksbifreið með eftirvagn má almennt ekki aka hraðar en á 80 kílómetra hraða á klukkustund. 3. Tengibúnaður milli bíls og eftirvagns þarf að vera traustur. Upplýsingar um hann þurfa að vera í skráningar- skírteini bílsins og alltaf á að nota öryggiskeðju. Í festingum og splitti á beisli getur myndast tæring vegna ryðs sem dregið getur stórlega úr styrk beislisins. Þess eru dæmi að splitt hafa gefið sig vegna þessa og valdið mikill hættu. 4. Eftirvagnar eiga allir að vera með ljós sem eru hliðstæð aftur- og hliðarljósum bílsins. Ef eftirvagn er breiðari en ökutækið og hindrar að menn sjái aftur fyrir bílinn þarf að framlengja hliðar- spegla bílsins báðum megin. 5. Upplýsingar um heildarþyngd eftirvagns er að finna í skráningar- skírteini bílsins. Nauðsynlegt er að bílstjóri kynni sér hvort hann hafi réttindi til að aka með þann eftirvagn sem er aftan í bíl þeirra. Alla skráða eftirvagna á að færa til skoðunar annað hvert ár. Við tjöldum því besta Icarus 500 - 5 manna tjald, gott fortjald,195cm lofthæð, 3000mm vatnsheldni, eldvarinn dúkur kr. 74.995 Tilboð Tempest 200 - 2ja manna göngutjald, 5000mm vatnsheldni, 2,9 kg. kr. 35.995 Tilboð Odyssey 400 - 4 manna tjald, gott fortjald, 200cm lofthæð, 3000mm vatnsheldni, eldvarinn dúkur 995kr. 56. Tilboð Útilegukortið 2012 44 tjaldsvæði um allt land 14.900 kr. www.utilegukortid.is utilegukortid.is www.campingcard.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.