Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 36
20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR24 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þetta var strand- gæslan! Hann sást síðast á leið til Bretlands en það var á þriðjudaginn! Aumingj- ans Bjarni! Hvað höfum við gert! So, my fellow Americans... I would like to wish you all a merry Christmas and a happy ... new Ég var að sjá hann núna! Staðsettur í Washington DC! Hold your fire! Hold your fire! What the fuck... Gleymdu því, Palli. Við leyfum þér ekki að gera varanlegar breytingar á líkama þínum fyrr en þú verður fullorðinn. Og þá byrjar líkami þinn sjálfkrafa að breytast varanlega! Pabbi sagði mér að ef einkunnirnar skána ekki sé einhver að fara að lenda illa í því! Vildi bara vara þig við... Hei! Ég var í þessum buxum! Mamma er sem sagt að þvo gallabuxur. LÁRÉTT 2. berjast, 6. frá, 8. efni, 9. fæðu, 11. tveir eins, 12. brella, 14. ofreyna, 16. kallorð, 17. háttur, 18. beita, 20. átt, 21. stagl. LÓÐRÉTT 1. afkvæmi, 3. tveir eins, 4. eldsneyti, 5. eyrir, 7. pest, 10. mál, 13. fjalla- skarð, 15. steintegund, 16. rámur, 19. samtök. LAUSN LÁRÉTT: 2. etja, 6. af, 8. tau, 9. mat, 11. rr, 12. bragð, 14. sliga, 16. hó, 17. lag, 18. áta, 20. sa, 21. stag. LÓÐRÉTT: 1. lamb, 3. tt, 4. jarðgas, 5. aur, 7. farsótt, 10. tal, 13. gil, 15. agat, 16. hás, 19. aa. Bubbi Morthens Björgvin Halldórasson KK - Sálin hans Jóns míns Dúndurfréttir - Jón Jónsson Brimkló - Illgresi - Krummi - 1860 Sigga Beinteins - Guðrún Árný Karlsdóttir Kalli - The Saints of Boogie Street STÓRTÓNLEIKAR Á FIMMTUDAG AUSTURBÆR KL. 21.00 - MIÐAVERÐ 3.500 KR. - MIÐASALA Á MIÐI.IS Styrktartónleikar fyrir Davíð Örn Arnarsson og fjölskyldu hans Davíð Örn greindist með krabbamein í hálsi í janúar 2008 og hefur síðan háð hetjulega baráttu við sjúkdóminn, dyggilega studdur af konu sinni og dætrum. Slík barátta er ætíð erfið og kostnaðarsöm ungri fjölskyldu og því er nú blásið til sóknar og slegið upp ógleymanlegum styrktartónleikum. Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til fjölskyld unnar. Ef þið hafið ekki tök á að mæta á tónleikana, en langar að leggja ykkar af mörkum, er bent á styrktarreikning: 324-26-171105 kt. 171180-5549. Á Vísi er hægt að horfa myndskreyttan upplest úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi á ur Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára. Þurrbrjósta á bráðadeild BAKÞANKAR Svavars Hávarðs- sonar Það er kunnara en frá þurfi að segja að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur verið allbrattur síðastliðin ár. Reyndar svo mikill að enginn hefði trúað því að þetta væri hægt, að óreyndu. Margir, og ég þar á meðal, hafa lýst áhyggjum af því að með þessum niðurskurði myndi óumflýjanlega fylgja skert þjónusta. Reynsla margra er eflaust einmitt sú, um það efast ég ekki. ALLA vega. Fyrir réttri viku fór ég á fætur um hálf sjö ásamt kærustu og fimm ára gutta. Eftir hefðbundið kornfleksát hvarf betri helmingurinn út úr dyrunum með þann stutta, en þar sem ég átti kvöld- vakt ákvað ég að skríða upp í aftur og fá mér kríu. Þegar á mig var að svífa höfgi um áttaleytið var ró minni rask- að við eitthvað óvenjulegt hljóð sem barst frá stássstofunni. Þegar fram var komið sá ég hvar mín kær- ust skreið inn gólfið á móti mér, hvítari en ég í framan. Það túlk- aði ég einfaldlega á eftirfarandi hátt: Manneskja sem nær dauða- gljáanum mínum á svo stuttum tíma hlýtur að vera alvarlega veik. Gerðar voru viðeigandi ráð- stafanir. EKKI veit ég hvort fólki var boðið kælt hvítvín og létt- saltað kex með styrjuhrogna- kavíar við komu á bráðadeild Landspítalans fyrir hrun, en það hlýtur eiginlega að vera ef rökin um verri þjónustu eiga að halda. Stelpan var nefnilega í rúmi innan mínútu eftir að þangað var komið og hjúkrunar- fræðingur var byrjaður að taka nauðsyn- leg sýni eftir aðrar 60 sekúndur. Verkjalyf streymdu um æðar minnar heittelskuðu áður en ég gat sagt morfín, eða rétt áður en læknir stóð við rúmstokkinn til að ganga úr skugga um hvers kyns var. Næstu klukku- tímana þurfti ég aldrei að spyrja. Okkur var greint frá niðurstöðum úr rannsóknum áður en okkur tók að lengja eftir þeim. Já, og menn lögðu sig í líma um að hughreysta okkur þá stuttu stund sem ótti gróf um sig og áður en svör fengust. NÚ STENDUR til að byggja nýtt Landspít- alahús. Þar verður hátt til lofts og vítt til veggja og öll aðstaða til fyrirmyndar, ólíkt því sem nú er. Þjónustan er sögð batna til muna og að peningar muni sparast. Þá mun starfsfólki líða miklu mun betur í vinnunni. ÉG VEIT ekki hvað þið heitið sem tókuð á móti okkur um daginn, en það er ekkert minna en þið eigið skilið. Og fyrst þið ætlið að bæta þjónustuna á bráðadeildinni, frá því sem nú er, þá nóterið þið kannski hjá ykkur að ég fæ brjóstsviða af þurru hvít- víni. En þið eigið sjálfsagt ráð við því, eins og öðru.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.