Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.06.2012, Blaðsíða 18
18 20. júní 2012 MIÐVIKUDAGUR LE N S ÍS S N SL E A A SI K .I S U TI 6 01 3 1 06 / 4 / 2 TJALDALAND ÚTILÍFS ER VIÐ HLIÐINA Á TBR-HÖLLINNI VIÐ GLÆSIBÆ. UPPSETT TJÖLD TIL SÝNIS ALLA VIRKA DAGA KL. 10-17. FLEIRI UPPLÝSINGAR Á WWW.UTILIF.IS VERÐ: 32.990 / 42.990 KR. HIGH PE AK COMO 4 OG 6 MANNA Tvískipt innratjald með fortjaldi á milli. Vatnsvörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar. Hæð 190/200 cm. VERÐ: 59.990 KR. THE NORTH FACE TADPOLE 2 MANNA Létt göngutjald 2,4 kg. Vatnsvörn 1.500 mm taffeta. Botn 5.000 mm taffeta. Álsúlur. Hæð 100 cm. VERÐ: 84.990 KR. HIGH PEAK NUNATAK 3 MANNA Göngutjald með góðu fortjaldi og áföstum dúk. Vatnsvörn 4.000 mm. Botn 5.000 mm. Álsúlur. Hæð 110 cm. Þyngd 3,9 kg. VERÐ: 56.990 KR. HIGH PEAK ANCONA 5 MANNA Rúmgott fjölskyldutjald. Vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir saumar. Dúkur í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 200 cm. TJÖLDIN FÁST Í TJALDALANDI NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS Fyrirhuguð endurnýjun Land-spítala við Hringbraut snýst fyrst og fremst um bætta þjón- ustu við sjúklinga og aðstandend- ur þeirra. Gjörgæsludeild Land- spítala í Fossvogi eflist mjög við flutning í nýtt húsnæði á nýjum spítala. Þar munu gjörgæslu- deildir í Fossvogi og Hringbraut sameinast á einum stað, sem hefur í för með sér ýmsa kosti og hagræðingu. Á gjörgæsludeildinni í Foss- vogi eru mikið veikir einstak- lingar frá öllu landinu. Þetta er fólk sem lent hefur í alvarleg- um slysum, gengist undir stór- ar aðgerðir eða mikið veikt fólk sem þarf stöðugrar gæslu við. Á deildinni vinnur öflugur hópur starfsmanna gott starf og sinnir sjúklingum af kostgæfni og fag- mennsku. Mikil þrengsli og skortur á við- unandi aðstöðu fyrir sjúklinga eru staðreynd á gjörgæsludeild- inni. Oft þurfa allt að sex gjör- gæslusjúklingar að deila her- bergi/sal, en æskilegt væri að þeir hefðu einbýli eða möguleika á að skilja á milli rúmstæða. Það kemur m.a. til af sýkingar- hættu, en við og við hafa komið upp sýkingar á spítalanum sem reynst geta hættulegar. Rann- sóknir hafa sýnt að með einbýl- um er hægt að minnka sýkingar- tíðni umtalsvert. Aðbúnaður fyrir aðstandend- ur á gjörgæsludeildinni er ófull- nægjandi. Í þessu sambandi má nefna að margir þeirra sjúklinga sem koma á gjörgæsludeild í Fossvogi eru börn og ungt fólk. Foreldrar barna og aðrir aðstand- endur eru oft undir miklu and- legu álagi og skiptir því miklu að hafa næði og gott rými á staðn- um. Þar er hins vegar einungis eitt aðstandendaherbergi. Reynt hefur verið að koma til móts við fólk með því að setja upp skilrúm inni í herberginu þegar aðstand- endur fleiri en eins sjúklings eru á gjörgæsludeild á sama tíma, en sú staða kemur daglega upp. Gert er ráð fyrir að með nýbyggingum Landspítala á einum stað batni aðstaða fyrir sjúklinga og aðstandendur til mikilla muna. Það tengist ekki síst því að þar verða einbýli fyrir alla sjúklinga. Á einbýlum geta sjúklingar notið friðhelgi einka- lífs, sem ekki er hægt að bjóða öllum sjúklingum upp á eins og staðan er í dag. Aukið rými skap- ast fyrir aðstandendur sem auð- veldar þeim að dveljast nærri sínum nánustu. Fleiri mikilvæga þætti má nefna. Undanfarin ár hefur orðið mikil þróun í tækjum sem tengj- ast heilbrigðisþjónustu. Það veit- ir okkur tækifæri á að bæta þjón- ustu við sjúklinga. Ný tæki sem auka möguleika á bættri meðferð mikið veikra sjúklinga á gjör- gæslu taka mikið rými. Vegna þrengsla á deildinni nær hún ekki að uppfylla alþjóðlega með- ferðarstaðla, sem m.a. gera ráð fyrir því að læknar og hjúkrun- arfólk hafi sem best aðgengi að sjúklingnum. Á þessu verður bót með nýjum spítala. Að lokum skal nefnt að aðstaða starfsfólks batnar verulega á nýjum spítala og aukin hag- kvæmni næst fram. Með sam- einingu gjörgæsludeilda í Foss- vogi og við Hringbraut á einum stað fæst betri yfirsýn og hægt er að samnýta starfsfólk og tæki betur. Með sameiningu kynn- ist starfsfólk fleiri sviðum gjör- gæslustarfseminnar, sem bætir fagþekkingu og gerir starfið fjöl- breyttara og eftirsóknarverðara. Brýnt er og tímabært að sam- eina starfsemi gjörgæsludeild- anna á einum stað. Með nýjum spítala fást miklar umbætur fyrir þann hóp sem starfsemi spítala snýst um, en það eru sjúklingar þessa lands. Berum hag þeirra fyrir brjósti með því að tryggja öryggi og gæði þeirr- ar þjónustu sem þeir eiga rétt á. Betri aðbúnaður sjúklinga í augsýn Þvert á það sem margir halda leitar aðeins lítill hluti rúmlega 10 milljóna flóttamanna í heim- inum hælis í Evrópu og aðeins brotabrot þeirra endar á Íslandi. Langflestir flóttamenn leita hælis í nágrannaríkjum heimaríkis. Þannig eru bara í Pakistan, Íran og Sýrlandi tæplega 3,5 milljónir flóttamanna. Þess er vert að minn- ast að ekki eru margir áratugir síðan flóttafólk flúði Evrópuríki í stórum stíl og hver segir að slíkt geti ekki gerst aftur. Á sama tíma hafa hins vegar ríki Evrópusambandsins og fleiri Evrópuríki hert á aðgerðum til að koma í veg fyrir, stjórna og berjast gegn straumi flóttamanna til álf- unnar. „Ólögleg“ leið er hins vegar því miður oft eina leið flóttamanna til Evrópu. Þeir eiga oft ekki eða fá ekki vegabréf frá stjórnvöldum í heimaríkinu og einnig er mjög ólík- legt eða ómögulegt fyrir flóttamenn að óska eftir vegabréfsáritun til að komast til Evrópuríkis til að sækja um hæli. Þeim yrði að öllum líkind- um synjað. Sá sem neyðist til að flýja heima- land sitt verður því oft að segja ósatt um tilgang ferðarinnar, verða sér úti um falsað vegabréf eða jafn- vel að sigla yfir opið haf á lélegu fleyi í von um að ná landi. Allir kostirnir eru slæmir og sá síðasti að auki lífshættulegur. Þannig er talið að þúsundir karla, kvenna og barna drukkni árlega í Miðjarðar- hafinu á leiðinni frá Norður-Afríku til Evrópu. Þeir sem neyðast til að nota fölsuð vegabréf eru síðan oft handteknir og sviptir frelsi sínu til lengri eða skemmri tíma við kom- una til Evrópu fyrir það að nota neyðarúrræði til að bjarga sér frá ofsóknum eða öðrum hættulegum aðstæðum. Þótt Ísland sé fámennt ríki getum við lagt okkar af mörkum, t.d. með því að tala fyrir því að opna löglega leið fyrir flóttafólk til Evrópu í leit að vernd og að bjóða hingað fleira flóttafólki en nú er gert í samvinnu við Flóttamannastofnun SÞ. Ísland ætti einnig að tryggja að flóttamenn séu ekki fangelsaðir fyrir að nota fölsuð vegabréf þegar þeir flýja ofsóknir eða stríðsátök. Hérlendis hefur margt verið unnið til bóta í málefnum hælis- leitenda. Meðferð hælisumsókna er hins vegar alltof löng og hana verð- ur að stytta verulega án þess þó að hvikað verði frá gæðum. Stjórn- völd verða að tryggja að sá sem sækir um hæli fái skjóta og réttláta úrlausn á hælisumsókn og koma í veg fyrir að umsóknir liggi nánast óhreyfðar sökum skorts á starfs- fólki. Slík töf leiðir til meiri kostnað- ar fyrir ríkissjóð og ómældra þján- inga fyrir þann sem bíður. Meiri málshraði þýðir sparnað fyrir hið opinbera og um leið mannúðlegri meðferð. Alþjóðadagur flóttamanna Sífellt aukin krafa er á gæða- og öryggismál á sjúkrahúsum. Reynslan sýnir að sjúkrahús á Vesturlöndum eru ekki eins örugg og halda mætti og á undanförnum árum hefur orðið mikil vitundar- vakning um þessi mál og öflug alþjóðasamtök sett þau í forgang. Neytendur gera vaxandi kröfur til þess að þjónustan sé bæði skilvirk og örugg. Segja má að spítalar séu í eðli sínu óöruggir, vegna þeirra flóknu verkefna sem þeir sinna og þess hversu viðkvæmir skjólstæð- ingar þeirra eru. Þess vegna er brýnt að gera sérstakar ráðstafanir á sjúkrahúsum til að auka öryggi og gæði þjónustunnar og vinna stöðugt að umbótum á starfseminni. Í starfsáætlun Landspítala fyrir árið 2012 til 2013 sem nýlega kom út eru öryggi og gæði einmitt sett í forgang. Lögð hefur verið sérstök áhersla á að efla öryggis- og gæða- menningu og auka enn frekar fag- mennsku í vinnubrögðum og skil- virkum verkferlum. Þessi áhersla, og frábær frammistaða starfsfólks Landspítala, hefur gert mögulegt að standa vörð um öryggi sjúklinga þrátt fyrir mikinn niðurskurð. Síð- astliðin þrjú ár hafa einkennst af því að draga hefur þurft úr kostnaði á Landspítala enda hafa fjárfram- lög ríkisins til spítalans lækkað um 23% á þeim tíma. Ef tryggja á áfram gæði og öryggi þjónustunnar þarf að verða breyt- ing á. Ef til frekari niðurskurðar kemur þarf að leggja af einhverja þjónustu en til að halda áfram frek- ari uppbyggingu er óhjákvæmilegt að fjárveitingar verði auknar og aðbúnaður bættur. Mikilvægt skref í þá átt er endurnýjun á húsnæði Landspítala og nauðsynleg endur- nýjun á tækjabúnaði. Einnig þarf að tryggja nýliðun og festu í starfi lækna og hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta. Slík sókn kostar óhjákvæmilega fjármuni enda eru húsnæði, tækjakostur og annar aðbúnaður forsendur þess að hægt sé að tryggja mönnun, öryggi og gæði. Sem faglegir ábyrgðar- menn munum við leitast við að efla enn frekar öryggis- og gæðastarf á spítalanum en til þess þurfum við hjálp íslensks samfélags og fjárveit- ingavalds til að tryggja nauðsynleg- ar fjárveitingar, endurnýjun á hús- næði og tækjabúnaði. Landspítali er öryggisnet í eigu og þágu þjóðar og það er sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja forsendur fyrir far- sælu starfi til framtíðar. Landspítali – öryggisnet í eigu og þágu þjóðar Alþjóðamál Kristján Sturluson framvkæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi Heilbrigðismál Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala Nýr Landspítali Kristín Gunnarsdóttir deildarstjóri á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.