Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag ÞJÓÐKIRKJAN Fjórir starfsmenn þjóðkirkjunnar voru sakaðir um kynferðisbrot á síðasta ári. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins snýr eitt málið að Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi. Skýrsla fagráðs þjóð kirkjunnar um meðferð kynferðisbrota fyrir árið 2011 var birt Biskupsstofu í júlí. Þar kemur fram að allir einstaklingarnir sem ásakaðir voru hafi starfað í þjónustu á vegum kirkjunnar. Einu þeirra mála var lokið um síðustu áramót af hálfu fagráðsins. Ekki er hægt að fá upplýsingar um hversu margir einstaklingar leituðu til fag ráðsins í fyrra eða hafa leitað til þess frá því það tók til starfa. Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðsins, vill ekki tjá sig um einstök mál og vísar í skýrsluna. „Þetta er byggt upp þannig að einstök mál eru ekki aðgreind sérstaklega,“ segir hann. „Ég vil ekki tjá mig um neitt umfram skýrsluna.“ Síðan árið 1998, þegar f agráðið tók til starfa, hafa borist ásakanir um kynferðisbrot á hendur 18 einstaklingum í þjónustu kirkjunnar. Af þessum málum voru sex enn á borði fag ráðsins um síðustu áramót. Í þremur þessara 18 tilvika hefur fag ráðinu borist fleiri en ein ásökun á hendur sama aðila. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, telur eðlilegt að víkja fólki úr starfi á meðan mál þess er skoðað. „Það er mjög óeðlilegt að fólk sem sakað er um kynferðisbrot, og rökstuddur grunur er fyrir því, sé ekki sett í frí á meðan verið er að rannsaka málið,“ segir biskup. „En það má heldur ekki gleyma því að það eru til ásakanir sem koma fram án þess að fótur sé fyrir þeim.“ - sv / sjá síðu 6 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 18 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Fólk v i í 9. ágúst 2012 185. tölublað 12. árgangur starfsmenn þjóð- kirkjunnar hafa verið sakaðir um kynferðisbrot síðan fagráð kirkjunnar tók til starfa árið 1998. 18 SUNDFÖTIN STÆKKASundfötin frá Pret-A-Surf hafa vakið athygli allra helstu tísku- blaða heimsins. Þau voru í upphafi hönnuð fyrir konur sem vildu stunda sjósport. Sundfötin reyndust hins vegar falla öllum konum vel í geð, enda vilja þær verjast sólinni meira en áður. H ótel Berg er nýlegt hótel sem stendur á einum fallegasta stað Suðurnesja, við smábátahöfnií Keflavík Þ á vefsíðunni Tripadvisor en þar fær hótelið fullt hús sti HEIMILISLEGT HÓTELHÓTEL BERG KYNNIR Hótel Berg er nýlegt hótel í nágrenni Keflavíkur. Hótel- ið er orðið eitt stigahæsta hótelið á Íslandi á einum stærsta bókunarvef ver- aldar, Booking.com, þrátt fyrir að vera aðeins ársgamalt. Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Teg. 12047 - mjög fallegur í C,D,E skálum á kr. 5.800,- buxur í stíl á kr. 1.995,- GLÆSILEGT NÝTT SNIÐ Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Lokað á laugardögum í sumar Enn fleiri kirkjunnar þjónar ásakaðir um kynferðisbrot Fjórir starfsmenn þjóðkirkjunnar voru sakaðir um kynferðisbrot í fyrra. Einn þeirra er Ólafur Skúlason. Alls hafa 18 starfsmenn verið ásakaðir. Eðlilegt að víkja fólki úr starfi þegar mál eru könnuð, segir biskup. Nýr tilboðsbæklingur er í blaðinu í dag 10 GB Stærsta 3G net landsins 500 kr. Svona á samband að vera. Tal er á 3G neti Símans G3 G2 Austur fyrir fjall Baldur Kristjánsson sýnir 40 ljósmyndir frá Asíureisu sinni á Skólavörðustíg. popp 46 Hlakkar til efri áranna Siv Friðleifsdóttir alþingismaður fagnar fimmtugsafmælinu á Grænlandi. tímamót 22 FÓLK Söngkonan Védís Hervör Árnadóttir hyggst hefja sólóferil sinn að nýju og ætlar að einbeita sér að tónlist- inni. Védís ætlar að leika nýjar lagasmíðar ásamt eigin- manni sínum í tónleikaröð Ragn heiðar Gröndal á Café Haiti annað kvöld og verða það nokkurs konar endur- komutónleikar Védísar sem sólólistamanns. „Ég hef verið í góðu samstarfi við lagahöfundateymi í London frá árinu 2003 svo ég hef verið að gera fullt tengt músík,“ segir hún um vinnu síðustu ára en hún hefur minna flutt eigið efni. „Þegar Ragga bauð mér að vera með sló ég til. Þetta var akkúrat tíminn til að koma út úr skápnum með nýja efnið.“ - hþt / sjá síðu 46 Védís Hervör flytur nýtt efni: Hefur sólóferil- inn að nýju VÉDÍS HERVÖR ÁRNADÓTTIR STJÓRNSÝSLA Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, segir að rekstrar áætlanir Hörpu hafi verið óraunhæfar og þær hefði þurft að endurskoða. Hún segir að ákveðið hafi verið að bíða með ýmsar breytingar þar til reynsla væri komin á reksturinn. Því hafi verið beðið um úttekt eftir fyrsta heila rekstrarárið. „Hinar gömlu rekstrar áætlanir voru endurskoðaðar þar sem þær voru taldar óraunhæfar. Við vorum hins vegar líka með- vituð um að áhætta væri fólgin í þessu. Margir höfðu áhyggjur af tónlistar - og menningar- þættinum, en kannski er það að koma á daginn að það eru frekar aðrir þættir sem þarf að skoða.“ Katrín segir að eigendur hússins, ríki og Reykjavíkurborg, muni skoða alla þætti rekstrar hússins, bæði auknar tekjur og hagræðingu. „Það er mikilvægt að báðir aðilar taki sína ábyrgð á lausn va nda ns. L eigusa mni ngar sinfóníunnar og óperunnar eru ekki undanþegnir þessari skoðun. Ríkið hefur sagt að það ætli ekki að setja fé í rekstur hússins, en styrkja það með því að finna þessari starfsemi, sem styrkt er af ríkinu, þar stað.“ - kóp / sjá síðu 10 Ríki og Reykjavíkurborg þurfa að skoða alla þætti rekstrar Hörpu: Rekstraráætlanir voru óraunhæfar HLÝTT AUSTAN LANDS Í dag verður strekkingur á NV- og V- verðu landinu. Skýjað að mestu og dálítil rigning eða súld S- og V- til en bjart austan lands. Hiti 13-23 stig, hlýjast A-lands. VEÐUR 4 15 14 16 18 22 DROTTNING EINN DAG Draggdrottningin Ivana var einbeitingin uppmáluð þegar hún undirbjó sig fyrir að stíga á svið í Draggkeppni Íslands í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Þetta var fimmtánda árið í röð sem keppnin um draggkóng og drottningu Íslands fer fram á hér á landi en alls tóku níu þátt að þessu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FH-ingar á toppinn Tíu KR-ingar töpuðu í Eyjum og FH-ingar skutust í toppsæti efstu deildar. sport 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.