Fréttablaðið - 09.08.2012, Page 2
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR2
SKATTAMÁL Virðisaukaskattur á gistingu gæti
hækkað úr 7%, lægsta skattþrepinu, í 25,5%,
almenna skattþrepið, í nýju fjárlagafrum-
varpi. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær
en Samtök ferðaþjónustunnar eru mjög gagn-
rýnin á hugmyndina.
Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra
segir að margar hugmyndir hafi verið
ræddar við vinnslu fjárlagafrumvarpsins
eins og eðlilegt sé. „Það lak út að við hefðum
verið að hugsa á þessum nótum en við viljum
tala við hagsmunaaðila áður en við ræðum
þessar hugmyndir frekar við fjölmiðla,“
segir Oddný.
Alþingi samþykkti á síðasta ári nýjan skatt
sem heitir gistináttagjald. Gjaldið felur í sér
að hótel og aðrir gististaðir þurfa að greiða
100 krónur fyrir hverja gistinótt gesta sinna.
Oddný segir það ekki launungarmál að
gjaldið hafi ekki skilað þeim tekjum í ríkis-
sjóð sem vonast var eftir. Því hafi verið
ræddar aðrar leiðir til að afla fjármuna fyrir
uppbyggingu á innviðum ferðaþjónustunnar
en gjaldinu var ætlað að renna til slíkra verk-
efna.
Samtök ferðaþjónustunnar brugðust
ókvæða við frétt RÚV frá því í gær. Í tilkynn-
ingu sem samtökin sendu frá sér segir að
skatturinn muni þýða 17,3% hækkun á verði
gistingar í landinu. Þá segir enn fremur að
slík hækkun muni skattpína þá hratt vaxandi
atvinnugrein sem ferðaþjónustan er út af
markaðnum og auka svarta atvinnustarfsemi.
Loks kom fram í tilkynningunni að fjár-
mála- og iðnaðarráðherra hefðu óskað eftir
fundi með forystu samtakanna til að ræða
þessar hugmyndir. - mþl
Samtök ferðaþjónustunnar segja hærri virðisaukaskatt á gistingu geta valdið ferðaþjónustunni miklum skaða:
Hækkun á virðisaukaskatti gistingar skoðuð
BRUNI Þyrla frá Landhelgisgæsl-
unni flaug vestur til Súðavíkur-
hrepps í gær til að aðstoða við
slökkvistarf við Hrafnabjörg í
Laugardal en þar hefur logað
eldur í sinu síðustu daga.
Eldurinn kviknaði á föstudag
en talið er að hann hafi kviknað
út frá grilli eða sígarettuglóð.
Slökkviliðsmenn hafa glímt við
eldinn síðan en töldu sig hafa náð
að ráða niðurlögum hans á þriðju-
dagskvöld.
Í gær var hins vegar mjög
hvasst á svæðinu og fór eldurinn
að breiðast út á ný. Þegar verst
lét í gær logaði í sinu á alls
þriggja hektara svæði. - mþl
Eldur brunnið frá föstudegi:
Sina brennur
við Hrafnabjarg
Rændi konu á tíræðisaldri
Ungur maður rændi veski, með 10
þúsund krónum og greiðslukorti, af
91 árs gamalli konu í Reykjavík síð-
degis í gær. Samkvæmt lögreglunni
virðist sem ræninginn hafi fylgst með
ferðum konunnar áður en hann lét til
skarar skríða. Konunni heilsast vel en
var brugðið að sögn lögreglu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS
Ásdís, ætlið þið að teygja
lopann?
„Jú, því eflaust verða margir
skemmtilegir hnökrar á þræðinum.“
Ásdís Birgisdóttir er annar eigandi Lopa
og bands sem stendur fyrir alþjóðlegri
prjónaráðstefnu í Borgarnesi.
SKIPULAGSMÁL „Það veit enginn
hvernig áætlunarferðir hingað í
eyna verða þegar vegir á Barða-
strönd hafa verið bættir,“ segir
Ingveldur Eyþórsdóttir, for-
maður Framfarafélags Flateyjar.
Flatey er í Reykhólahreppi sem
vill fjölga húsum í eynni með
nýjum byggingarlóðum. Gert var
deiliskipulag með fimm nýjum
lóðum en því síðan breytt vegna
margra athugasemda. Ingibjörg
Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri
Reykhólahrepps, segir nýja til-
lögu fela í sér fjórar lóðir; þrjár
fyrir frístundahús og eina fyrir
verslun og þjónustu.
„Vatnið kemur hingað með
Baldri og við óttumst hvað verður
ef hann hættir að ganga samfara
batnandi samgöngum í landi. Hér
getur orðið vatnsskortur eins og
staðan er núna og ekki batnar
það með fleiri húsum,“ segir Ing-
veldur um viðhorf þeirra sem
leggjast gegn nýbyggingum.
Eins og er fyllir Breiðafjarðar-
ferjan Baldur á tanka vatns-
veitunnar í Flatey. Ingveldur
segir borun eftir vatni mundu
verða gríðarlega kostnaðarsama.
Sama gildi um vatnslögn upp á
fastalandið.
Ingibjörg sveitarstjóri segir
athugasemdir hafa borist við
nýja deiliskipulagið eins og það
fyrra og að málið bíði afgreiðslu.
„Það lengdist aðeins á málinu því
við vildum taka tillit til athuga-
semdanna,“ segir Ingibjörg.
Aðfinnslurnar lúti að frárennslis-
málum og of miklum ágangi í
eynni auk vatnsmálsins. Ingveldur
í Framfarafélaginu segir að búast
megi við kærum verði skipulagið
samþykkt í sveitarstjórn.
Ingibjörg segist hafa heyrt að
stækka megi vatnsveituna og
flytja meira vatn út í Flatey til
að anna meiri eftirspurn. Ekkert
sé komið fram um að Baldur
hætti áætlun og að alltaf verði
einhverjar siglingar út í Flatey.
„Ég á ekki von á öðru en að það
finnist lausnir,“ segir hún.
Þótt bygging húsa á nýjum
lóðum í Flatey sé í biðstöðu er nú
unnið að því að smíða nýtt þak
yfir gamla frystihúsið á staðnum.
Einkahlutafélagið F rísker
stendur að þeirri framkvæmd.
Ingveldur segir ætlun félagsins
að reka þar þjónustumiðstöð
fyrir ferðamenn og verslanir
auk þess að selja gistingu í aftari
hluta hússins. Bæði Ingveldur og
Ingibjörg fagna þessari bragar-
bót á frystihúsinu sem lengi
hefur verið í niðurníðslu. „Þetta
er mjög skemmtilegt og á eftir að
lyfta öllu svæðinu og ásýnd þess
upp,“ segir sveitarstjórinn.
gar@frettabladid.is
Óttast vatnsþurrð ef
Baldur hættir að sigla
Húseigendur í Flatey leggjast gegn lóðum undir ný hús. Bent er á að neysluvatn
kemur með ferju úr landi og að framtíðarrekstur sé óviss. Sveitarstjórinn segir
mið tekið af athugasemdum og að ekki sé von á öðru en að lausnir finnist.
BEÐIÐ EFTIR BALDRI Straumur ferðamanna í Flatey er vaxandi. Flestir koma með
bílaferjunni Baldri sem siglir tvær ferðir á dag milli Brjánslæks og Stykkishólms með
viðkomu í Flatey. Í baksýn sést gamla frystihúsið sem nú er verið að standsetja.
FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
www.skyr.is
Þú finnur fleiri
boostuppskriftir á
BRAGÐ AF SUMRI
Peru- og ananasboost
1 lítið Peruskyr.is
1 dl ananassafi
50 g frosnir blandaðir
melónubitar
0,5 dl kókosmjólk
6-8 ísmolar
NOREGUR Lögreglan í Ósló hefur
breytt leitinni að Sigrid Giskegj-
erdet Schjetne, sextán ára stúlku
sem saknað hefur verið frá því á
aðfaranótt sunnudags.
Minni áhersla er lögð á björg-
unaraðgerðir og meiri á rann-
sóknir. Yfir 700 ábendingar hafa
borist lögreglu og mun lögreglan
nú ráðast í að kanna þær nánar.
Í gær var stúlkunnar þó leitað
víða á Óslóarsvæðinu, leitað var á
nýjum stöðum og aftur farið yfir
svæðið í kringum leikskólann sem
slóð stúlkunnar lá að.
Lögreglan hefur að auki gert
ítrekaðar tilraunir til að komast
inn á Facebook-aðgang Schjetne
en án árangurs. Marga mánuði
getur tekið að fá réttarheimild hjá
bandarískum yfirvöldum til að fá
upplýsingar frá vefnum. - ktg
Áherslan á frekari rannsóknir:
Leitin í Noregi
hefur engan
árangur borið
SEXTÁN ÁRA Lögreglan hefur leitað að
Sigrid Giskegjerdet Schjetne síðan á
sunnudaginn. Sokkar hennar, skór og
farsími fundust nálægt heimili hennar.
SJÁVARÚTVEGUR Fiskvinnslan
Sæmá á Blönduósi hefur sagt
upp öllu starfsfólki sínu, tólf alls.
Uppsagnirnar taka gildi þann 1.
nóvember næstkomandi.
Haft er eftir Guðmundi Stefáni
Jónssyni, framkvæmdastjóra
Sæmár, á fréttavefnum Huni.is,
að ástæðan sé óvissa í rekstrar-
umhverfi fyrirtækisins en það
er kvótalaust og óvíst er um
byggðar kvóta. Hann segir enn
fremur að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um að loka fiskvinnsl-
unni heldur séu þessar aðgerðir
varúðarráðstöfun á meðan verið
sé að meta stöðuna. - jse
Sæmá segir öllum upp:
Uppsagnir á
Blönduósi
Kærður fyrir bílspark
Maður á þrítugsaldri hefur verið
kærður fyrir að skemma bíl fyrir
utan skemmtistað í Reykjanesbæ.
Maðurinn játar að hafa sparkað í
bílinn en segist hafa ætlað að sparka
í dekk en ekki hitt. Hann kveðst hafa
orðið pirraður á farþegum bílsins sem
hefðu legið á flautunni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MOSKVA Bandaríski tónlistar-
maðurinn Madonna kveðst biðja
fyrir því að stúlkurnar þrjár í rúss-
nesku pönkhljómsveitinni Pussy
Riot verði látnar lausar. Þetta kom
fram á tónleikum hennar í Moskvu
í fyrrakvöld.
Madonna sagði margar hliðar
vera á hverju máli og að hún vildi
hvorki sýna kirkjunni né yfirvöldum
óvirðingu. Sér fyndist hins vegar að
stúlkurnar þrjár – Masha, Katya og
Nadya – hefðu sýnt hugrekki.
„Ég held að allir hér, ef þið erum
komin hingað sem aðdáendur
mínir, telji að þær eigi rétt á að
vera frjálsar,“ sagði söngkonan sem
stutta stund klæddist skíðagrímu –
vörumerki Pussy Riot – á sviðinu og
hafði nafn hljómsveitarinnar letrað
á bert bak sitt.
Meðlimir Pussy Riot eru nú í
haldi og svara til saka fyrir óvirð-
ingu við rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjuna eftir tónlistarflutning í
einni af kirkjum hennar. Mynd-
band er til af uppákomunni þar sem
hljómsveitin biður Maríu mey að
losa Rússland við Pútín, þáverandi
forsætisráðherra og núverandi for-
seta landsins. Pútin hefur sjálfur
beðið stúlkunum vægðar. - gar
Bandarísk ofurstjarna á tónleikum í Moskvu talar máli rússneskrar pönksveitar:
Madonna biður fyrir Pussy Riot
MADONNA Í MOSVKU Klæddist
að sið Pussy Riot og bar nafn
hljómsveitarinnar á baki sér.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Við viljum tala
við hagsmuna-
aðila áður en við ræðum
þessar hugmyndir frekar
við fjölmiðla.
ODDNÝ G. HARÐARDÓTTIR
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Vatnið kemur hingað
með Baldri og við
óttumst hvað verður ef hann
hættir að ganga …
INGVELDUR EYÞÓRSDÓTTIR
FORMAÐUR FRAMFARAFÉLAGS FLATEYJAR