Fréttablaðið - 09.08.2012, Page 6

Fréttablaðið - 09.08.2012, Page 6
9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR6 KJÖRKASSINN Nú má bæði þvo og þurrka á aðeins um klukkustund Þvottavélar og þurrkarar í sérflokki Allt verður tandurhreint ÞJÓÐKIRKJAN „Það er afar óeðli- legt að fólk sem sakað er um kynferðis brot, og rökstuddur grunur er fyrir því, sé ekki sett í frí á meðan er verið að rannsaka málið,“ segir Agnes M. Sigurðar- dóttir, biskup Íslands. Fagráð þjóðkirkjunnar um með- ferð kynferðisbrota hefur tekið á móti ásökunum um kynferðis- brot á hendur alls átján starfs- mönnum kirkjunnar. Í þremur þessara átján tilvika hefur fag- ráðinu borist fleiri en ein ásökun á hendur sama aðila. Fagráðið var stofnað árið 1998. „Þetta er greinilega átján of mikið,“ segir Agnes. „Hins vegar vitum við að kirkjan stofnaði fagráðið vegna þess að það var talin þörf á því að koma málum sem þessum í skikkanlegan far- veg. Og það hefur greinilega sýnt sig að þörfin var fyrir hendi.“ Fjögur mál af þessum átján voru tilkynnt innan fimm ára frá því að brot átti sér stað, sjö innan tíu ára og tilkynnt var um fjóra einstaklinga ellefu til tuttugu árum eftir að þeir brutu á viðkom- andi einstaklingum. Þrjú mál af þessum átján eru enn eldri. Fjórir starfsmenn þjóðkirkj- unnar voru sakaðir um kynferðis- brot á síðasta ári, eins og fram kemur í ársskýrslu fagráðsins. Ekki fæst uppgefið hversu marg- ir einstaklingar leituðu til fag- ráðsins í fyrra, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snýr eitt málið að Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi. Tíu starfsmenn kirkjunnar voru ásakaðir um kynferðisbrot árið 2010. Tveimur var vikið úr starfi, en hvorugur starfaði sem prestur. Sum málanna áttu sér stað þegar þolendur voru börn að aldri og eru fyrnd að lögum. Agnes segist munu beita sér sér- staklega til að koma í veg fyrir að kynferðisbrot eigi sér stað innan kirkjunnar. „Auðvitað vil ég stuðla að því að svona mál finnist ekki í okkar kirkju frekar en í þjóðfélaginu öllu,“ segir hún. „Ég mun beita mér fyrir því. Þetta er eitthvað sem við höfum reynt að taka alvar- lega og það má aldrei sofna á verð- inum því þetta eru ekki mál sem klárast bara.“ sunna@frettabladid.is Hefur þú sótt viðburð í Hörpu? Já 38,5% Nei 61,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Líst þér vel á hugmyndir ríkisstjórnarinnar um að auka útgjöld til vaxta- og barnabóta auk Fæðingarorlofssjóðs? Segðu þína skoðun á Vísi.is Eiga að víkja þegar mál eru í skoðun Biskup Íslands mun beita sér gegn kynferðisbrotum innan kirkjunnar. Fjórir starfsmenn þjóðkirkjunnar voru bornir sökum um kynferðisbrot í fyrra. Þrír starfsmenn hafa verið ásakaðir af fleiri en einum aðila síðan 1998. BISKUP ÍSLANDS Agnes M. Sigurðardóttir segir að greinilega hafi verið þörf á stofnun fagráðsins og þau átján tilvik sem ráðið hefur fjallað um séu átján of mörg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Af þeim átján kirkjunnar þjónum sem sakaðir hafa verið um kynferðisbrot síðan 1998 voru átta enn starfandi innan kirkjunnar þegar ásakanirnar voru lagðar fram. Af þeim létu tveir af störfum eftir að fagráð þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota tók á málunum. Í einu tilviki var ákvörðun um endurráðningu í tímabundið starf dregin til baka. Átta ásakaðir meðan þeir gegndu starfi Auðvita vil ég stuðla að því að svona mál finnist ekki í okkar kirkju frekar en í þjóðfélaginu öllu. AGNES M. SIGURÐARDÓTTIR BISKUP ÍSLANDS MENNING Akureyrarbær verður 150 ára þann 29. ágúst næstkom- andi. Af því tilefni er efnt til tíu daga Afmælisvöku Akureyrar frá 24. ágúst til 2. september. Í tilkynningu frá bænum segir að megináherslan verði á ungu kynslóðina um opnunar helgina. Á afmælisdaginn sjálfan muni skólabörn gefa bænum ein- staka afmælisgjöf og Afmælis- kór Akureyrar flytja ný verk nokkurra tónskálda sem tengjast bænum. Seinni helgina verði ýmsir listviðburðir. Á tónleikum í Gilinu komi fram Akureyrar- hljómsveitir liðinna ára, meðal annars Baraflokkurinn. - gar Akureyri fagnar 150 árum: Afmælisvakan varir í tíu daga ANNA RICHARDS Margir listviðburðir verða á Afmælisvöku Akureyrar. BANDARÍKIN Hinn 54 ára Marvin Wilson var tekinn af lífi í Texas á þriðjudagskvöldið með eitur- sprautu. Lögmenn Wilsons sögðu að greindar- vísitala hans væri svo lág að hann væri ekki hæfur sam- kvæmt lögum til að hljóta dauðarefs- ingu en höfðu ekki árangur sem erfiði. Wilson var fundinn sekur um aðild að morði á upp- ljóstrara í eiturlyfjamáli fyrir tuttugu árum. „Ég kom hingað sem syndari en fer sem dýr- lingur. Taktu mig heim Jesú, taktu mig heim drottinn. Ég elska ykkur öll. Ég er tilbúinn,“ voru kveðjuorð Wilsons. - gar Treggáfaður líflátinn í Texas: Var syndari en er nú dýrlingur MARVIN WILSON FERÐAMÁL Icelandair flutti 279 þúsund farþega í millilandaflugi í júlí síðastliðnum en það eru fleiri farþegar á einum mánuði en nokkru sinni fyrr í 75 ára sögu félagsins. Þetta eru tíu pró- sentum fleiri farþegar en í sama mánuði í fyrra. Sætanýtingin var nánast hin sama eða um 85 prósent en í ár var boðið upp á fleiri flugferðir. Farþegum fjölgaði mest á leið- inni milli Íslands og Ameríku eða um 13 prósent. Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 38 þúsund í júlí í ár en sætanýting var fjórum prósentum minni í ár en sama mánuð í fyrra. - jse Icelandair sló met í júlí: Farþegafjöldinn aldrei meiri Fjör á húsnæðismarkaði Alls 132 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu vikuna 27. júlí til 2. ágúst. Heildarvelta á húsnæðis- markaði var 3.884 milljónir króna sem er nokkru meira en síðustu vikur. Vikuleg meðalvelta það sem af er árinu er 2.946 milljónir. VIÐSKIPTI Breytingar á stjórn FME Ingibjörg Þorsteinsdóttir hefur fengið leyfi frá setu í stjórn Fjármála- eftirlitsins. Valgerður Rún Benedikts- dóttir skrifstofustjóri hefur tekið sæti hennar tímabundið til 1. nóvember. Þá hefur Margrét Einarsdóttir lektor verið skipuð varamaður í stjórninni í stað Sigurðar Þórðarsonar. STJÓRNSÝSLA FERÐAÞJÓNUSTA Ríflega 112 þúsund erlendir ferðamenn yfirgáfu Ísland um Leifsstöð í júlí og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði. Gamla metið var sett í ágúst í fyrra þegar tæplega 102 þúsund erlendir ferða- menn yfirgáfu Ísland. Til samanburðar voru erlendir ferðamenn í júlí í fyrra alls tæp- lega 98 þúsund og fjölgaði því um 14,7% í mánuðinum milli ára. Yfir- leitt er ágúst mesti ferðamanna- mánuður ársins og því má búast við því að nýja metið verði slegið strax í þessum mánuði. Þar með hafa saman lagt 357 þúsund ferðamenn heimsótt Ísland fyrstu sjö mánuði ársins en það jafngildir 17,2% fjölgun milli ára en árið í fyrra var þó metár. Metfjöldi hefur hins vegar heimsótt Ísland í öllum mánuðum þessa árs hingað til. Utanlandsferðum Íslendinga hefur einnig fjölgað á árinu en í júlí fóru um 35 þúsund Íslendingar til útlanda um Leifsstöð. Fjölgaði þeim um 7,5% í mánuðinum miðað við sama mánuð í fyrra. Frá áramótum hafa tæplega 206 þúsund Íslendingar farið til útlanda og eru þeir um 5,5% fleiri en á sama tímabili árið 2011. - mþl Aldrei hafa fleiri erlendir ferðamenn sótt Ísland heim í einum mánuði: Ferðamannametið var slegið í júlímánuði FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA HAUKADALUR Búast má við því að nýja metið verði slegið strax í þessum mánuði en ágúst er yfirleitt mesti ferðamannamánuður ársins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.