Fréttablaðið - 09.08.2012, Side 18

Fréttablaðið - 09.08.2012, Side 18
18 9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR Ég hitti þær að loknum vinnudegi. Þær komu beint af vaktinni, dauð- þreyttar, eftir að hafa hjúkrað öldruðum á fjölmennri deild, undirmannaðri og vanbúinni af tækjum. Deildin er kölluð biðdeild. Hún var opnuð á Landakoti eftir að líknardeildinni þar var lokað þrátt fyrir að yfirstjórnendur LHS hefðu fengið 50 milljóna króna aukafjár- veitingu frá Alþingi eftir að Hollvina- samtök líknardeilda höfðu gengið á fund fjárlaganefndar. Deildinni var lokað í trássi við vilja Alþingis. Í „hagræðingarskyni“ var farið út í breytingar á líknardeildinni í Kópa- vogi og Oddfellowreglan látin greiða kostnaðinn að mestu. Þar átti, að sögn stjórnenda, að fjölga rúmum. Staðreynd- in er sú að rúmum fyrir deyjandi hefur fækkað og nýja deildin fullbúin er lokuð vegna manneklu. Það kann að líta betur út í reikniforritum yfirstjórnar LHS að láta aðra greiða reikningana en þetta er nú samt allt úr sjóðum samfélagsins. Í starfi mínu sem sóknarprestur hitti ég stundum fólk sem tjáir sig sorgmætt um þjónustuna sem í boði er fyrir aldraða við dauðans dyr. Hrunið gerði okkur skráveifu en samt eru til miklir fjármunir í þjóðfélaginu. Álitamál er hins vegar hvernig þeim skuli varið. Þar kemur til sögunnar sið- ferði okkar og reisn. Á Landakoti var búið að byggja upp frábæra líknardeild. Þegar til stóð að loka deildinni urðu Hollvinasamtök líknardeilda til með yfir 600 félögum. Samtökin hafa ekki lagt upp laupana, enda þótt orrustan um líknardeildina á Landakoti hafi tapast. Samtökin boða nú til ráðstefnu í Reykjavík 24. september nk. Þar verður fjallað um mótun heild- arstefnu í heilbrigðismálum þjóðarinn- ar. Við erum ein þjóð og þurfum öll að hafa aðgang að góðri heilbrigðisþjón- ustu frá vöggu til grafar. Nú er komið að þeim skilum í íslenskri sögu að þjóðin lætur ekki leng- ur skammta sér úr hnefa á sama hátt og hún gerði. Forðum daga flutti Lincoln forseti Bandaríkjanna ávarp í Gettys- burg og mælti þar fleyg orð um „stjórn fólksins, af hálfu fólksins og fyrir fólk- ið“. Þessi orð þurfa að verða leiðarljós okkar Íslendinga í öllum málum – þín vegna, af þinni hálfu, fyrir þig. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Þegar íslenska ríkið og Reykjavíkurborg ákváðu að taka yfir bygg- ingu og rekstur Hörpunnar í byrjun árs 2009 var það gert á grund- velli svokallaðrar yfirtökuáætlunar. Hún snerist bæði um ætlaðan kostnað vegna byggingar hússins, hver rekstrargjöld þess yrðu þegar það væri tilbúið og hvers konar tekjum það myndi skila. Líkt og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu á undanförnum dögum þá stóðust þessar áætlanir varla að nokkru leyti. Byggingarkostnaður hefur verið mun hærri en upphaflega var áætlað, rekstrarkostnaður meiri og tekjur mun lægri. Mest sláandi er að tekjur af ráðstefnu- haldi hafa verið 80 prósentum lægri en tilgreint var í upphaflegum áætlunum. Eigendur Hörpu þurfa að greiða um milljarð króna af lánum vegna byggingar hennar í ár. Til viðbótar er búist við að rekstrartap hússins verði um 400 milljónir króna og KPMG, sem gerði úttekt á rekstri Hörpu, segir viðbúið að áframhaldandi rekstrartap verði á næstu árum. Í ár var ákveðið að ráðast í skuldabréfaútgáfu til að fjármagna veisluna. Hún hefur að langmestu leyti verið seld til fjárfestinga- sveltra lífeyrissjóða, enda útgáfan með ríkisábyrgð. Alls þarf að ná inn 18,6 milljörðum króna í útboðinu til að gera upp sambanka- lán, fjármagna lokauppgjör við verktaka og aðrar innspýtingar skattgreiðenda. KPMG hvetur hins vegar til þess að útgáfan verði stækkuð í 19,3 milljarða króna til að gera Hörpunni kleift að fá 700 milljónir króna í nýtt rekstrarfé. Miðað við áætlun ársins í ár mun það fé brenna upp á innan við tveimur árum. Harpan, sem kostaði um 173 prósentum meira en upphaflega áætlað var, er ekki fyrsta framkvæmdin sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum sem hefur farið langt fram úr öllum áætlunum. Héðinsfjarðargöng kostuðu fullgerð rúma 15 milljarða króna, 19 prósentum meira en lagt var upp með. Ný Grímseyjarferja kostaði 167 prósentum meira en upphafleg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Þjóðarbókhlaðan kostaði helmingi meira en hún átti að gera. Nýjar skrifstofur Alþingis og Borgarbókasafnið bæði um 90 prósentum meira. Hús Orkuveitunnar fór að minnsta kosti þriðjung fram úr áætlun. Í rannsóknum Þórðar Víkings Friðgeirssonar, lektors við tækni- og verkfræðideild HR, og mastersnema hans kemur reyndar fram að um 70 prósent allra opinberra framkvæmda fara fram úr áætlun. Þegar um er að ræða stærri verkefni, eins og Hörpuna, þá eru um 90 prósenta líkur á framúrkeyrslu. Þessar staðreyndir boða ekki gott þegar horft er til þess að fram undan eru tvær mjög dýrar framkvæmdir á ábyrgð ríkisins. Í fyrradag hófst nefnilega vinna við Vaðlaheiðargöng, sem eiga að kosta um níu milljarða króna og borga sig upp með veggjöldum. Sérfræðingar hafa sagt þá áætlun fjarstæðukennda. Brátt verður síðan ráðist í byggingu nýs Landspítala. Áætlaður kostnaður hans eru rúmlega 50 milljarðar króna. Tvennt kemur til greina þegar ofangreint er skoðað. Annaðhvort eru stjórnmálamennirnir sem taka ákvarðanir um viðkomandi framkvæmdir vísvitandi þátttakendur í því að blekkja almenning eða að þeir undirbúi ákvarðanir sem binda gríðarlegt magn af almannafé í umdeildum framkvæmdum ekki nógu vel. Hvorugt er ásættanlegt. Á báðu þarf að axla ábyrgð. Það þykir hins vegar ekki nógu „íslenskt“ að gera það. Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is SKOÐUN Orðaleppanotkun Það getur verið áhugavert að fylgjast með tilraunum til að orða eitthvað þannig að það þjóni hagsmunum mælanda betur. Hvað er til dæmis neikvæð raunávöxtun? Jú, það er orðaleppur yfir hið ágæta íslenska orð tap. Nú er búið að finna upp enn einn orðaleppinn, í þetta skiptið í tengslum við Hörpu. Rekstur hennar á nefnilega að vera sjálfbær. Sá ágæti íslenskunnar þjónn, Mörður Árnason, bendir á þetta á heimasíðu sinni og les þannig úr að líklega þýði þetta að ekki eigi að vera halli á rekstrinum. Biðlað til samherja Mörður hefur annars verið ötull að spyrja gagnrýnna spurninga varðandi Hörpu. Nú gengur hann lengra og kallar eftir því að forráðamenn „Harpa house“, sem hvað hæst mærðu verkefnið fyrr á tíð, leiti sér að nýrri vinnu. Þar beinir hann meðal annars tilmælum til samflokksfólks síns fjármála- og utanríkis- ráðherra, sem tilnefna í stjórnina, að ógleymdu Samfylkingarfólki í meirihluta borgar- stjórnar. Aðeins ESB-afstaða Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, fullyrðir, í pistli á Evrópuvaktinni, að fá, ef nokkur, mál muni hafa meiri áhrif á val kjósenda í prófkjörum en afstaða frambjóðenda til ESB-aðildar. Styrmir segir aðildar- andstæðinga ekki geta kosið fylgis- menn á þing og öllum öðrum álitaefnum en aðild að ESB þurfi að víkja til hliðar. Óhætt er að segja að tónninn hafi verið sleginn fyrir kosninga- vetur. kolbeinn@frettabladid.is Opinberar framkvæmdir standast ekki áætlun: Íslensk ábyrgð Þín vegna, af þinni hálfu, fyrir þig Heilbrigðis- mál Örn Bárður Jónsson formaður Hollvinasamtaka líknardeilda

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.