Fréttablaðið - 09.08.2012, Page 20
20 9. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR
40 ár eru liðin frá því að and-legt þjóðarráð bahá‘ía á
Íslandi var fyrst kosið. Þjóðar-
ráðið fer með yfirstjórn bahá‘í
samfélagsins hér á landi. Í því
sitja níu meðlimir sem kosnir eru
til eins árs í senn á landsþingi
bahá‘ía. Bahá‘í (framborið: bahæ)
trúin á sér langa sögu á Íslandi.
Höfundar hennar, Bahá‘u‘lláh,
var hér fyrst getið á prenti árið
1908, er Þórhallur Bjarnarson,
síðar biskup, fór um hann svo-
felldum orðum í Nýja kirkju-
blaðinu: „Fyrir fjörutíu árum
reis upp dýrlegur kennimaður
og guðsvottur í Persalandi, og
hét hann Baha Ullah. Eins og við
mátti búast, dó hann píslarvættis-
dauða, andaðist í tyrkneskri prís-
und 1892. Margir fylgjendur hans
hafa látið lífið fyrir trúarskoðanir
sínar, en þær breiðast því betur
út. Kenningar hans eru að mörgu
leyti svipaðar kenningum kristin-
dómsins eins og mannúðlegast og
göfugast er með þær farið.“
Hólmfríður Árnadóttir, safn-
vörður í Listasafni Einars Jóns-
sonar, varð fyrst Íslendinga til að
taka bahá‘í trú 1924 og hún þýddi
fyrstu bahá‘í bókina á íslensku.
Svæðisráð bahá‘ía í Reykjavík
var fyrst kosið 1965. Árið 1975
fékk bahá‘í trúin formlega viður-
kenningu dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins samkvæmt lögum
um trúfélög utan þjóðkirkjunnar
sem samþykkt voru það ár. Síðar
fékkst opinber viðurkenning á
bahá‘í helgidögum. Upp úr 1970
var gert átak í kynningu bahá‘í
trúarinnar hér á landi og 1971
var haldin alþjóðleg bahá‘í ráð-
stefna í Reykjavík, sem sótt var
af rúmlega 800 manns frá 36 þjóð-
löndum.
Starf bahá‘ía að skógrækt í
landi Skóga í Þorskafirði hefur
vakið athygli. Það hófst með starfi
Jochums Eggertssonar sem var
einn af brautryðjendum skóg-
ræktar hér á landi og meðal fyrstu
bahá‘íanna. Starfi hans hefur
verið haldið áfram á þessum sögu-
fræga stað. Samkvæmt lögum um
landshlutabundin skógræktar-
verkefni er stefnt að því að a.m.k.
5% láglendis á Íslandi verði þakin
skógi árið 2040. Skógræktar-
verkefnið að Skógum er hluti af
þessari heildar mynd og bahá‘íar
telja mikilvægt að láta ekki
sinn hlut eftir liggja með öflugu
skógræktar átaki.
Bahá‘í heimssamfélagið tekur
virkan þátt í umræðu um málefni
framtíðar á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Fulltrúar íslenska
samfélagsins sóttu ráðstefnur SÞ
um umhverfi og þróun í Ríó, um
félagslega þróun í Kaupmanna-
höfn og um málefni kvenna í
Peking. Samfélagið hefur einnig
tekið þátt í umræðu hér á landi í
tengslum við ár SÞ og lagði á ári
fjölskyldunnar fram yfirlýsingu
um mikilvægi fjölskyldunnar í
þjóðfélaginu. Gefnar hafa verið
út á íslensku bahá‘í yfirlýsingar
um friðarmál, jafnrétti kynjanna,
hagsæld mannkyns og framtíðar-
þróun SÞ.
Bahá‘íar í Íran hafa um langt
skeið verið ofsóttir af þar lendum
yfirvöldum vegna trúar sinnar.
Um 300 þeirra hafa verið líf-
látnir á undanförnum áratugum
og fjöldi verið hrakinn frá heim-
ilum sínum, vísað úr skólum og
meinað um atvinnu. Þungir dómar
voru nýlega kveðnir upp yfir sjö
helstu leiðtogum samfélagsins.
Íslensk stjórnvöld hafa ávallt
stutt ályktanir á vettvangi SÞ
um mannréttindabrot í Íran þar
sem bahá‘ía er sérstaklega getið.
Slíkur alþjóðlegur þrýstingur er
ómetanlegur. Bahá‘í samfélagið
er rótgróið íslensku samfélagi,
tekur þátt í þvertrúarstarfi og
hefur átt gott samstarf við fjöl-
mörg samtök og einstaklinga sem
vinna að því að bæta íslenskt sam-
félag.
Á undanförnum árum hafa
bahaí‘ar um allan heim einbeitt
sér að framgangi þjálfunarferlis,
sem felur í sér gerð námsgagna,
fræðslu og þjálfun fólks á öllum
aldri. Þjálfunarferlið byggir
á námsefni sem samið er með
heildarmynd samfélags í huga
og myndar þannig samfellu milli
aldurshópa, barna, unglinga og
fullorðinna. Tilgangurinn er að
hafa áhrif til góðs í heiminum,
stuðla að friði og farsæld
mannlegs samfélags og vinna
að menningu þar sem áherslan
er fremur á andleg gildi en þau
efnislegu.
Þetta felur m.a. í sér að hefja
aftur til vegs og virðingar gildi
eins og traust, heiðarleika, sann-
leiksást og aðrar manndyggðir
sem virðast hafa fallið milli skips
og bryggju á tímum efnishyggju
og vantrúar. Unnið er með hug-
tök sem stuðla að friði, sáttum og
raunverulegum framförum eins
og jafnrétti, einingu og samráði.
Bahá‘í samfélög um allan heim
vinna að sama markmiði óháð
búsetu og aðstæðum. Hér eins
og annars staðar er þessi starf-
semi opin öllum, hvaða trú eða
lífs skoðanir sem þeir kunna að
aðhyllast. Öllum er boðið að taka
þátt í þessu starfi hvort heldur
sem um er að ræða bænastundir
sem næra andann eða sjálft náms-
ferlið sem miðar að því að byggja
upp nýja siðmenningu.
AF NETINU
Viðhöfn
Hjörleifur Stefánsson arkitekt skrifar merkilega grein í Fréttablaðið í morgun
sem rétt er að vekja athygli á. Maður hristir eiginlega bara hausinn yfir því sem
þar kemur fram.
[...] Hjörleifur fullyrðir beinlínis að menn hafi vísvitandi búið til
blekkingaráætlun um rekstur Hörpu.
Eðlilegt er og sjálfsagt að málið verði rannsakað af alvöru. Harpa er staðreynd
og rekstur hússins mun vonandi ganga betur á næstunni en verið hefur, en eigi
skattgreiðendur að borga brúsann í enn ríkari mæli en útlit var fyrir, þá eiga
þeir allan rétt á að fá að vita nákvæmlega hvernig til þessa húss var stofnað.
Hins vegar varð grein Hjörleifs líka til að ég fór að rifja upp tillöguna sem
hann stóð að ásamt fleirum. Tillögu Viðhafnar.
Það tónlistarhús hefði orðið mun sérkennilegra en það sem á endanum reis,
hvort sem mönnum finnst það fallegra eða ekki.
blog.pressan.is/illugi
Illugi Jökulsson
Samkvæmt lögum um landshlutabundin
skógræktarverkefni er stefnt að því að
a.m.k. 5% láglendis á Íslandi verði þakin
skógi árið 2040.
Dagana 28.–29. júní sl. var haldin alþjóðleg ráðstefna um einelti
á netinu í Sorbonne háskólanum í
París. Hún var haldin af samstarfs-
verkefninu COST Action IS801
Cyberbullying: coping with nega-
tive and enhancing positive uses of
new technologies, in relationships in
educational settings. Það starfar á
vegum Evrópusambandsins. Vefslóð
þess er https://sites.google.com/site/
costis0801/ og á henni má nálgast
frekari upplýsingar. Verkefninu er
stýrt af Peter K. Smith, prófessor
emeritus í sálfræði við Goldsmiths
háskólann í London.
COST verkefnið
Verkefnið fjallar um einelti við upp-
eldisaðstæður. Einelti á sér þó stað
að einhverju leyti hjá öllum aldurs-
hópum. En vissulega eru 11–16 ára
börn og unglingar að læra samskipti
og prófa hvað þau komast upp með
og í þeirra hópi eru afleiðingarnar
alvarlegastar. Það var flutningur
stríðni frá skólalóðinni út á netið og
á farsímana sem var upphaf þessara
rannsókna. Netið er öflugur miðill
og alvarleiki eineltis breytist mikið
með notkun þess og það stendur þá
líka yfir í frítíma, um helgar, jafn-
vel allan sólarhringinn og árásirnar
geta tengst nafni þolandans alla
ævi.
Erfitt er að gera sér grein fyrir
umfangi málsins, en fjöldi sjálfsvíga
ungra þolenda hefur vakið mikla
athygli. Þótt þau megi rekja til
eineltis eru þau jafnan skráð á aðrar
orsakir. Fram hefur komið að þung-
lyndi er algeng afleiðing eineltis, en
margir líkamlegir kvillar fylgja því
líka, enda líðan á líkama og sál oft
samtvinnuð.
Skilgreiningar
Vinnuhópur 1 í COST verkefninu
lagði á ráðstefnunni fram niður-
stöður rannsókna sem m.a. koma
fram í greininni Cyberbullying:
Labels, behaviours and definition
in three European countries sem
birtist í Australian Journal of Guid-
ance and Counselling, 20. árg. (2) á
árinu 2010. Höfundar eru Nocentini,
A. og fleiri.
Fram kom að algengustu formin
voru að senda meiðandi texta eða
skriflegt einelti, meiðandi mynd-
birting eða myndbirting sem brýtur
gegn friðhelgi einkalífs, sem er
sýnilegt einelti, að afla sér pers-
ónulegra upplýsinga um hinn einelta
eða upplýsingar sem leynt eiga að
fara eða að komast yfir netauðkenni
hans, sem er innrás í persónulegt líf
hans, og að fjarlægja hann úr net-
hópum, sem er útskúfun. Þetta eru
ný eineltisform frá því sem við-
gengist hefur á skólalóðinni, nema
útskúfun.
Við greiningu á neteinelti er
miðað við að það hafi verið gert
viljandi og sé meiðandi, að það sé
endurtekið hvað eftir annað innan
ákveðins tímaramma (t.d. viku), að
valdaójafnvægi sé til staðar þannig
að hinn einelti viti ekki hvernig
hann eigi að verja sig og að nafn-
leysi og opinberri birtingu hafi
verið beitt.
Í rannsókn sem tók saman niður-
stöður margra fræðigreina kom
fram að meiðandi vilji væri nánast
alltaf til staðar. Hins vegar eru
endurteknar árásir sjaldgæfari eða
í um 60% tilfella. Valdaójafnvægi
var í tæplega 30% tilvika. Í sömu
rannsókn kom fram að farsímar og
snjallsímar væru mest notaðir til
eineltis, en notkun hreyfimynda fer
vaxandi. Birtingar á YouTube eru
þannig mikið til umræðu í Banda-
ríkjunum, en þær þykja verulega
meiðandi og eru stundum kynferðis-
legs eðlis.
Aukin umræða
Vaxandi meðvitund og rannsóknir
hafa aukið skilning á málefninu.
Athyglin beinist sífellt meira að
gerandanum, en í upphafi beindist
hún að þolandanum, að veikleikum
hans og hvort hann hefði einkenni
sem kölluðu á hjálp. Þessi umskipti
eru afar mikilvæg, en til þessa hafa
þolendur hrökklast úr skólum vegna
eineltis, en reikna má með því að í
framtíðinni verði gerendur látnir
fara.
Í Ástralíu eru í gildi lög sem
banna einelti. Foreldrar koma með
farsíma og tölvur til lögreglu sem
sönnunargögn og kærur eru lagðar
fram. En margir sálfræðingar eru
andvígir því að unglingar komist á
sakaskrá vegna neteineltis sem þeir
telja að sé uppeldislegt verkefni for-
eldra og skóla. Þar í álfu er í gangi
rannsókn sem á að skýra frekar
mögulegt hlutverk lagasetningar í
eineltismálum.
Niðurlag
COST verkefnið hefur staðið yfir í
tæp fjögur ár og er að nálgast enda-
lok sín. Mikilli þekkingu hefur verið
safnað saman á vegum þess og nú er
verið að kynna hana og koma henni
í búning fyrir almenning og fræði-
menn. Evrópusambandið hefur sýnt
þessum málum áhuga og stjórn-
völd hér á landi takast á við þau á
margan hátt. Mikilvægt er að hefja
rannsóknir á neteinelti hér á landi.
Um neteinelti Að byggja upp
nýja siðmenninguSamfélagsmál
Haukur
Arnþórsson
stjórnsýslufræðingur
Trúmál
Eðvarð
T. Jónsson
eftirlaunaþegi og bahá‘í
MADONNA DI CAMPIGLIO / SELVA VAL GARDENA / CANAZEI
CANAZE
I
FRÁBÆR
VALKOS
TUR Í
NÝTT
MEIRA Á urva
lutsyn.is
Ítölsku Ölpunum!