Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.08.2012, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 09.08.2012, Qupperneq 28
FÓLK| Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir er nýútskrifaður fatahönnuður úr Listaháskóla Íslands. Í sumar fékk hún styrk til að gera rannsóknir á endur- vinnslu textíls og endurskapa efni með umhverfisvænum aðferðum. Verkefnið er í fullum gangi og Tanja hefur nýlokið við að setja saman texta um skaðsemi hefð- bundinnar textílframleiðslu og sjálfbæra tísku. VILL DREIFA BOÐSKAPNUM „Stefnan er að koma upplýsingunum á framfæri á heimasíðu fljótlega. Mig langar til þess að vekja fólk til umhugs- unar í fatakaupum. Það er svo auðvelt að fara í H&M og hrúga í körfuna hugsunar- laust og nota svo fötin kannski bara einu sinni. Ég vona að ég geti fengið fólk til að hugsa um hvaðan fötin koma, hvaða efni eru notuð og hvar þau eru framleidd, því það skiptir máli,“ segir Tanja og bætir brosandi við: „Ég er samt ekkert að predika yfir fólki að hætta að kaupa föt heldur bara að vera meðvitað á meðan.“ GERIR TILRAUNIR Næsta skref í verkefninu er tilrauna- starfsemi. „Ég er að byrja á verklega hlutanum og vinn þá aðallega út frá textíl. Mig langar að gera tilraunir með jurtalitun, safna gömlum efnum og gera tilraunir. Útkoman verður vonandi fata- lína sem ég myndi þá selja. Hluta af sölu- hagnaðinum hafði ég hugsað mér að gefa í gott málefni.“ Niðurstöður verkefnisins segist Tanja þó ekki ætla að selja. „Upphaflega hug- myndin var að þróa nýjar, umhverfis- vænar aðferðir úr öðrum þekktum eins og til dæmis jurtalitun. Höfundar- rétturinn skiptir mig þó engu máli heldur vil ég frekar vera öðrum hönnuðum inn- blástur og gefa þeim hugmyndir til að nýta og þróa áfram.“ FRAMTÍÐARDRAUMAR Framtíðin er spennandi hjá þessum unga hönnuði, en Tanja stefnir á frekara nám í textíl áður en hún heldur út í heim: „Mig langar til þess að sérhæfa mig í textíl og ætla þess vegna í textíldeildina í Mynd- listaskólanum í Reykjavík í haust. Eftir það langar mig til útlanda, annaðhvort í starfsnám eða mastersnám,“ segir Tanja og horfir þá helst til Belgíu og Hollands. Segja má að rannsóknarverkefni sum- arsins sé byrjunin á framtíðardraumnum, sem lýtur að frekari tilraunum: „Í fram- tíðinni langar mig að vinna með fólki sem hefur svipaðar hugmyndir og ég. Ég væri til í að vinna við að þróa umhverfisvænar aðferðir til að framleiða föt og textíl,“ segir Tanja og bætir við: „Mig langar ein- faldlega að hafa frelsi til að gera tilraunir. Ég vil að tilraunastarfsemi verði alltaf hluti af hönnun minni.“ ■ halla@365.is ÞJÓÐLEGT NAGLALAKK Þessir íþróttakonur létu þjóðarstoltið lýsa sér leið í vali á naglalakki. ÁFRAM MEXÍKÓ Aðdáendur mexíkóska fótboltaliðsins hvetja liðið áfram. HELLO KITTY Lin Yi Chun, sem keppir í skotfimi, klæðist hönskum með tígrisdýramynstri og notar vopn skreytt með Hello Kitty. BLÁR, HVÍTUR OG RAUÐUR Þessi áhorfandi mætti á frjálsíþróttakeppni leikanna. Auðvelt er að sjá hvaða þjóð hann styður. MYNDIR/AFP TILRAUNIR Í TEXTÍL Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir er fatahönnuður á framabraut og nýtir sumarmánuðina í rannsóknarvinnu á endurvinnslu textíls og umhverfis- vænum framleiðsluaðferðum. 4 | FÓ K | TÍSKA Lakkaðar neglur, húðflúr og skartgripir. Allt þetta og meira til nota íþróttamennirnir á Ólympíuleikunum í London til að skreyta sig með. Þeir vita sem er að augu heims- byggðarinnar eru á þeim og vilja líta sem best út meðan linsa myndavélanna beinist að þeim. Stemningin meðal áhorfenda á pöllunum er líka góð og þeir skarta oft hinum ýmsu búning- um. Hér eru nokkrir skrautlegir íþróttamenn og áhangendur. ÍÞRÓTTATÍSKA Á ÓL LITRÍK Íþróttamennirnir sem keppa á Ólympíuleikunum hætta ekki að hugsa um útlitið þótt þeir einbeiti sér fyrst og fremst að keppninni. SKRAUTLEGIR SOKKAR Bandarísk sundkona klæddist sokkum í fánalitunum þegar hún mætti til leiks í úrslitum í flugsundi. FLOTT Í BLEIKU Gabrielle Douglas vann gullverðlaun í fimleikum. Hún hefur sætt gagn- rýni fyrir bún-inga og hárgreiðslu. SUMARHÚSIÐ & GARÐURINN T ÍMARIT IÐ Ljósmynda- og plöntusýning 4. og 5. ágúst kl. 14:00 - 18:00 í Fossheiði 1, Selfossi Hjartanlega velkomin Upplifun um verslunarmannahelgina á Selfossi Áskrift í síma 578-4800 og á www.rit.is Áskrift í eitt ár kostar kr. 4.780 sé greitt með greiðslukorti. Þrjú eldri blöð fylgja með. Vandað og áhugavert lífsstílstímarit um allt sem viðkemur garðyrkju og sumarhúsalífi . Blaðið kemur út fi mm sinnum á ári og er uppfullt af fróðleik og skemmtilegu lesefni. APPELSÍNUGULAR GYÐJUR Þessar flottu konur voru mættar til að sjá hollenska hokkíliðið keppa. Búningar þeirra vísa í upphaf- legu Ólympíuleikana í Grikklandi. SPENNANDI VERK Tanja Huld fékk styrk til að gera rannsóknir á endurvinnslu textíls og endurskapa efni með umhverfisvænum aðferðum. Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.