Fréttablaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 9. ágúst 2012 41
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
1-0 Þórarinn Ingi Valdimarsson, víti (12.),
2-0 Guðmundur Þórarinsson (82.)
Skot (á mark): 18-2 (10-1)
Varin skot: Abel 1 - Hannes 0, Fjalar 8
ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 6 - Arnór Eyvar Ólafsson
6, Brynjar Gauti Gunnarsson 6, Rasmus Christian-
sen 6, Matt Garner 6 - George Baldock 6 (90.,
Ragnar Leósson -), Tonny Mawejje 5, Guðmundur
Þórarinsson 8* - Víðir Þorvarðarson 7 (90., Jón
Ingason -), Christian Steen Olsen 6 (87., Andri
Ólafsson -), Þórarinn Ingi Valdimarsson 7.
KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson - - Haukur
Heiðar Hauksson 5 (77., Emil Atlason -), Grétar
Sigfi nnur Sigurðsson - (6., Rhys Weston - (12.,
Fjalar Þorgeirsson 7)), Aron Bjarki Jósepsson 6,
Gunnar Þór Gunnarsson 5 - Baldur Sigurðsson
5, Bjarni Guðjónsson 5, Viktor Bjarki Arnarsson
6 - Kjartan Henry Finnbogason 5, Gary Martin 5,
Óskar Örn Hauksson 6.
* MAÐUR LEIKSINS
Hásteinsvöllur, áhorf.: 741 Garðar Örn Hinriksson (7)
2-0
Uppskriftir á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
HEIMAFRYSTUR
JÓGÚRTÍS
Búðu til girnilega blöndu af berjum og ávöxtum.
Þú getur notað bæði ferskt og frosið hráefni.
Blandaðu svo saman 350 g af grískri jógúrt, Gott í
matinn frá MS, 100 ml matreiðslurjóma, Gott í
matinn frá MS og 1-2 msk hunangi. Helltu
blöndunni í íspinnaboxin milli þess sem þú raðar í
þau ávöxtum og setur í frystinn. Eftir þrjár
klukkutíma slærðu í gegn hjá fjölskyldunni.
BURSTAR í vél-
sópa á lager
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- flestar
stærðir
ÓL 2012 Ásdís Hjálmsdóttir verður
í eldlínunni á Ólympíuleik-
vanginum í London í kvöld þegar
hún keppir í úrslitum spjótkasts
kvenna. Ásdís tryggði sér sæti í
úrslitum með glæsibrag en hún
þurfti bara eina tilraun til að
komast áfram og setti um leið nýtt
Íslandsmet – 62,77 m.
Stefán Jóhannsson, þjálfari
hennar, sagði við Fréttablaðið í
gær að Ásdís hefði verið fljót að
ná sér aftur niður og að hún væri
tilbúin fyrir keppni kvöldsins.
„Það er auðvitað nauðsynlegt
að núllstilla sig og henni hefur
gengið mjög vel að ná ein beitingu
á nýjan leik,“ sagði Stefán en
þau tóku létta æfingu í ólympíu-
þorpinu í gær.
Stefán segist hafa verið þess
fullviss að Ásdís næði að kasta
jafn vel og hún gerði. „Eins skrýt-
ið og það kann að hljóma þá var
ég handviss um það. Undirbúning-
urinn var mjög góður og svo var
upphitunin hjá henni róleg og góð.
Við vorum búin að leggja línurnar
og það kom allt fram í kastinu.“
Ásdís sagðist sjálf hafa verið
róleg og yfirveguð í kastinu. Þess
vegna segir Stefán að hún eigi
meira inni.
„Ég tel hana geta kastað mun
lengra. Hún náði mjög góðri stjórn
á tækninni í gær [fyrradag] vegna
þess að hún var á hraða sem hún
réði vel við. Ef hún leggur meiri
kraft í atrennuna og hittir á réttu
tæknina á hún mun lengra kast
inni.“
Tólf komust í úrslitin og eftir
fyrstu þrjú köstin verður fækkað
um fjóra í hópnum. Átta efstu fá
þá aðrar þrjár tilraunir og er það
nú markmið Ásdísar að komast í
þann hóp.
„Við verðum bara að sjá til
hvernig það gengur. Henni gekk
vel í undankeppninni en það
segir svo lítið um framhaldið,
enda getur allt gerst í úrslitum
Ólympíu leika.“
Úrslitin í spjótkastinu hefjast
klukkan 20.00 í kvöld að íslenskum
tíma en Ásdís er níunda í kast-
röðinni. - esá
Ásdís Hjálmsdóttir keppir í úrslitum spjótkasts kvenna á Ólympíuleikunum í London í dag:
„Veit að Ásdís getur kastað mun lengra“
MARKMIÐINU NÁÐ Ásdís hljóp í fang
þjálfara síns eftir að hún tryggði sér sæti
í úrslitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
8-liða úrslitin í gær
Ísland-Ungverjaland 33-34 (tvíframlengt)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 8
(11), Aron Pálmarsson 7 (17), Alexander Petersson
6 (10), Róbert Gunnarsson 5 (5), Arnór Atlason
4 (7), Ólafur Stefánsson 3 (10/1), Snorri Steinn
Guðjónsson (1/1), Ingimundur Ingimundarson (2)
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 15 (33,
45%), Björgvin Páll Gústavsson 4 (20/1, 20%)
Hraðaupphlaup: 10 (Guðjón Valur 4, Alexander 2,
Aron, Róbert, Arnór, Ólafur), Ungverjaland 10
Fiskuð víti: 3 (Róbert 2, Ólafur)
Utan vallar: 4 mínútur - Ungverjaland 8
Mörk Ungverjalands (skot): László Nagy 9 (18),
Gergo Iváncsik 5 (7), Gergely Harsányi 5/1 (8/2),
Barna Putics 4 (9), Máté Lékai 3 (5), Szabolcs
Zubai 3 (5), Gábor Császár 3 (8), Timuzsin Schuch
1 (1), Ferenc Ilyés 1 (2), Tamás Mocsai (2)
Varin skot: Nándor Fazekas 25/1 (58/1, 43%),
Roland Mikler 1/1 (1/1, 100%)
Spánn - Frakkland 22-23 (12-9)
Svíþjóð - Danmörk 24-22 (11-9)
- Ísland vann bæði lið Frakka og Svía í riðlinum.
HANDBOLTI Á ÓL