Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 2

Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 2
26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR2 Móhellu 2, 221 Hafnarfjörður Sími 555 3100 www.donna.is „Enn einn heitur dagur“ Fáðu gust úr vandaðri Honeywell viftu Benedikt, ertu að renna blint í sjóinn með þetta? „Nei, ég er fær í flestan sjó enda þarf ég ekki gleraugu í sjósundi.“ Benedikt Lafleur, sjósundkappi og listamaður, hyggst koma á fætur ferða- þjónustu tengdri sjósundi. Benedikt fékk í síðustu viku ferðaskipuleggjandaleyfi. UMHVERFISMÁL „Það er eitthvað mikið að ske þarna og mikið að,“ segir stangveiðimaðurinn Guð- mundur Falk á spjallsvæði vefs- ins veidi.is þar sem hann gerir stöðuna í lífríkinu í Kleifarvatni að umtalsefni. „Kafari sem ég þekki til fór í Kleifarvatn, og ekki bara á helstu staði þar sem kafað er, heldur við austurlandið líka og er mikið af dauðum fiski í botninum, bæði stór og smár og mikil rotnun,“ skrifar Guðmundur á veidi.is. Ekki náðist í Guðmund í gær en í færslu á spjallsvæðinu spyr hann hvort ekki þurfi að athuga með gæði vatnsins. Brennisteins- vetni streymi upp um sprungur á botni vatnsins og sé að aukast það mikið að það drepi fiskinn. Stangaveiðifélag Hafnarfjarð- ar hefur Kleifarvatn til umráða og selur þar veiðileyfi. Vilborg Reynisdóttir, formaður félagsins, kveðst ekki hafa vitneskju um stórfelldan fiskadauða í vatninu. „Við vildum helst að viðkom- andi kafari myndi láta okkur vita hvar þetta er svo við getum farið í einhverja rannsókn,“ segir Vilborg og bendir á að svæðið sé jarðfræðilega óstöðugt. „Það getur komið gas upp og fiskurinn synt yfir. Þetta gæti hafa gerst í mörg ár án þess að við vitum af því,“ bætir hún við og kveðst ætla að setja sig í samband við Veiði- málastofnun. „Ég ætla að athuga hvort þeir geti ekki liðsinnt okkur með þetta.“ Þórólfur Antonsson fiskifræð- ingur segir Veiðimálastofnun ekki hafa haft spurnir af fiskadauða í Kleifarvatni. Þórólfur minnir á að miklar breytingar hafi orðið við Kleifarvatn eftir Suðurlands- skjálftann árið 2000. Vatnsborðið hafi lækkað afar mikið en sé þó breytilegt og hverir kraumi undir yfirborðinu. „Það er því ekki að furða þótt eitthvað gangi á en við höfum ekki gert neinar rannsókn- ir á því,“ segir hann. Þórólfur segir ýmis efni koma upp með heita vatninu og eftir því sem yfirborð Kleifarvatns lækki hafi þessi efni hlutfallslega meiri áhrif. „Svo gæti þetta verið stað- bundið í vatninu og fiskurinn villst inn á einhver svæði sem eru slæm,“ segir hann og bætir við að Veiðimálastofnun vildi gjarnan að betur væri fylgst með Kleif- arvatni í kjölfar þeirra breytinga sem orðnar eru vegna jarðskjálft- anna. gar@frettabladid.is Fiskar í Kleifarvatni sagðir í andarslitrum Mikið er af dauðum fiski í Kleifarvatni samkvæmt spjallvef veiðimanna. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hyggst leita til Veiðimálastofnunar sem ekki hefur fylgst með stöðunni. Við ýmsu sé þó að búast vegna jarðfræði vatnsins. KAFARAR VIÐ KLEIFARVATN Vatnsborðið lækkaði um einn metra á einu ári eftir Suðurlandsskjálftann árið 2000 og flatarmál vatnsins minnkaði um fimmtung. Kaf- arar eru sagðir hafa komið auga á mikið af dauðum fiski. Veiðimenn óttast að vatnið mettist af brennisteinsvetni. MYND/HÉÐINN ÓLAFSSON ÞEKKIR ÞÚ TIL? Sendu okkur ábendingu á meira@frettabladid.is Svo gæti þetta verið staðbundið í vatninu og fiskurinn villst inn á ein- hver svæði sem eru slæm. ÞÓRÓLFUR ANTONSSON FISKIFRÆÐINGUR DÓMSMÁL Innanríkisráðuneyt- ið hefur úrskurðað að ekkert sé athugavert við ráðningu Mýr- dalshrepps á systursyni odd- vita hreppsins sem landvarðar við Dyrhólaey. Systursonurinn var ráðinn án auglýsingar og til þriggja mánaða. Ábúandi einnar jarðarinnar sem á land í Dyr- hólaey kærði ráðninguna. „Verður ekki annað séð en að Mýrdalshreppur hafi við val sitt á viðkomandi landverði byggt á málefnalegum sjónarmiðum,“ segir ráðuneytið sem kveður ekk- ert í gögnum málsins benda til að oddvitinn hafi komið að ráðningu systursonar síns. - gar Ráðning systursonar oddvita: Hafnar kröfu um ógildingu DYRHÓLAEY Ábúandi kærði ráðningu landvarðar. VIÐSKIPTI Össur hagnaðist um 10 milljónir Bandaríkjadala, jafn- gildi 1.242 milljóna íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri sem var birt í gær. Hagnaður er aðeins minni en á sama fjórðungi í fyrra þegar hann var 10,3 milljónir dala, en jókst lítillega frá fyrsta árs- fjórðungi 2012 þegar hann var 9,8 milljónir. Heildarsala fyrir- tækisins var 103 milljónir dala og jókst um þrjú prósent frá síðasta fjórðungi. - mþl Össur birtir fjórðungsuppgjör: Hagnaðist um ríflega milljarð SAMGÖNGUR Vegagerðin hefur ákveðið að umferðareyjar í tveimur þéttbýlishliðum inn í þjóðgarðinn á Þingvöllum verði teknar niður. „Eyjurnar og skilti verða fjar- lægð en vegmerkingarnar fá að halda sér. Að auki verða fræstar vegrifflur í merkta svæðið,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar. Að hans sögn eru breytingarnar bæði vegna þess hve vegfarendur hafi tjáð óánægju sína sterklega, auk þess sem lýsingu hafi vantað á veginn. „Alla aðskotahluti á veginum þarf að lýsa upp, til að vara fólk við. Slík lýsing var ekki til staðar og hefði verið erfitt og kostnaðar- samt að koma henni upp,“ segir G. Pétur. Vegagerðin harmar hvernig að framkvæmdinni var staðið. „Ljóst er að mistök voru gerð við fram- kvæmdina þar sem eyjurnar voru settar upp áður en yfirborðsmerk- ingar voru málaðar,“ segir í frétta- tilkynningu frá stofnuninni. G. Pétur vill þó ítreka að mikil- vægt sé að fólk fari eftir hraða- merkingum á staðnum, enda veg- urinn ekki gerður fyrir meiri hraða en 50 kílómetra á klukkustund. - ktg Umferðareyjurnar við inngangana að þjóðgarðinum teknar niður: Vegagerðinni urðu á mistök UMDEILD UMFERÐAREYJA Fjarlægja á umferðareyjurnar við innkeyrslur í Þjóðgarðinn á Þingvöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR LOS ANGELES, AP Dómari hefur ákveðið að að veita TJ Jackson, bróðursyni Michaels Jackson, tímabundið forræði yfir börnum poppgoðsins. Ástæðan er sögð mikil ólga innan fjölskyldunnar og að Kath- arine Jackson, forráðamaður barnanna, hafi farið til Arizona og ekki talað við börnin síðan 15. júlí síðastliðinn. Dómari í málinu sagði Kathar- ine ekki hafa gerst seka um að bregðast börnunum og sagði hana fá forræðið aftur þegar hún snýr aftur heim. - ktg Börn Jacksons sögð yfirgefin: Forræðið fært tímabundið Björgunarsveit kölluð til Frönsk kona slasaðist á fæti á göngu- leiðinni milli Reykjahlíðar og Kröflu í gær. Björgunarsveitarbíll sótti hana og færði á Heilsugæsluna á Mývatni. Konan var ekki talin alvarlega slösuð. BJÖRGUN Ein afgreiðsla í stað tveggja Póst- og fjarskiptastofnun hefur sam- þykkt beiðni Íslandspósts um að loka póstafgreiðslum fyrirtækisins í Árbæ og Grafarvogi. Þess í stað verður ný afgreiðsla opnuð að Höfðabakka 9. SAMGÖNGUR STANGVEIÐI Veiðin í Elliðaánum fór yfir 600 laxa á morgunvaktinni á þriðjudag. Dálítið hefur hægt á veiðinni síðari hluta júlímánaðar eftir frábært gengi fram að því. Uppistaðan í veiðinni í Elliða- ánum er smálax, allt niður í þrjú pund en algeng stærð er 4 til 5 pund. Samkvæmt skoðun á veiði- bókinni dagana 16. til 24. júlí virðist veiðast jöfnum höndum á maðk og flugu. Sjö laxar veiddust á morgun- vaktinni á þriðjudag og aðeins tíu laxar allan daginn þar á undan. Veiðin á sunnudaginn var hins vegar 23 laxar og 14 laxar voru skráðir á laugardaginn. Föstu- dagurinn í síðustu viku gaf 22 laxa. - gar Áfram veiðist í höfuðborginni: Yfir 600 laxar úr Elliðaánum ELLIÐAÁR Mögnuð veiðiperla í alfara- leið, segja menn um Elliðaár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON MANNRÉTTINDI Tugir komu saman í votviðri á Ingólfstorgi í gær til að sýna stríðshrjáðum almenningi í Sýrlandi samstöðu. Þar var þess krafist að íslensk stjórnvöld gerðu allt sem í þeirra valdi stæði til að stuðla að tafarlausu vopnahléi og lausn deilumála í landinu. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem hryggð var lýst yfir vegna ástandsins í Sýrlandi. „Umheimurinn getur ekki og má ekki standa aðgerðarlaus hjá þegar tugþúsundir saklausra barna, kvenna og karla eru stráfelld í þeirri valdabaráttu sem nú á sér stað í Sýrlandi,“ segir í ályktuninni. Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöf- undur og sérfræðingur í málefn- um Mið-Austurlanda, flutti ræðu á fundinum og tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson tók lagið. - sh Samstöðufundur á Ingólfstorgi lýsir yfir hryggð vegna ástandsins í Sýrlandi: Tugir kröfðust viðbragða frá Íslandi LÉTU REGNIÐ EKKI STÖÐVA SIG Fjöldi fólks hlýddi á ræður og tónlist á fundinum í gær. Samstaða var um að umheimurinn gæti ekki staðið aðgerðalaus og horft á voðaverkin í Sýrlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.