Fréttablaðið - 28.07.2012, Side 8
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR8
MENNING Óvissa ríkir um Ástar-
vikuna, hátíðina sem haldin hefur
verið á Bolungarvík síðastliðin
átta ár.
Soffía Vagnsdóttir, sem er upp-
hafsmaður og driffjöður henn-
ar, hefur gefið það upp að hún
muni ekki geta staðið fyrir hátíð-
inni, sem halda á í annarri viku
ágústmánaðar, að þessu sinni
vegna anna í ferðaþjónustunni og
breyttra aðstæðna. Það var því
útlit fyrir að Ástarvikan félli niður.
„Svo fékk ég fyrirspurn frá dug-
legum stúlkum um það hvað þurfi
að gera til að halda svona Ástar-
viku,“ segir Soffía.
„Nú bind ég vonir við það að þær
taki við kyndlinum, ástin sigrar jú
alltaf að lokum.“ - jse
Óvissa um Ástarvikuna:
Bolvíkingar
halda í ástina
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Kópa-
vogs segir lítið hafa miðað í
undirbúningi verkefnis um
uppbyggingu 44 hjúkrunar-
rýma við Boðaþing.
Þessar vistarverur eiga að
vera viðbót við 44 rými sem
þegar eru í notkun. Þetta
kemur fram í bréfi til Guð-
bjarts Hannessonar velferðar-
ráðherra.
„Bæjarfélagið hefur lagt á
það áherslu að staðið verði við
þá áætlun að hefja undirbún-
ing seinni hluta framkvæmda
við hjúkrunarheimilið en ljóst
er að áætlanir ráðuneytisins
þar um hafa ekki staðist,“ segir
bæjarráðið.
Bæjarráðið hefur óskað eftir
fundi með ráðherranum þar
sem farið verði yfir stöðuna og
næstu skref ákveðin. - gar
Bæjarráð Kópavogs langeygt:
Undrast tafir
hjá ráðuneyti
við vistheimili
SAMFÉLAGSMÁL „Nokkrar úrbæt-
ur voru gerðar á gæsluvellinum,“
segir Axel Guðmundsson, yfirflokk-
stjóri Vinnuskóla Hafnarfjarðar,
um gæsluvöllinn í Setbergshverfi í
Hafnarfirði. Gæsluvöllurinn heyrir
undir Vinnuskólann.
Fréttablaðið greindi í gær frá
óánægju móður með gæsluvöllinn.
Konan sagði börnin afskipt á vell-
inum en sjálf kom hún að dóttur
sinni þar sem þrír drengir höfðu
umkringt hana án þess að nokkur
skipti sér af.
„Tveimur starfsmönnum hefur
verið bætt við starfslið gæsluvall-
arins. Svo á jafnvel að aldursskipta
svæðinu eitthvað yfir mesta anna-
tímann. Við höfum góða aðstöðu
þarna, tvær leikskólalóðir sem nýtt-
ar verða til að skipta þessu eitthvað
niður,“ segir Axel.
Hann segist ekki hafa fundið
fyrir óánægju með gæsluvöllinn í
sumar heldur hafi fólk þvert á móti
verið ánægt með starfsemina.
„Gæsluvöllurinn væri ekki allt-
af yfirfullur ef fólki líkaði ekki
við þjónustuna. Í dag höfum við
bara heyrt góðar sögur. Fólk hefur
hringt hingað eða farið á gæsluvöll-
inn og lýst yfir ánægju sinni.“ - ktg
Gæsluvöllurinn í Setberginu fær fleira starfsfólk og starfið jafnvel aldurskipt:
Bæta starfið á gæsluvellinum í Setbergi
FULLT Gæsluvöllurinn í Setberginu hefur verið vel sóttur í allt sumar þrátt fyrir
frásögn móður um að börn séu látin afskipt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
KÍNA, AP Gu Kailai, eiginkona
fyrrverandi stjórnmálamannsins
Bo Xilai, hefur verið ákærð fyrir
morð á bresk-
um kaupsýslu-
manni, Neil
Haywood.
Fjölskyldu-
þjónn þeirra,
Zhang Xiaojun,
er einnig
ákærður í mál-
inu. Í ákærunni
segir að þjónn-
inn og eiginkon-
an hafi í sameiningu eitrað fyrir
Haywood, sem lést í nóvember.
Eiginmaður hennar þótti eiga
frekari frama vísan á flokksþingi
kínverska Kommúnistaflokksins
í haust en var sviptur embætti
nýverið vegna gruns um aðild að
morðinu á Haywood. - gb
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvar í heiminum fara Ólympíu-
leikarnir fram?
2. Hvað heitir Bandaríkjamaðurinn
sem myrti fjölda manns á forsýningu
Batman-myndar þar í landi?
3. Hvað hækkar verð bílastæða við
Laugaveg mikið í nýrri gjaldskrá?
SVÖRIN
1. Í Lundúnum. 2. James Holmes 3. Um
fimmtíu prósent.
BO XILAI
Kona ákærð fyrir morð:
Sögð hafa myrt
Breta með eitri
STJÓRNSÝSLA Samtök kaupmanna
og fasteignaeigenda við Lauga-
veg í Reykjavík mótmæla harð-
lega gjaldskrárhækkunum borg-
aryfirvalda í bílastæði við götur
í miðborginni. Þeir segja ekkert
samráð hafa verið haft við versl-
unareigendur og aðra hagsmuna-
aðila á svæðinu í tengslum við
hækkanirnar.
„Þær munu ekki hafa neitt
annað í för með sér heldur en
minni verslun. Við erum í mikilli
samkeppni við verslun á öðrum
verslunarsvæðum á höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Björn Jón
Bragason, framkvæmdastjóri
samtakanna, um gjaldhækkan-
irnar.
Karl Sigurðsson, borgar-
fulltrúi og formaður umverfis-
og samgönguráðs Reykjavíkur,
segir að gjaldbreytingar í bíla-
stæðin muni hafa þveröfug áhrif
og auka flæði umferðarinnar í
miðborginni. Þá er ökumönnum
bent á að leggja bílum sínum í
bílastæðahúsum í miðborginni
þar sem verð verður ekki hækk-
að og opnunartími lengdur frá og
með mánudegi.
Verslunareigendur benda hins
vegar á að verslun í miðborg-
inni eigi í mikilli samkeppni við
verslanamiðstöðvarnar á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem frítt er
í stæði og aðgengið í þau greitt.
„Reykjavíkurborg á fjöldann
allan af bílastæðum við önnur
verslunarsvæði en innheimtir
ekki bílastæðagjöld þar. Borgin
gætir því ekki jafnræðis í þess-
um efnum,“ bendir Björn Jón á.
Vilja verslunareigendur heldur
að borgin fari að tillögum þeirra
og stuðli að aukinni verslun og
mannlífi í miðborginni. „Liður í
því gæti verið lækkun bílastæða-
gjalda og fjölgun stæða,“ segir í
ályktun sem send var fjölmiðl-
um í gær. „Að sama skapi mundi
það auðvelda aðgengi að verslun-
um að fella niður gjaldskyldu á
svæðum nærri Laugavegi.“ - bþh
Kaupmenn og fasteignaeigendur við Laugaveg eru óánægðir með gjaldhækkanir í bílastæði í miðborginni:
Verslunareigendur ósáttir við hærra gjald
GÖNGUGATA Neðsta hluta Laugavegar hefur verið breytt í göngugötu. Það er annar
þyrnir í augu kaupmanna við götuna og nú hækkar gjald í bílastæði. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG