Fréttablaðið - 28.07.2012, Page 12
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR12
Vilhjálmur Einarsson
Vilhjálmur Einarsson var fyrsti
Íslendingurinn til að standa á
verðlaunapalli á Ólympíuleikum
en hann hreppti silfrið í þrístökki
í Melbourne 1956. Vilhjálmi er
minnisstætt þegar hann gekk inn
á leikvanginn ásamt fulltrúum
Íslands. „Þetta var fámennt en
góðmennt,“ segir hann og hlær.
„Við vorum ekki nema þrír, við
Ólafur Sveinsson fararstjóri og
Hilmar Þorbjörnsson sprett-
hlaupari. Þetta vakti nokkra athygli
og áströlsku dagblöðin höfðu á
orði að við værum fámennasti
hópurinn og sá sem var kominn
lengst að.
Ég fann ekki fyrir neinum
skrekk, bara tilhlökkun. Ég hafði
vandað undirbúninginn betur
en nokkru sinni, yfirleitt hafði ég
æft meðfram vinnu eða skóla
en nú einbeitti ég mér eingöngu
að þjálfuninni í tvo mánuði fyrir
mótið. Það þætti sjálfsagt ekki
mikið í dag.“ Hann segir það hafa
verið magnaða stund að standa
á verðlaunapallinum og horfa á
íslenska fánann blakta við hún.
„Ég veit svo sem ekki hvað rann í
gegnum huga mér á þeirri stund
ef nokkuð, eftir svona átök og
einbeitingu er eins og hugurinn
tæmist. En ég þarf ekki annð en
að lygna aftur augunum til að
endurupplifa þetta augnablik.“
HUGURINN TÆMDIST Á
VERÐLAUNAPALLINUM
Ísland á Ólympíuleikunum
Ísland tekur nú þátt í sínum 20. sumarólympíuleikum en leikarnir í London hófust í gær. Bergsteinn
Sigurðsson stiklar á stóru í þátttöku Íslendinga á Ólympíuleikunum í gegnum tíðina.
Kaffærðir í sundknattleik 1936
Eftir 24 ára fjarveru mættu Íslendingar á Ólympíuleikana í Berlín
1936 og kepptu í fyrsta sinn í viðurkenndum keppnisgreinum: frjáls-
um íþróttum og sundknattleik. Gengi þeirra á leikunum var slakt, ekki
síst sundknattleiksliðsins enda æfingaaðstaða léleg á Íslandi þar sem
menn náðu til botns í sundlaugunum. Ísland hefur aldrei keppt í sund-
knattleik síðan.
ALLT Á FLOTI Íslenska landsliðið í sundknattleik um borð í Dettifossi á leið á
Ólympíuleikana í Berlín 1936. Liðið reið ekki feitum hesti frá leikunum.
Fyrstu leikarnir
Íslendingar tóku fyrst þátt í
Ólympíuleikum á sumarleikunum
í London árið 1908, þrátt fyrir að
vera ekki fullvalda þjóð. Jóhann-
es Jósefsson glímukappi kom því
til leiðar að sjö manna hópur frá
Íslandi fór til London og sýndi
glímu. Íslenskir glímukappar
endurtóku leikinn í Stokkhólmi
1912 en þá var glíma formlega
viðurkennd sem sýningargrein og
miðast formleg þátttaka Íslands
á Ólympíuleikunum því við það
ártal.
Fyrstu konurnar
Anna Ólafsdóttir, Kolbrún Ólafs-
dóttir og Þórdís Árnadóttir
kepptu í sundi á Ólympíuleik-
unum í London 1948 og voru þar
með fyrstu konurnar til að keppa
á Ólympíuleikum fyrir hönd
Íslands. Hástökkvarinn Lára
Sveinsdóttir var fyrsta íslenska
konan til að keppa í frjálsum
íþróttum í München árið 1972.
FÁNINN VIÐ HÚN Finnbjörn Þorvaldsson fer fyrir íslensku ólympíuförunum inn á leikvanginn á Ólympíuleikana í London 1948. 20 íþróttamenn kepptu fyrir Íslands hönd á
leikunum, þar af fyrstu konurnar, sundkonurnar Þórdís Árnadóttir, Anna Ólafsdóttir og Kolbrún Ólafsdóttir. Þórdís er jafnframt yngsti keppandinn sem Íslendingar hafa átt.
314
Alls hafa 314
íþróttamenn
keppt fyrir
Ísland á sumar-
ólympíuleikum
síðan 1936 að
leikunum í ár
meðtöldum, þar
af eru 261 karl
og 53 konur.
Fjórum sinnum
á verðlaunapall
Íslendingar hafa fjórum sinnum
stigið á verðlaunapall á sumaról-
ympíuleikum. Vilhjálmur Ein-
arsson hreppti silfur í þrístökki í
Melbourne 1956, Bjarni Friðriks-
son fékk brons í júdó í Los Angeles
1984, Vala Flosadóttir fékk brons í
stangarstökki í Sydney árið 2000
og karlalandsliðið í handbolta
hlaut silfurverðlaun í Peking fyrir
fjórum árum.
BRONSIÐ Í HÖFN Vala Flosadóttir fékk
brons í stangarstökki á leikunum í
Sydney árið 2000.
SÉR Á PARTI Rúnar Alexand-
ersson er eini Íslendingurinn
hingað til sem hefur keppt í
fimleikum á Ólympíuleikum.
10 greinar
Fyrir utan glímuna,
sem var sýningar-
grein, hafa Íslend-
ingar keppt í tíu
íþróttagreinum á
Ólympíuleikunum,
sem skiptast sumar
í fleiri undirgreinar:
sundi, frjálsum íþróttum,
sundknattleik, lyftingum,
handbolta, júdó, siglingum,
skotfimi, badminton og fim-
leikum. Ísland keppti í
flestum greinum á einum
Ólympíuleikum í Barce-
lona 1992, alls sex.
Keppt í listum
Ólympíuleikarnir voru framan
af ætlaðar fyrir bæði líkama og
anda og frá 1912 til 1948 voru
listir sérstök keppnisgrein á leik-
unum. Keppt var í fimm flokkum:
myndlist, byggingarlist, ljóðlist,
tónlist og höggmyndalist. Tveir
íslenskir listamenn sendu inn
verk á Ólympíuleikana í Helsinki
1948; Ásgeir Bjarnþórsson list-
málari sýndi tvö málverk og
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal sendi inn mynd sem nefndist
„Hinn eilífi Ólympíueldur“.
HART Í BAK Gunnlaugur Jónasson og Jón Pétursson kepptu í siglingum fyrstir
Íslendinga á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984.
Þórey Edda Elísdóttir
Þórey Edda Elísdóttir stangar-
stökkvari keppti í fyrsta sinn á
Ólympíuleikum á Sydney árið
2000. Hún minnist þess að hafa
fengið gæsahúð þegar hún gekk
inn á leikvanginn í fyrsta sinn. „En
um leið var þetta dálítið ógnvekj-
andi, ég hafði sett mikla pressu á
sjálfa mig og fann sterkt fyrir henni
þarna. Ég viðurkenni alveg að mig
langaði hreinlega að hverfa ofan í
jörðina.“
Þórey Edda segist þó eiga sínar
kærustu ólympíuminningar fá
Aþenu 2004, þegar hún komst alla
leið í úrslit. „Ég fæ stundum sælu-
hroll þegar ég hugsa um þá leika.
Það skipti ekki síst máli þá að ég
var bæði orðin reyndari og hafði
undirbúið mig sérstaklega vel sál-
fræðilega. Það skilaði greinilegum
árangri, ég höndlaði pressuna
mun betur en 2000.“
Spurð hvaða heilræði hún
myndi gefa þeim sem er að fara
á Ólympíuleika í fyrsta sinn nefnir
hún andlega þáttinn. „Þetta er ekki
eins og hvert annað mót. Það er
draumur hvers íþróttamanns að
keppa á Ólympíuleikunum og er
ein stærsta stund lífsins. Það getur
verið dálítið yfirþyrmandi og því
mikilvægt að vera vel undir það
búinn andlega. Svo er líka mikil-
vægt að hafa gaman af þessu, það
gefast ekki mörg tækifæri til að
keppa á Ólympíuleikum og því um
að gera að njóta þeirra.“
Elstur og yngst
Carl Eiríksson skráði sig í meta-
bækurnar þegar hann keppti í
skotfimi í Barcelona 1992, þá 62
ára og 213 daga gamall og varð
þar með elsti Íslendingurinn
til að keppa á Ólympíuleikum.
Þórdís Árnadóttir var aðeins
14 ára og 315 daga gömul þegar
hún keppti í sundi á Ólympíu-
leikunum í London árið 1948 og
er yngsti íþróttamaðurinn sem
tekið hefur þátt í leikunum fyrir
Íslands hönd.
GÆSAHÚÐ Á SETNING-
ARATHÖFNINNI