Fréttablaðið - 28.07.2012, Síða 26
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 20124
Icelandair býður borgarferðir til allra áfangastaða félagsins. Þetta eru pakkaferðir þar sem keypt er
flug og hótel. „Í þessum ferðum er
fólk almennt á eigin vegum en við
bjóðum jafnframt upp á sérferð-
ir með fararstjóra og sérstakri dag-
skrá,“ segir Svava Hjartardóttir. „Þá
erum við alltaf með tilboðsferðir
og nú í haust bjóðum við ferðir til
Brighton, sem er skemmtilegur lít-
ill strandbær skammt frá London.
Flogið er til Gatwick en þaðan er
stutt til Brighton. Þar er úrval veit-
ingastaða og verslana og virkilega
góð stemning.“
Nýjasti áfangastaður Icelandair
er Denver. Þar er að finna ein-
stök útivistarsvæði og hægt að
fara í ævintýraferðir út í náttúr-
una. Borgin er nútímaleg og sólin
skín í 300 daga á ári. „Þá er vinsælt
að fara í borgarferð til Washing-
ton en sömuleiðis til Amsterdam
og Parísar svo eitthvað sé nefnt.“
segir Svava. „París þykir sérlega
heillandi á haustin og er eftirsótt
af pörum á öllum aldri.“
Þess má geta að Icelandair
býður upp á fjóra áfangastaði í
Þýskalandi; München, Hamborg,
Wiesbaden og Frankfurt svo þar
er sannarlega hægt að skoða sig
um. Fleiri áfangastaði er að finna
á heimasíðu Icelandair, www.ice-
landair.is.
Svava segir fólk gjarnan panta
borgarferðir á þessum tíma árs.
„Nú er fólk að tínast úr sumar-
fríi og farið að skoða haustið. Það
er því að verða líf legt í kringum
pakkasöluna enda vill fólk panta
tímanlega og freista þess að fá
besta verðið.“
Ásbjörn Björgvinsson, fram-kvæmdastjóri Markaðs-stofu Norðurlands, er ný-
kominn úr skemmtilegu ferðalagi
þar sem hann var farþegi aftan á
mótorhjóli tilvonandi eiginkonu
sinnar, Hildar Guðnadóttur, og í
samfloti við annað par. „Vinum
og ættingjum leist nú mátulega
á þessa hugmynd Hildar. Ég hef
enga reynslu af akstri mótorhjóla
auk þess að vera talsvert stærri
og þyngri en hún en ég gat ekki
skorast undan svo spennandi
áskorun.“ Tilefni ferðarinnar var
brúðkaupsferð vinahjóna þeirra,
Magnúsar Arnar Stefánssonar og
Esterar Halldórsdóttur sem gift-
ast í dag, laugardaginn 28. júlí.
Ásbjörn fékk lánaðan galla og fjár-
festi í skærappelsínugulum mót-
orhjólahjálmi svo hann sæist vel.
Önnur upplifun sem farþegi
Ferðalagið hófst í Reykjavík 8. júlí
og lá leiðin fyrst út á Reykjanes og
þaðan til Þorlákshafnar eftir nýja
Suðurstrandarveginum. Fyrstu
nóttina var gist í Vestmannaeyjum
og snemma morguns haldið áfram
austur á bóginn. Við Skóga byrjaði
að rigna eins og hellt væri úr fötu.
„Leiðin frá Skógum að Skaftafelli
var því ansi blaut, en fyrir utan
þennan spotta rigndi ekkert á
ferðalagi okkar. Á suðurströndinni
upplifði ég líklega skemmtilegustu
og sterkustu upplifun ferðarinn-
ar. Þá fann maður alla lyktina frá
náttúrunni. Það var megn brenni-
steinsfýla frá jökulánum, lykt af ný-
slegnu grasi, ilmur frá smárabreið-
unum og skítalykt af túnum í bland
við rok, rigningu, kulda og sól svo
eitthvað sé nefnt.“
Þegar hópurinn var kominn
að Jökulsárlóni var sólin komin á
kreik og sól og blíða og heitir pott-
ar biðu blautra ferðalanga að Hof-
felli í Hornafirði. Þaðan var hald-
ið austur á firði og gist á Mjóeyri
við Eskifjörð, síðan á Egilsstöð-
um og svo við Þistilfjörð. Ferða-
langarnir lentu í miklu hvassviðri
í Öxarfirði á leið sinni til Húsavík-
ur en dagurinn endaði á Akureyri,
heimabæ Ásbjarnar. Á mánudegin-
um var haldið út Eyjarfjörðinn inn
í Skagafjörð og endað á Hvamms-
tanga þar sem gist var síðustu nótt-
ina áður en haldið var til Reykja-
víkur eftir níu daga ferðalag.
Margir frábærir veitingastaðir
Ásbjörn segir það vera mikla upp-
lifun að ferðast um landið með
þessum hætti. „Við fórum af stað
með það í huga að kaupa alla þjón-
ustu á leiðinni enda ferðuðumst við
mjög létt. Við heimsóttum safn-
ið að Skógum og fengum kærkom-
inn kaffisopa á Steinasafni Petru.
Á Eskifirði fundum við frábær-
an veitingastað í gömlu pakkhúsi
rétt við Mjóeyri. Selársdalslaug við
Vopnafjörð stendur alltaf fyrir sínu
og það var dásamlegt að vakna við
ilminn af nýbökuðum pönnukök-
um á Ytra Álandi. Á Smyrlabjörg-
um í Suðursveit fengum við glæsi-
legt kvöldverðarhlaðborð og frá-
bært grillhlaðborð á Gauksmýri en
við heimsóttum líka nýja veitinga-
staðinn hans Völla Snæs á Húsa-
vík sem var virkilega góður.“ Þrátt
fyrir að ferðalagið hafi verið mikið
ævintýri er Ásbjörn ekki farinn að
skipuleggja aðra ferð. „Ég er meiri
golfari en mótorhjólamaður. Fyrir
mig var þetta ferðalag einstök upp-
lifun en eitthvað sem ég þarf ekki
endilega að gera aftur. Þetta tók í
skrokkinn og maður var oft aumur
í rassinum á kvöldin eftir langan
dag. Það þurfti því oft að strjúka á
mér rassinn á kvöldin.“
Hélt utan um konuna í 2050 kílómetra
Það er mikil upplifun að ferðast um landið á mótorhjóli. Ferðamenn upplifa landslag og umhverfi með allt öðrum hætti en á bíl enda
kjósa sífellt fleiri ferðamenn þennan valkost yfir sumartímann.
Ásbjörn Björgvinsson og Hildur Guðnadóttir í sól og sumaryl á Siglufirði. MYND/ÚR EINKASAFNI
Í París blómstrar ástin.
Umferð ýmissa gerða ferðavagna hefur aukist mikið á þjóðvegum
landsins undanfarin ár. Hér er meðal annars um að ræða hjólhýsi,
fellihýsi og tjaldvagna. Mikilvægt er fyrir ökumenn slíkra farartækja
að sýna ýtrustu varúð við undir-
búning ferðarinnar og þegar keyrt
er á vegum landsins. Einar Magn-
ús Magnússon, upplýsingafulltrúi
hjá Umferðarstofu, segir að mikil-
vægt sé að huga að nokkrum þátt-
um áður en lagt er af stað í ferða-
lagið. „Það er mjög góð regla að
athuga til dæmis ljósabúnað og at-
huga hvort hann virki fyrir brott-
för. Einnig þarf að athuga hvort
ekki sé allt til staðar sem á að vera
á ferðavagninum og hvort það sé
ekki tryggilega fest. Síðan er afar
mikilvægt að beisli og tengibún-
aður sé í góðu ástandi.“ Hann hvetur bíleigendur til að koma við á
næstu skoðunarstöð ef þeir telja sig ekki geta lagt mat á þessa þætti
sjálfir. „Það er einnig mjög mikilvægt að hugað sé að bremsubún-
aði ferðavagna sem er afar mikilvægur búnaður ef svo illa vill til að
vagninn losnar aftan úr bílnum. Þá ber að hafa í huga að öryggis-
vír sé tengdur því annars virka bremsurnar ekki. Ef það eru engar
bremsur þá þarf að gæta þess að öryggiskeðja sé tryggilega fest milli
bíls og eftirvagns. Ef eftirvagn hindrar baksýn úr dráttarbílnum þarf
að framlengja hliðarspegla bílsins báðum megin en speglarnir eiga
að gera ökumanni kleift að sjá beggja vegna aftur með farartækinu.“
Einar bendir á að aksturseiginleikar bíla breytast mikið þegar
þungir ferðavagnar eru með í för. Sérstaklega eigi það við um akst-
ur á malarvegi þar sem lausamöl geti valdið því að bíllinn verði mjög
óstöðugur á miklum hraða. Ökumenn þurfi einnig að hafa í huga
að yfirhlaða ekki ferðavagna eins og t.d. hjólhýsi af ýmsum búnaði.
Þannig geti vagninn orðið of þungur fyrir bílinn. Í því sambandi beri
að athuga hvað vagninn má vera þungur og hvort bíllinn sé skráður
til þess að draga svo stórt tæki en þær upplýsingar má finna í skrán-
ingarskírteini ökutækisins.
Einar segir Íslendinga almennt meðvitaða um öryggismál ferða-
vagna en þau slys sem verða má yfirleitt rekja til reynsluleysis og
vanþekkingar og þess einnig að menn huga ekki að því að búnaður-
inn sé í fullkomnu lagi.
Öryggi á vegum
Mikilvægt er að huga vel að öryggismálum
ferða vagna áður en lagt er í ferðalag. Mikil
fjölgun hefur orðið á ferðavögnum undanfarin ár.
Einar Magnús Magnússon, upplýsinga-
fulltrúi Umferðarstofu. MYND/GVA
Nú er tíminn til að
panta borgarferð
Haustið er handan við hornið og ekki úr vegi að skoða úrval borgarferða sem í
boði eru. Icelandair býður borgarferðir til allra sinna áfangastaða. Denver er
nýjasti áfangastaðurinn en einnig má nefna tilboðsferð til Brighton. París, borg
elskenda, er sömuleiðis sívinsæl.
í Denver er að finna einstök útivistarsvæði.
Það er margt að sjá og skoða í París.