Fréttablaðið - 28.07.2012, Síða 32
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR2
Iðjuþjálfun – iðjuþjálfi á
tauga- og hæfingarsviði
Laus er til umsóknar 80-100% staða iðjuþjálfa á tauga-
og hæfingarsviði Reykjalundar til eins árs. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf 1.október 2012. Iðju-
þjálfi sinnir framkvæmd iðjuþjálfunar á sviðinu og
tekur þátt í skipulagi og þróun.
Hæfnikröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af Heimssam-
tökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt starfsleyfi og löggildingu.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og fjármála-
ráðherra auk stofnanasamnings Iðjuþjálfafélags Íslands og Reykjalundar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Þórey Gísladóttir sviðsstjóri á
tauga- og hæfingasviði í síma 585-2154, netfang; hulda@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 13. ágúst 2012
Umsóknareyðublað og upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíð-
unni www.reykjalundur.is
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegri teymisvinnu þar sem áhersla
er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn . Krafist er
frumkvæðis, góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæðis í
vinnubrögðum. Gott tækifæri fyrir iðjuþjálfa að starfa með hæfu og
metnaðarfullu fólki sem vinnur saman í öflugri teymisvinnu að því að
auka færni og lífsgæði einstaklinga með skerðingu vegna taugasjúkdóma
og fötlunar.
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000
www.reykjalundur.is
Okkur vantar kröftuga og skemmtilega
einstaklinga til starfa á kaffihúsum Kaffitárs
í Reykjavík.
Störfin:
Kaffibarþjónar í fullt starf og helgarstörf.
Starfssvið:
Störfin felast í framreiðslu á kaffidrykkjum,
veitingum og sölu á úrvalskaffi og
kaffivörum.
Hæfniskröfur:
Við leitum að áhugasömum og
þjónustuljúfum einstaklingum með metnað
og frumkvæði. Starfsmenn munu fá
ómetanlega starfsþjálfun og kennslu í fagi
kaffibarþjónsins.
Umsóknum má skila með tölvupósti á
lilja@kaffitar.is. Frekari upplýsingar veitir
Lilja Pétursdóttir í síma 420-2722.
Kaffitár framleiðir og selur einungis úrvalskaffi.
Við leggjum áherslu á gæði og ferskleika. Við erum
skemmtileg, alúðleg, umhverfisvæn, litaglöð og líka
röff og töff. Við setjum fólk í fyrirrúm og opnum hjarta
okkar til að koma boðskap Kaffitárs til skila og tengjast
viðskiptavinum okkar traustum böndum. Við kaupum
kaffi án krókaleiða til að stuðla að þvi að við fáum
besta kaffi sem völ er á og að bændurnir fái
sanngjarnt verð fyrir vöru sína.
Fyrirtækjasvið Innnes leitar eftir kraftmiklum og áhugasömum sölufulltrúa til starfa.
Um er að ræða starf fagmanns með víðtæka þekkingu á matreiðslusviði þar sem
fagþekking viðkomandi nýtist í samstarfi við fjölbreyttan hóp viðskiptavina okkar.
Í boði er krefjandi og spennandi starf fyrir einstakling þar sem reynir á þjónustulund,
frumkvæði og samvinnuhæfni.
Við leitum að einstakling sem uppfyllir eftirfarandi kröfur:
Menntun á sviði matreiðslu og/eða yfirgripsmikil þekking
Sé hugmyndaríkur, skapandi og sýnir frumkvæði
Hafi áþreifanlega reynslu og þekkingu í sölumennsku
Hafi góða samskiptafærni, þjónustulund og faglega framkomu
Sé sjálfstæður og skipulagður í vinnubrögðum
Hafi víðtæka þekkingu á veitingamarkaði
Er reglusamur og stundvís
Jákvætt viðhorf og dugnaður
Góð tölvu- og íslenskukunnátta
Sölufulltrúi/Matreiðslumaður
Innnes ehf. er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins þar sem flest
vörumerki fyrirtækisins eru markaðsleiðandi á sínu sviði. Hjá Innnes starfar
öflug liðsheild starfsmanna sem leggur höfuðáherslu á þjónustulipurð, góð
samskipti við viðskiptavini og nákvæma afgreiðslu pantana á réttum tíma.
Við erum staðráðin í að vera fremst á okkar sviði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur Guðlaugsson, sölustjóri
fyrirtækjasviðs. Fyrirspurnir og umsóknir óskast sendar á netfangið
gg@innnes.is. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2012.
Innnes ehf
Fossaleyni 21, 112 Reykjavík
Tel: 530 4000 | Fax: 530 4050
www.innnes.is | innnes@innnes.is