Fréttablaðið - 28.07.2012, Síða 39
LAUGARDAGUR 28. júlí 2012 9
ÚTBOÐ
Brúnás, gatnamót við Ásaveg
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð, regnvatnslagnir og
götulýsingu vegna fyrirhugaðra framkvæmda við breytingar á
gatnamótum Brúnás við Ásaveg, við Helgafellsland.
Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í Þjónustuveri Mos-
fellsbæjar, Þverholti 2 á 2. hæð, frá og með mánudeginum 30.
júlí 2012.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 14. ágúst 2012, kl. 14:00 á bæ-
jarskrifstofum Mosfellsbæjar, 2. hæð Þverholti 2, að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Verklok eru 15. nóvember 2012.
Gatnagerð og lagnir, helstu magntölur eru:
• Lengd gatna 385 m
• Uppúrtekt 4.200 m3
• Losun á klöpp 1.300 m3
• Fyllingar 1.250 m3
• Regnvatnslagnir 180 m
Umhverfissvið Mosfellsbæjar
Auglýsing sveitarstjórnar um skipulag í Húnaþingi vestra.
Breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra
2002-2014 í landi Melstaðar
Auglýsing um breytingar á aðalskipulagi Húnaþings
vestra 2002-2014 í samræmi við 31 gr. skipulagslaga nr.
123/2010. Aðalskipulagsbreyting þessi tekur til stað-
setningar á nýju verslunar- og þjónustusvæði fyrir olíu og
veitingasölu við þjóðveg nr. 1. Skipulagssvæðið er um 2 ha.
á stærð og er í landi Melstaðar í Miðfirði.
Deiliskipulag fyrir verslunar- og þjónustulóð
í landi Melstaðar
Auglýsing um deiliskipulag fyrir veitingasölu og þjónustu-
stöð með eldsneytistönkum ásamt tilheyrandi mann-
virkjum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Stærð lóðar er um 1,2 ha. á stærð og er í landi Melstaðar
í Miðfirði.
Skipulagsuppdrættir, ásamt greinargerðum munu liggja
frammi á skrifstofu Húnaþings vestra og hjá Skipulagsstofnun
Laugavegi 166, Reykjavík frá 30. júlí til 19. september
2012 Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu
sveitarfélagsins www.hunathing.is. Athugasemdum skal skila
skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra Hvammstangabraut
5 eða á netfangið alla@hunathing.is merkt annars vegar
"aðalskipulag Húnaþing vestra" og hins vegar "deiliskipulag
í landi Melstaðar". Þeir sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests teljast samþykkir tillögunum.
Hvammstangi, 25. júlí 2012
Guðrún Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri.
Útboð-Ferjuleið
Mjóafjarðarferja 2012–2015
12-043
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í siglingar með fólk og
vörur á milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar árin 2012-2015.
Þjónustan er veitt yfir vetrarmánuðina eða tímabilið frá 1.
október til og með 31. maí.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 5-7
í Reykjavík (móttaka) og Búðareyri 11-13, Reyðarfirði frá
og með mánudeginum 30. júlí 2012. Verð útboðsgagna
er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 21. ágúst 2012 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
ÚTBOÐ
FÆRANLEGAR KENNSLUSTOFUR
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í framleiðslu
og afhendingu á þremur færanlegum kennslu-
stofum. Húsin skilist eigi síðar en 10. desember
n.k. fullkláruð.
Útboðsgögn fást afhent frá og með mánudeginum
30. júlí í afgreiðslu Umhverfis- og Framkvæmdar-
sviðs Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2.
Tilboð verða opnuð á sama stað 15. ágúst 2012
kl. 11:00.
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2012
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Lýðheilsusjóði
Lýðheilsusjóður starfar samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu (41/2007) og reglugerð
um lýðheilsusjóð (1260/2011).
Hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni
og lýðheilsu, bæði innan og utan embættisins, í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og
forvörnum. Styrkir eru veittir til verkefna eða afmarkaðra hagnýtra rannsókna.
Skilyrði fyrir rannsóknastyrkjum er að Embætti landlæknis hafi aðgang að ópersónugreinanlegum
frumgögnum og nauðsynlegum stoðupplýsingum ári eftir að gagnasöfnun lýkur. Í samvinnu við
styrkþega getur embættið/stjórn sjóðsins einnig veitt þriðja aðila aðgang að gögnunum.
Áhersla er lögð á að verkefnin séu til eflingar lýðheilsu með áherslu á eitthvað af eftirfarandi þáttum:
áfengis- og vímuvarnir, tóbaksvarnir, heilbrigða lifnaðarhætti eða geðrækt. Mikilvægt er að
verkefnin hafi raunhæf og skýr markmið.
Stjórn Lýðheilsusjóðs úthlutar úr sjóðnum. Áskilinn er réttur til að senda umsóknir til umfjöllunar
fagaðila, óska eftir nánari upplýsingum um verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig áskilja
styrkveitendur sér rétt til að ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu hvers
verkefnis. Ef sótt er um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir. Styrkþegum er
jafnframt gert að skila inn fjárhagsyfirliti og afriti af kvittunum vegna kostnaðar við verkefnið eða
rannsóknina með framvindu eða lokaskýrslum.
Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig verkefnið verður metið.
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2012 og skal sótt um á eyðublöðum á vef Embættis
landlæknis, http://www.landlaeknir.is/um-embaettid/lydheilsusjodur
Styrkja, sem úthlutað er á árinu, skal vitjað fyrir 31. des. 2012.
Nánari upplýsingar fást í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis. Einungis er tekið á móti umsóknum í
tölvupósti á netfangið lydheilsusjodur@landlaeknir.is
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu
fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um
veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði.
Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur
upp á að bjóða.