Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 46
KYNNING − AUGLÝSINGÚtfarir LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 201284
Þórdís Magnúsdóttir, starfsmaður Graníthallarinnar, segir að fjölbreytt úrval sé af legsteinum í versluninni. MYNDIR/STEFÁN
Þórdís Magnúsdóttir, starfs-maður Graníthallarinn-ar, segir að lögð sé mikil
áhersla á fjölbreytt úrval og fal-
lega legsteina. „Við bjóðum upp á
afar fallega legsteina og leggjum
okkur fram um að vera með vand-
aða vöru á viðráðanlegu verði.
Markmiðið er að vera fallegasta
legsteinasala landsins og að allir
geti fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Þórdís segir að mjög gott
kynningartilboð sé í gangi um
þessar mundir. „Við bjóðum
legstein, lukt, blómavasa og
ramma ásamt því að koma
steininum fyrir á 249 þúsund
krónur. Einn ákveðinn steinn er
á þessu tilboði en fólk getur valið
um hvort hann sé svartur eða ljós.“
Þórdís segir enn fremur að fólk
geti valið legstein úr því gríðar-
lega úrvali sem til sé í búðinni en
einnig er hægt að sérpanta steina
ef einhver óskar þess. „Við erum
með einfalda og klassíska steina
en einnig steina með miklum út-
skurði. Það geta því allir fundið
eitthvað við sitt hæfi. Fólk hefur
mjög mismunandi smekk, sumir
vilja bara ljósan stein á meðan
aðrir vilja hafa hann svartan.
Steinar með útskurði
hafa verið mjög vinsæl-
ir en allir legsteinarnir
eru úr hágæða granít-
stein. Steinninn þolir
vel íslenska veðráttu,
jörðin myndar gran-
ít í umhverfi þar sem
skörp skil eru á milli
kulda og hita. Granít
er sagður sterkasti fá-
anlegi steinn á eftir
demanti.“
Færst hefur í vöxt að fólk vilji
hafa alls kyns fylgihluti við leg-
steininn eins og luktir og blóma-
vasa. „Við erum með gömlu kop-
arluktirnar sem hafa verið vinsæl-
ar síðustu áratugi,“ segir Þórdís en
Graníthöllin býður upp á nýjung
sem ekki hefur áður sést á Íslandi;
granítluktir og vasa í stíl við leg-
steininn. „Fólki hefur líkað þessi
nýjung vel, enda eru þetta stíl-
hreinir og fallegir hlutir. Kostur-
inn er að luktirnar eru afar sterk-
byggðar og það sér ekkert á þeim
með árunum ólíkt koparnum sem
raunin hefur sýnt sig,“ segir Þór-
dís.
Fyrirtækið býður viðskiptavin-
um einnig þá þjónustu að bæta
við nöfnum á legsteina eða pússa
þá upp. „Við höfum fengið mikið
hrós. Kona ein sagði við mig: „Ég
trúði varla að þetta væri leiði for-
eldra minna því það var orðið svo
fallegt.“ Það er virkilega gaman að
fá svona hrós,“ segir Þórdís.
Þegar Þórdís er spurð hvort
rétt sé að bíða þurfti í heilt ár til
að setja legstein á leiði segir hún
það ekki vera. „Þeir hjá kirkju-
görðunum segja að best sé að bíða
í eitt ár svo steinninn sígi ekki í
jarðveginum. Við
leggjum hins vegar
áherslu á góða und-
irstöðu og vönd-
um vel alla jarð-
vegsvinnu. Steinn-
inn ætti því ekki að
síga. Við lögum hins
vegar steina sem hafa
sigið ef þess er óskað.
Þriggja ára ábyrgð er
á steinsigi og tutt-
ugu ára ábyrgð ef
hann fer á hliðina.“
Eigandi fyrirtækisins, Heiðar
Skúli Steinsson múrarameistari,
hefur margra ára reynslu á vinnu
við legsteina ásamt meðhöndlun
á graníti. Graníthöllin er til húsa
að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði, á
móti Fjarðarkaupum, en fyrirtæk-
ið þjónar allt landið. „Við erum í
fallegu húsnæði þar sem er gott
aðgengi og við tökum vel á móti
öllum. Heimasíðan okkar www.
granithollin.is er enn í vinnslu
en þar er þó hægt að sjá ýmsar
útfærslur af steinum og verð. Við
stefnum að nýjungum á heima-
síðunni sem ekki hefur sést áður
hjá legsteinasölum. Fólk ætti þá að
geta komið vel undirbúið til okkar
eftir að hafa skoðað heimasíðuna
fyrst, við hvetjum því alla til að
fylgjast með.“
Graníthöllin er með síma 555
3888.
Öðruvísi legsteinar úr hágæða graníti
Graníthöllin opnaði að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði í maí síðastliðnum og hefur vakið athygli fyrir sérstaka og fallega legsteina á
góðu verði. Steinarnir eru annað hvort einfaldir að gerð eða útskornir. Fylgihlutir fást í stíl við legsteinana.
Graníthöllin er til húsa við Bæjarhraun í Hafnarfirði þar sem blómaverslunin Dögg var áður til húsa.