Fréttablaðið - 28.07.2012, Blaðsíða 54
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR26
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Elskulegur bróðir okkar,
GUÐMUNDUR THEODÓRSSON
frá Bjarmalandi í Öxarfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
sunnudaginn 22. júlí. Jarðarförin fer fram
frá Skinnastaðakirkju í Öxarfirði mánudaginn
30. júlí kl. 14.00.
Þorbjörg Theodórsdóttir
Gunnlaugur Theodórsson
Halldóra Theodórsdóttir
Guðný Anna Theodórsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HELGU ÞORKELSDÓTTUR
Kleppsvegi 62,
Reykjavík.
Una Sigurðardóttir Ólafur Gíslason
Sigfús Jón Sigurðsson Ragnheiður Sæland Einarsdóttir
Zophanías Þorkell Sigurðsson Guðrún Ívars
Alma Sigurðardóttir Magnús Ægir Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
JÓSEF HELGI HELGASON
Gyðufelli 6, Reykjavík,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við
Hringbraut sunnudaginn 22. júlí 2012.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 31. júlí kl 13.00. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Félag heyrnarlausra.
Sigríður Bryndís Helgadóttir Ólafur Steinþórsson
Hrönn Bartosh Helgadóttir
Einar Helgason
Kristrún Helgadóttir Jóhann Pétur Margeirsson
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför
SIGURÐAR SIGURJÓNSSONAR
húsgagnasmíðameistara,
Suðurhlíð 38C, Reykjavík.
Áslaug Emilía Jónsdóttir
Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir Örn Halldórsson
Sif Arnardóttir
Halldór Smári Arnarson
Kjartan Sigurjónsson Bergljót S. Sveinsdóttir
Sigurjón Bolli Sigurjónsson Jóhanna E. Vilhelmsdóttir
Bryndís Sigurjónsdóttir Guðmundur Þorgeirsson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
ÁRNA HREIÐARS ÁRNASONAR
húsgagnasmíðameistara,
Furugerði 1, Reykjavík.
Jytte Inge Árnason
Guðrún Árnadóttir Gísli Grétar Sólonsson
Rannveig Árnadóttir Eiríkur Jón Ingólfsson
Inga Magdalena Árnadóttir
Anna Arndís Árnadóttir Leifur Jónsson
og aðrir aðstandendur.
„Þetta er fyrsta sýning okkar saman
en vonandi ekki sú síðasta,“ segir Mar-
grét Jónsdóttir, ein þriggja systra sem
sýna list sína í menningarhúsinu Hofi á
Akureyri til 20. ágúst. Hinar eru María
og Þórdís. Allar hafa þær sýnt verk sín
áður, bæði einar og með öðrum. Mar-
grét leirverk, María málverk og Þór-
dís útsaum. Viðfangsefni þeirra allra á
sýningunni í Hofi eru blóm „í fíngerð-
um þráðum útsaumsins, brothættum og
loftkenndum leirrósettum og litsterkum
tónum olíumálverksins,“ eins og segir í
sýningarskrá.
Systurnar eru fæddar og uppaldar á
Akureyri. Margrét og Þórdís búa þar
enn en María hefur verið búsett á Ítalíu
í tuttugu ár. Hún kveðst alltaf koma
heim á sumrin og yfirleitt líka um jólin.
„Ég er eins og farfuglarnir og jólasvein-
arnir,“ segir hún hlæjandi. Þær segja
list og handverk hafa skipað stóran sess
í lífi þeirra alla tíð. „Sumir eru spurðir
hvort mikið hafi verið sungið á æsku-
heimilinu, heima hjá okkur og öfum og
ömmum var unnið í höndunum,“ segir
Margrét. „Við systkinin lékum okkur
mikið við að föndra og skapa og feng-
um góðar aðstæður til þess heima hjá
foreldrum okkar. Svo höfum við bara
haldið því áfram. Við þrjár erum í list-
iðninni, einn bróðir okkar er grafískur
hönnuður, annar smíðar úr járni og elsta
systir okkar er svo sannarlega handlag-
in líka.“
Þórdís er þekktust fyrir púðana sem
hún saumar með sjálfsprottnum mynstr-
um og öðrum sem hún sækir í arfleifð-
ina. Á sýningunni í Hofi er hún líka með
skemla og myndir.
Margrét raðar rósettum á gólfið í Hofi
og segir fólk helst eiga að fara upp á efri
hæðir hússins og ímynda sér að það sé
að horfa upp í loft. „Stundum verður
maður að snúa hlutunum á hvolf,“ segir
hún glaðlega. Myndir Maríu eru mál-
aðar bæði á Ítalíu og Akureyri. „Ég fæ
extra kraft úr birtunni þegar ég kem
hingað norður,“ segir hún og kveðst
hafa vinnuaðstöðu í Gránufélagsgötu
48 þegar hún dvelur á landinu, þar sem
Margrét er með verkstæði og gallerí.
„Já, þá kemur líka ný lykt í húsið,“ segir
Margrét, „lykt af terpentínu og olíu“.
gun@frettabladid.is
ÞRJÁR SYSTUR: ERU MEÐ SÍNA FYRSTU SAMSÝNINGU Í HOFI Á AKUREYRI
Blóm í margs konar myndum
Merkisatburðir
1662 Á Kópavogsfundi láta Árni Oddsson lögmaður og Brynj-
ólfur Sveinsson biskup undan kröfum danska valdsins um að
samþykkja einveldi Danakonungs á Íslandi.
1895 Vígð er brú á Þjórsá við Þjótanda að viðstöddu fjöl-
menni.
1928 Sumarólympíuleikar eru settir í Amsterdam.
1957 Hallgrímskirkja í Saurbæ er vígð.
1960 Norðurlandaráð heldur þing sitt í fyrsta sinn á Íslandi.
ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR leik- og söngkona á afmæli í dag.
„Fyrir mér snerist námið um að finna út hvað ég gat nýtt
mér, safnað í sarpinn fyrir framtíðina.“
30
LISTFENGAR SYSTUR Þórdís, Margrét og María Jónsdætur í sýningarrými menningarhússins Hofs sem er opið frá morgni til kvölds og ekkert
kostar inn í. Umhverfis þær eru púðar Þórdísar. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
RÓSETTA Eitt af verkum Margrétar.LITADÝRÐ María málar risavaxin blóm.