Fréttablaðið - 28.07.2012, Side 64
28. júlí 2012 LAUGARDAGUR36
sport@frettabladid.is
EYJAMENN eiga möguleika á því að setja nýtt félagsmet á Kópavogsvelli á morgun þegar þeir mæta Breiðabliki i fyrsta leik 13.
umferðar Pepsi-deildar karla. ÍBV-liðið er búið að vinna sex deildarleiki í röð sem hefur aðeins gerst einu sinni áður hjá Vestmanna-
eyjaliðinu í efstu deild. ÍBV vann einnig 6 leiki í röð sumarið 1995. Leikur Breiðabliks og ÍBV hefst klukkan 17.00 en klukkan 19.15
fara fram tveir leikir: Fylkir - Stjarnan og Selfoss - Valur. 13. umferðin klárast síðan með þremur leikjum á mánudaginn.
GOLF Sigmundur Einar Másson er
efstur í karlaflokki eftir fyrstu tvo
dagana á Íslandsmótinu í höggleik
sem fram fer á Strandarvelli á
Hellu en það er allt hnífjafnt hjá
konunum þar sem Anna Sólveig
Snorradóttir, 17 ára kylfingur úr
Keili, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr
Leyni Akranesi deila efsta sætinu.
Sigmundur Einar er með eitt
högg í forskot á Kristin Óskars-
son. Rúnar Arnórsson er í 3. sæti
en hann náði ekki að fylgja eftir
frábærum fyrsta degi og lék á
+3 í gær. Íslandsmeistarinn Axel
Bóasson kom til baka eftir slak-
an fyrsta dag og lék manna best í
gær eða á -4. Axel er í 4. til 5. sæti
ásamt Þórði Rafni Gissurarsyni en
þeir eru báðir á parinu.
Sigmundur glímdi við erfið bak-
meiðsli síðasta vetur en hann er
allur að koma til og markmiðið
er einfalt. „Ég ætla bara að vinna
þetta, það kemur ekkert annað
til greina,“ sagði Sigmundur sem
sigraði á Íslandsmótinu árið 2006.
Hann lék á 69 höggum í gær eða -1
og er samtals á -3.
Körfuboltadómarinn Kristinn
Óskarsson hefur komið skemmti-
lega á óvart á fyrstu tveimur
keppnisdögunum en hann hefur
leikið báða hringina á Strandar-
velli á Hellu á einu höggi undir
pari vallar.
„Miðað við forgjöfina þá var ég
í 35. sæti á þeim lista og ég hafði
einsett mér það að leika á forgjöf-
inni og vera í kringum 30. sætið,“
sagði Kristinn. Hann á alveg eins
von á því að mæta bara í körfu-
boltadómarabúningnum í dag.
„Ég held að það séu allir að bíða
eftir því að ég „springi“ og ætli
ég sé ekki einn af þeim líka. Ég
er vanur því að umgangast topp-
íþróttamenn í dómarabúningnum
og líður rosalega vel. Kannski er
það bara lausnin,“ sagði Krist-
inn, að sjálfsögðu í meira gríni en
alvöru.
Anna Sólveig og Valdís Þóra eru
samtals á 6 höggum yfir pari vall-
ar en tveimur höggum þar á eftir
kemur Eygló Myrra Óskarsdóttir
úr GO.
„Væntingar mínar fyrir mótið
voru aðeins þær að komast í gegn-
um niðurskurðinn og hafa gaman
að þessu,“ sagði Anna Sólveig í
gær en hún ætlar að dvelja á Sel-
fossi næstu tvo daga í góðu yfir-
læti hjá ömmu sinni og afa. Eygló
Myrra Óskarsdóttir úr GO er enn
í baráttunni um titilinn en hún er
aðeins tveimur höggum á eftir
þeim Valdísi og Önnu.
„Markmiðið er einfalt hjá mér,
ég stefni á sigur,“ sagði Eygló en
hún hefur aldrei náð að sigra á
Íslandsmótinu í höggleik.
Tveir síðustu dagarnir verða
sýndir í beinni í opinni dagskrá á
Stöð Sport og á Vísi. -seth, -óoj
Sigmundur Einar, Valdís Þóra og Anna Sólveig eru efst eftir tvo daga á Íslandsmótinu í höggleik:
Körfuboltadómarinn slær í gegn á Hellu
ANNA SÓLVEIG SNORRADÓTTIR 17 ára
kylfingur úr Keili deilir efsta sætinu í
kvennaflokki. FRÉTTABLAÐIÐ/SETH
09.00: 400 m fjórsund karla
Anton Sveinn McKee, 1. riðill
09.37: 100 m flugsund kvenna
Sarah Blake Bateman, 2. riðill
10.56: 100 m bringusund karla
Jakob Jóhann Sveinsson, 3. riðill
12.00: Skotfimi, 10 m loftbyssa
Ásgeir Sigurgeirsson, forkeppni
08.30: Handbolti karla
Ísland - Argentína, A-riðill
09.03: 100 m baksund kvenna
Eygló Ósk Gústafsdóttir, 2. riðill
SUNNUDAGINN 29. JÚLÍ
LAUGARDAGINN 28. JÚLÍ
ÓL 2012
Íslendingar á
HANDBOLTI Silfurstrákarnir frá
Peking hefja leik á Ólympíuleik-
unum í London á morgun þegar
handboltalandsliðið mætir Argent-
ínu í fyrsta leik A-riðils. Meiðsli
og veikindi hafa herjað á hópinn
síðustu dagana en Aron Pálmars-
son gat þó æft af fullum krafti í
gær.
Róbert Gunnarsson er að glíma
við smávægileg veikindi en óviss-
an er meiri um Snorra Stein Guð-
jónsson. Hann hefur verið að
berjast við að ná sinaskeiðabólgu
í vinstri hönd úr sér en bólgan er
nú einnig komin upp í hægri hönd-
inni – kasthöndinni.
„Við verðum bara að sjá til
hvernig hann verður í kvöld og í
fyrramálið,“ sagði Guðmundur við
Fréttablaðið eftir æfinguna sem
fór fram snemma dags í gær. „Við
getum ekki hugsað lengra fram í
tímann en það. Þetta er ekki stað-
an sem við vildum vera í en svona
er þetta bara. Vonandi jafnar hann
sig sem fyrst.“
Það var greinilegt á Snorra
Steini sjálfum að hann var svekkt-
ur með að hafa misst af æfing-
unni. „Það gengur upp og ofan
hjá mér. Ég vil kannski tala sem
minnst um það. En það er engin
dramatík í þessu enn þá og ég ætla
að vera með á sunnudaginn,“ segir
hann.
Aron fann sig vel
Lengi vel var óvissa um þátttöku
Arons Pálmarssonar á leikunum
og var hann til að mynda kallaður
út í læknisskoðun til félags síns,
Kiel, aðeins nokkrum dögum fyrir
brottför landsliðsins til Lundúna.
„Aron æfði af fullum krafti með
okkur í dag. Æfingin var að vísu
ekki löng en hann fann sig vel.
Það er önnur æfing á morgun og
þá sjáum við betur hvernig hann
kemur undan meiðslunum,“ segir
Guðmundur.
Landsliðið lék æfingarleik gegn
Króatíu á fimmtudaginn og tap-
aði með tveggja marka mun. Guð-
mundur nýtti æfinguna í gær til
að skerpa á sóknarleiknum sem
hann var ekki ánægður með í
leiknum á fimmtudag.
Þurfa að nýta breiddina betur
„Við höfum sótt allt of mikið inn
á miðjuna í undanförnum leikj-
um hjá okkur. Við þurfum að nýta
breiddina betur,“ segir hann.
„Markvarslan var í fínu lagi gegn
Króatíu og varnarleikurinn varð
betri eftir því sem á leið. Það er
hitt og þetta sem við þurfum að
vinna í og erum við að fínpússa
okkar leik.“
Verður ærið verkefni
Þó svo að mikill styrkleikamunur
hafi verið á handboltalandsliðum
Íslands og Argentínu í gegnum tíð-
ina varar Guðmundur við of mikilli
bjartsýni og vanmati. „Við þurfum
að halda fullri einbeitingu og fara í
leikinn af fullum krafti. Argentína
er stórhættulegur andstæðingur
eins og þeir sýndu í æfingaleikjun-
um heima. Þar vorum við á heima-
velli og allt á okkar bandi en samt
héngu þeir lengi í okkur.“ Ísland
lék tvo æfingarleiki gegn Argent-
ínu á dögunum en þeir fóru báðir
fram í Kaplakrika. Ísland bar sigur
úr býtum í báðum leikjum en það
tók strákana tíma að hrista Suður-
Ameríkumennina af sér.
Guðmundur mun því brýna fyrir
strákunum að sýna þolinmæði.
„Argentína spilar af skynsemi og
reynir að teygja úr sókninni eins
lengi og mögulegt er. Við þurfum
að halda þolinmæðinni og sýna
einbeitingu. Það verður ærið verk-
efni að vinna Argentínumennina.“
Leikurinn hefst klukkan 8.30 í
fyrramálið og er hann gríðarlega
mikilvægur. Þó svo að hinn riðil-
Full einbeiting og mikil þolinmæði
Ísland mætir Argentínu í fyrramálið í fyrsta handboltaleik karla á Ólympíuleikunum í Lundúnum.
Guðmundur landsliðsþjálfari varar við vanmati og segir Argentínu stórhættulegan andstæðing.
TEYGT Á TRÖLLINU Pétur Örn Gunnarsson sjúkraþjálfari tekur hér á Sverre Jakobssyni á æfingu íslenska handboltalandsliðsins í
London í gær. Það hefur verið nóg að gera hjá Pétri í aðdraganda leikanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Róbert Gunnarsson er nú að taka þátt á sínum þriðju Ólympíuleikum og ber
hann leikunum í Lundúnum söguna vel, enn sem komið er.
„Þetta er bara mjög flott. Þorpið er mjög glæsilegt og íbúð-
irnar okkar fínar. Við Snorri Steinn fengum reyndar kompu
aðra leikana í röð en við ætlum ekki að kvarta mikið
undan því,“ segir Róbert en hann og Snorri Steinn eru
miklir félagar og hafa stundum verið kallaðir Snobbi.
„Mesta snilldin er að þorpið er rétt hjá leik-
vöngunum. Í gær röltum við til dæmis heim eftir
æfingaleikinn gegn Króatíu sem er mikill kostur.
Maður sér fram á að geta leyft sér að fara á aðra
viðburði en maður nennti ekki að standa í því á
hinum leikunum vegna ferðalaganna sem þurfti
til þess.“
Hann er þó ekki með neitt ákveðið í huga
sem hann vill sjá á leikunum. „Nei, það
yrði þá bara skyndiákvörðun.
En það er gott að vita af þessu.
Þetta er eins og að búa í
stórborginni – það er gott
að geta farið í bíó þótt
maður geri það ekki
endilega.“
Snobbi fékk kompu aðra leikana í röð
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um ÓL 2012
eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is
ÓL 2012 Á íþróttavef Vísis verður
að finna ýtarleg viðtöl við alla þá
Íslendinga sem keppa á Ólympíu-
leikunum í Lundúnum, bæði fyrir
keppni og eftir.
Að morgni hvers dags munu
birtast viðtöl við þá keppendur
sem eru að keppa í sinni fyrstu
grein þann daginn. Keppni á leik-
unum hefst í dag og verða fjórir
Íslendingar í eldlínunni, sundfólkið
Anton Sveinn McKee, Sarah Blake
Bateman og Jakob Jóhann Sveins-
son ásamt skotfimikappanum
Ásgeiri Sigurgeirssyni.
Á morgun bætist svo Eygló Ósk
Gústafsdóttir í hópinn en hún mun
keppa í 100 m baksundi á sama
tíma og handboltalandsliðið mætir
Argentínu. - esá
Íslensku keppendurnir:
Ýtarleg viðtöl á
íþróttavef Vísis
KEPPIR Í SKOTFIMI Ásgeir Sigurgeirsson
hefur leik í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Stjarnan og Valur
tryggðu sér sæti í bikarúrslita-
leik kvenna í gær. Valur vann 2-0
sigur á KR á KR-velli og komst í
úrslitaleikinn fimmta árið í röð
en Stjarnan vann 2-1 sigur á Þór/
KA eftir framlengingu í Garða-
bænum.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir,
fyrirliði Stjörnunnar, tryggði sínu
liði sæti í úrslitaleiknum með því
að skora sigurmarkið á 106. mín-
útu. Harpa Þorsteinsdóttir kom
Stjörnunni yfir á 22. mínútu en
Sandra María Jessen jafnaði með
frábæru marki á 54. mínútu.
Johanna Rasmussen og Rakel
Logadóttir skoruðu mörk Vals á
móti botnliði KR en Valskonur
eiga nú möguleika að vinna bik-
arinn fjórða árið í röð. - óój
Borgunarbikar kvenna í gær:
Stjarnan og
Valur í úrslitin
SVAKA SPENNA Frá leik Stjörnunnar og
Þór/KA í Garðabæ í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
inn á leikunum sé sterkari mega
strákarnir ekki við því að misstíga
sig, sérstaklega í byrjun.
Alls fara fjögur lið af sex áfram
úr hvorum riðli og í fjórðungsúr-
slitin.