Fréttablaðið - 27.08.2012, Síða 8
27. ágúst 2012 MÁNUDAGUR8
SJÁVARÚTVEGUR „Þegar makrílveið-
um er lokið munum við halda til
síldveiða af fullum krafti,“ segir
Jens Bisgaard, útgerðarstjóri
Royal Greenland. Hann er vongóð-
ur um góðan afla. „Fyrir tveimur
árum ákváðum við að reyna þetta
og þá veiddum við 1.200 tonn á sex
dögum svo ef þetta verður eitthvað
í líkingu við það ættum við að bera
nóg úr býtum.“
Hann segir að veitt verði
skammt frá Jan Mayen en að
sjálfsögðu í grænlenskri lögsögu.
Íslendingar og Norðmenn veiða
á svipuðum slóðum úr norsk-
íslenska síldarstofninum. Henrik
Leth, stjórnarformaður Polar Sea-
food, segir að enn hafi ekki verið
tekin ákvörðun um slíkar veið-
ar. „Við erum að skoða það hvort
það sé hagkvæmt fyrir okkur og
þá lítum við bæði til kolmunna og
síldveiða,“ segir hann. „Ég á þó
frekar von á því að við látum á það
reyna,“ segir hann.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir skemmstu voru bæði þessi
fyrirtæki óánægð með aðgerðir
Íslendinga þegar bann var sett við
löndun á makríl sem veiddur er í
grænlenskri lögsögu.
Að sögn Bisgaard hefur Royal
Greenland veitt samtals um 3.400
tonn af makríl. - jse
Royal Greenland mun senda skip sín til síldveiða skammt frá Jan Mayen:
Grænlendingar halda til síldveiða
SILFUR HAFSINS Það er ýmislegt á sig
leggjandi fyrir síldina, nú ætla Græn-
lendingar að láta á það reyna.
MYND/STEFÁN HERMANNSSON
BANDARÍKIN, AP Neil Armstrong,
geimfarinn sem steig fyrstur allra
fæti á tunglið, lést á laugardag 82
ára að aldri. Hjáveituaðgerð var
framkvæmd á hjarta Armstrong
fyrr í mánuðinum og drógu eftir-
köst aðgerðarinnar Armstrong til
dauða.
Armstrong var árið 1969 leiðang-
ursstjóri Apollo 11 geimferðarinnar
sem var fyrsta tilraun bandarísku
geimferðastofnunarinnar, NASA, til
að koma mönnum á tunglið. Apollo
11 geimskutlan flutti Armstrong og
tvo aðra geimfara, þá Edwin „Buzz“
Aldrin og Michael Collins, á spor-
baug um tunglið. Tunglferjan Örn-
inn bar Armstrong og Aldrin svo á
tunglið sjálft en Collins varð eftir í
geimskutlunni.
Klukkan 20.18 að kvöldi 20. júlí
1969 að samræmdum alþjóðlegum
tíma lenti Örninn á Tunglinu. Rétt
fyrir klukkan þrjú aðfaranótt 21.
júlí fóru geimfararnir tveir svo út
úr Erninum og stigu fæti á tungl-
ið. Armstrong fór á undan og mælti
hin ódauðlegu orð: „Eitt lítið skref
fyrir mann, eitt risastórt stökk
fyrir mannkynið.“
Hundruð milljóna manna fylgd-
ust með atburðinum í beinni útsend-
ingu. Áratuginn á undan höfðu
Bandaríkin og Sovétríkin keppst
við að slá hvort öðru við á sviði
geimferða en segja má að Apollo
11 leiðangurinn hafi markað sigur
Bandaríkjanna í geimkapphlaupinu.
Með leiðangrinum uppfyllti NASA
þar að auki heit sem John F. Ken-
nedy, forseti Bandaríkjanna frá
1961 til 1963, hafði gefið bandarísku
þjóðinni um að bandarískur geim-
fari myndi stíga á tunglið fyrir lok
ársins 1969. Armstrong og Aldrin
vörðu alls þremur tímum gangandi
um tunglið. Þeir söfnuðu jarðvegs-
sýnum og steinum, tóku ljósmynd-
ir og gáfu sér þar að auki tíma til
að dást að útsýninu sem Armstrong
lýsti síðar sem mögnuðustu sjón-
rænu reynslu ævi sinnar. Arm-
strong var hlédrægur maður og hélt
sig frá sviðsljósinu sín síðari ár. - mþl
Neil Armstrong var leiðangursstjóri Apollo 11 geimferðarinnar og steig fyrstur allra fæti á tunglið:
Brautryðjandinn Neil Armstrong látinn
21. JÚLÍ 1969 Þegar Armstrong steig niður úr tunglferjunni Erninum mælti hann
hin ódauðlegu orð: „Eitt lítið skref fyrir mann, eitt risastórt stökk fyrir mannkynið.“
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Maður slasaðist
þegar veist var að honum með egg-
vopni. Árásin átti sér stað á Akra-
nesi á laugardag. Mbl.is greindi
fyrst frá fréttinni.
Tildrög málsins eru að maður
sótti annan mann heim til þess að
útkljá deilumál með samræðum.
Það gekk ekki eftir og hélt maður-
inn heim á leið, en árásarmaður-
inn elti hann og lagði til hans með
eggvopni. Maðurinn hlaut skurð
í andlit og þurfti tíu spor. Árás-
armaðurinn var handtekinn en
sleppt að yfirheyrslu lokinni. - sm
Skarst í andliti í átökum:
Lagði til manns
með eggvopni
Sjáðu magnað íslenskt vídeóverk
sem tekið var upp á Samsung Galaxy SIII.
Skannaðu kóðann eða farðu á
siminn.is/samsung-galaxy-s3
siminn.is | *Gildir til 31. ágúst
Gefðu sköpunargáfunni
frelsi með
Samsung Galaxy SIII
Samsung Galaxy SIII
Stgr. nú:
119.900 kr.
Stgr. áður: 134.900 kr
Innifalið:
5.000 kr inneign á mán. í
2 mán. og áskrift að Tónlist.is*
MENNTUN Læknaskólinn í Martin
í Slóvakíu mun halda inntökupróf
hérlendis á miðvikudag. Tveir
prófessorar skólans eru væntan-
legir vegna prófsins.
Fréttablaðið fjallaði fyrir
skömmu um áhuga skólans á að fá
íslenska stúdenta til náms og kom
fram að inntökupróf yrði haldið
ef sex eða fleiri skráðu sig.
Sex íslenskir stúdentar hafa
þegar skilað inn gögnum til þess
að fá að þreyta inntökuprófið.
„Það er alveg víst að þetta verður
plan B hjá mörgum næsta vor,“
segir Runólfur Oddsson, ræðis-
maður Slóvakíu á Íslandi.
Einn íslenskur stúdent, útskrif-
aður í eðlisfræði frá Háskóla
Íslands, hefur þegar fengið inn-
göngu í læknaskólann. - bþh
Sex sækja um í Slóvakíu:
Inntökupróf
í læknaskóla
þreytt hér
1. Hvað keyrir Strætó til margra
kaupstaða um áramótin?
2. Hvað er listakvöldið sem fram fór
í Norðurpólnum á laugardag nefnt?
3. Hvaða lið vann þrefalt í
bikarkeppni Frjálsíþróttasambands
Íslands?
SVÖR:
1. 40 2. Vinnslan 3. ÍR
VEISTU SVARIÐ?