Fréttablaðið - 27.08.2012, Page 54
27. ágúst 2012 MÁNUDAGUR30
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég er afskaplega hrifinn af
Shalimar á Austurstræti. Reyni
að fara þangað sem oftast.
Réttur sem heitir held ég Butter
chicken er til dæmis fáránlega
góður.“
Þormóður Dagsson, söngvari og
lagasmiður Tilbury.
„Þeim fannst þetta frábært,“ segir glæpa-
sagnahöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir.
Hún brá sér vestur á firði um helgina
ásamt átta manna hópi frá Noregi. Þar
heimsótti hópurinn Ísafjörð og síðar Hest-
eyri þar sem bókin Ég man þig gerist.
Fimm úr hópnum eru starfsmenn norska
forlagins Kagge sem gaf út Ég man þig þar
í landi og var þeim boðið út fyrir vel unnin
störf, enda náði bókin inn á topp tíu á aðal-
metsölulista landsins fyrr á árinu. Hinir
þrír úr hópnum eru frá bókabúðakeðjunni
Ark sem vann samkeppni vegna sömu
bókar. Í verðlaun fyrir að selja flest eintök
af henni í Noregi var ferð til Íslands.
Stutt er síðan Yrsa heimsótti síðast Hest-
eyri því hún ferðaðist þangað með ritstjóra
norska tímaritsins Aftenposten K og birt-
ist vegleg umfjöllun um hana í júníheftinu.
Yrsa leggur nú lokahönd á nýja glæpasögu
sem er væntanleg hjá Veröld í nóvember.
Ekkert hefur verið gefið upp um efni henn-
ar nema hvað að lögmaðurinn Þóra Guð-
mundsdóttir fær frí í ár, rétt eins og þegar
Ég man þig kom út. Hesteyri kemur heldur
ekki við sögu.
Aðspurð segist Yrsa enn vera að skrifa
bókina. „Hún gengur ágætlega. Það lítur
út fyrir að hún komi út fyrir jólin þótt
maður geti aldrei sagt neitt fyrr en hún fer
í prentun,“ segir hún og bætir við að bókin
hafi að geyma spennu, morð og hrylling,
allt í bland.
- fb
Á söguslóðum með hópi Norðmanna
HEIMSÓTTI HESTEYRI Yrsa fór með hóp Norðmanna á
Hesteyri þar sem bókin Ég man þig gerist.
MYND/SIGURJÓN RAGNAR
„Það er mjög gaman að það sé loksins að líða að
frumsýningu enda hefur Ávaxtakarfan verið eins og
þriðja barnið mitt undanfarin ár,“ segir Kristlaug
María Sigurðardóttir, framleiðandi og höfundur bíó-
myndarinnar Ávaxtakarfan sem
verður frumsýnd næstkomandi
föstudag.
Leikritið um Imma ananas
og Mæju jarðaber var vinsælt á
seinni hluta tíunda áratugarins
en Kristlaug, eða Kikka eins og
hún er kölluð, hefur gengið með
hugmyndina að færa Ávaxta-
körfuna á hvíta tjaldið í magan-
um lengi. „Það var allt klappað
og klárt degi fyrir hrun árið
2008. Eftir það þurfti að endur-
hugsa allt og ég fór í smá frí. Svo endurskrifaði ég
handritið tvisvar og í lok árs 2010 fórum við aftur af
stað,“ segir Kikka en tökur á myndinni fóru fram í
Latabæjarstúdíóinu í byrjun árs.
Söguþráður myndarinnar bregður örlítið út af
söguþræði leikritsins en þemu myndarinnar; einelti,
frekja og fyrirgefning, eru enn þá til staðar. Með
aðalhlutverk fara söngvaranir Matthías Matthías-
son og Ólöf Jara Skagfjörð og aðrir leikarar eru
Helga Braga Jónsdóttir, Birgitta Haukdal, Ágústa
Eva Erlendsdóttir og Atli Óskar Fannarsson. Leik-
stjóri er Sævar Guðmundsson og Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson sér um tónlistina. „Ég kýs að kalla
þetta bíóskemmtun í staðinn fyrir mynd því þetta
er 70 mínútna skemmtun frá upphafi til enda fyrir
börnin.“
Myndin er ekki eina efnið sem þau hafa unnið upp
úr Ávaxtakörfunni en eftir áramót eru samnefndir
sjónvarpsþættir væntanlegir á Stöð 2. „Við tókum
upp heila 12 þætti með sömu karakterunum um leið
og við gerðum myndina. Þemað í þeim eru almenn
samskipti, einelti og fordómar þó að söguþráðurinn
sé annar.“ - áp
Ávaxtakarfan eins og þriðja barnið mitt
LITRÍKIR KARAKTERAR Framleiðandinn og höfundurinn Krist-
laug María Sigurðardóttir er spennt yfir að bíóskemmtunin
Ávaxtakarfan sé loks á leið á hvíta tjaldið en litríku karakter-
arnir Immi ananas og Mæja jarðaber verða á sínum stað. KRISTLAUG MARÍA
SIGURÐARDÓTTIR
Tökum á Hollywood-hasarmynd
Baltasars Kormáks, 2 Guns, lýkur
í byrjun september en þær hófust
í júníbyrjun.
„Þetta hefur gengið mjög vel.
Við erum á áætlun og það lítur út
fyrir að við klárum þetta á réttum
tíma. Það virðast allir vera sátt-
ir við efnið en svo kemur þetta
allt í ljós,“ segir Baltasar, sem
var staddur í Nýju-Mexíkó þegar
Fréttablaðið ræddi við hann.
2 Guns er tvisvar til þrisvar
sinnum dýrari en síðasta mynd
Baltasars, hin vinsæla Contra-
band. Heildarpakkinn hljóðar
upp á rúmlega tíu milljarða króna.
Leikstjórinn viðurkennir að það sé
mjög mikil pressan á sér að skila
af sér góðu verki og halda áætlun.
„Þegar við erum komin með svona
stórar myndir er feikileg pressa.“
Óskarsverðlaunahafinn Denzel
Washington og Mark Wahlberg
leika aðalhlutverkin í 2 Guns og
með smærri hlutverk fara þekkt-
ir leikarar á borð við Bill Paxton,
James Marsden, Edward James
Olmos, Fred Ward og Paulu Patton.
Hvernig er að vinna með stjörn-
um eins og Denzel Washington?
„Það er bara meiri háttar. Þetta
eru ekki auðveldir karlar, eins og
hann til dæmis. En hann er frábær
leikari og það er frábært að vinna
með honum. Það er mjög fín sam-
staða á milli okkar og við náum
mjög vel saman. En þetta fólk
gerir miklar kröfur og er fylg-
ið sér eins og aðrir líka,“ greinir
hann frá. „Mark þekki ég vel. Ég
er búinn að vinna með honum áður
og það er gott samband á milli
okkar.“
Á venjulegum tökudegi vakn-
ar Baltasar um hálfsjö. Aðstoð-
armaður keyrir hann á tökustað
en í millitíðinni eiga þeir mikil-
vægt stopp á Starbucks. „Svo er
ég meira og minna að hamast í
þessu í tólf tíma þangað til birtan
fer á milli sjö og átta. Svo er bara
farið heim og fengið sér kvöldmat
og yfirleitt er maður búinn á því.“
Frumsýning er áætluð 16. ágúst
á næsta ári. Eftir að tökum á 2
Guns lýkur snýr Baltasar sér að
annarri mynd, Djúpinu, og kynnir
hana á kvikmyndahátíðinni í Tor-
onto um miðjan september. Mynd-
in verður frumsýnd hér heima 21.
september þar sem leikstjórinn
verður viðstaddur. Eftir það flýg-
ur hann til Los Angeles og vinnur
við klippingu 2 Guns. „Ég er rosa-
lega ánægður með þá mynd,“ segir
hann um Djúpið. „Þetta er mynd
sem ég er hvað stoltastur af að
hafa gert.“ freyr@frettabladid.is
BALTASAR KORMÁKUR: FRÁBÆRT AÐ VINNA MEÐ DENZEL WASHINGTON
Feikileg pressa á tökustað
Á TÖKUSTAÐ Baltasar Kormákur ásamt Denzel Washington og Mark Wahlberg á tökustað 2 Guns.