Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 22
11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR22
Fegurðin í því stóra og smáa
Náttúran var þema þriðja hluta sumarmyndakeppni Fréttablaðsins. Þátttaka var geysigóð og ber þess órækt vitni að náttúran
höfðar til þeirra fjölmörgu sem ferðast um landið okkar með myndavélar. Hlutskarpastur varð Guðmundur Árnason í Reykja-
nesbæ sem á forsíðumynd blaðsins í dag og hlýtur tvo farmiða með flugfélaginu Wow Air til Evrópu að launum.
Gunnar Jónatansson smellti þessari mynd af Seljalandsfossi í sumar. Hann kveðst vera að sækja í sig
veðrið í myndatökunum en þó aldrei hafa tekið þátt í samkeppni fyrr.
„Ég var búinn að liggja dálitla stund við Skorradalsvatn með kríuungann í fókus og bíða eftir að foreldrið
kæmi með fæðu. Samt hef ég oft legið lengur yfir fuglum,“ segir Kári Kolbeinsson sem tók þessa mynd.
Valdís Leifsdóttir skokkaði upp á Vífilsfell á forsetakosningadag-
inn og fangaði útsýnið yfir höfuðborgina og Faxaflóann, með fjall-
göngumann í forgrunni en Snæfellsjökul út við sjóndeildarhring.
Silke Schrom var í Kerlingarfjöllum 16. júlí í sumar. Hún skynjaði
sterkt smæð mannsins gagnvart því stóra í náttúrunni og varð
hugsað til Davíðssálms 8.4+5.
Hvað segirðu, það er æðis-legt!“ segir handhafi fyrstu
verðlaunanna, Guðmundur
Árnason, kátur þegar hann fær
þær fréttir að hann sé á leiðinni
út í heim fyrir mynd sína af
sandlóuunga sem hann nefnir
Fyrstu skrefin. „Hann stillti sér
upp þessi ungi og foreldrarnir
sveimuðu í kringum mig,“ segir
Guðmundur sem tók verðlauna-
myndina 20. júlí rétt ofan við
höfnina á Grenivík.
Guðmundur vinnur í vopna-
leitinni í Leifsstöð en kveðst
vera áhugaljósmyndari með
atvinnumannaáhuga. „Ég fékk
algera myndabakteríu eftir
að ég keypti mér Nikon D-90
myndavél í ágúst í fyrra. Svo
fjárfesti ég í D-800 í apríl í vor
sem er enn fullkomnari vél og
síðan er ég óstöðvandi. En þetta
er í fyrsta skipti sem ég sendi
myndir í svona keppni.“
Fyrstu skrefin í 1. sæti
2. SÆTI
4. SÆTI
5. SÆTI
3. SÆTI
Verðlaun fyrir 1. sætið eru farseðlar fyrir tvo til Evrópu með flugfélaginu
Wow Air. Þeir sem fengu 2. og 3. verðlaun hljóta gjafakort með leikhús-
miðum fyrir tvo í Borgarleikhúsið. Dómnefndina skipuðu Vilhelm Gunnars-
son, ljósmyndari Fréttablaðsins, Steinunn Stefánsdóttir aðstoðarritstjóri og
Hólmfríður Sigurðardóttir blaðamaður.
Næsta þema: Svona er sumarið ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is