Fréttablaðið - 11.08.2012, Page 59
LAUGARDAGUR 11. ágúst 2012 21
Markaðs- og upplýsingafulltrúi
Fjarðabyggð auglýsir starf markaðs- og
upplýsingafulltrúa laust til umsóknar
Markaðs- og upplýsingafulltrúi hefur umsjón með markaðsstarfi,
kynningar- og upplýsingamálum sveitarfélagsins. Hann er hluti af
stjórnsýslu- og þjónustusviði og vinnur m.a. að stefnumörkun og
þróunarstarfi á sviðinu.
Helstu verkefni:
• Umsjón með markaðsstarfi sveitarfélagsins
• Þróun í atvinnu- og ferðamálum.
• Skipulagning upplýsinga- og kynningarmála sveitarfélagsins.
• Samstarf við Austurbrú vegna markaðs-, atvinnu- og ferðamála.
• Skipulag viðburða
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af markaðs- og kynningarmálum.
• Þekking á atvinnumálum er æskileg.
• Framúrskarandi samstarfs-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
• Frumkvæð og öguð vinnubrögð.
• Góð tungumálakunnátta og ritfærni
Starfið er í þróun í samræmi við áherslur sveitarfélagsins á þeim
málaflokkum sem stjórnsýslu- og þjónustusvið ber ábyrgð á. Rík
áhersla er lögð á teymisvinnu á sviðinu. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma
470 9062 eða á netfanginu gunnar@fjardabyggd.is Umsóknar-
frestur er til og með 20. ágúst 2012 og æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. október n.k. Umsóknir
berist til skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Kvöld- og helgarvinna
10–11 óskar eftir að ráða starfsfólk í kvöld- og helgarvinnu
Menntunar og hæfniskröfur
...alltaf opið!
Er séns
að við séum
að leita að
þér?
sími: 511 1144