Fréttablaðið - 11.08.2012, Side 71
KYNNING − AUGLÝSING CrossFit11. ÁGÚST 2012 LAUGARDAGUR 5
Þann 1. september næstkom-andi opnar CrossFit Power nýja CrossFit-stöð að Suð-
urlandsbraut 6b. „Við sáum tæki-
færi, nokkrir CrossFit þjálfar-
ar, þegar húsnæðið losnaði til
að opna nýja stöð. Það eru allar
aðrar CrossFit-stöðvar stútfull-
ar og ég held að CrossFit sé fram-
tíðin og að þetta sé rétt að byrja.
Okkur langaði að deila þekk-
ingu okkar og áhuga á CrossFit
og ætlum að koma fróðleik okkar
á framfæri hér í CrossFit Power,“
segir Hallgrímur Andri Ingvars-
son, einn stofnenda stöðvarinnar.
CrossFit Power er lítil stöð
og áherslan því á góða og pers-
ónulega þjónustu og gott verð.
„Við leggjum líka mikla áherslu
á að fólk geri æfingarnar á rétt-
an hátt. Í CrossFit eru stundaðar
æfingar sem eiga það sameigin-
legt að reyna á mörg liðamót og
marga vöðvahópa í einu. Þetta
eru æfingar sem eru okkur nátt-
úrulegar og við gerum þær í raun
og veru á hverjum degi án þess að
vita af því. Tilfinningin að æfa á
CrossFit-stöð er allt öðruvísi en á
öllum öðrum líkamsræktarstöðv-
um. Í f lestum CrossFit-stöðvum
eru engir speglar, enginn er með
sína eigin tónlist í heyrnartól-
um eða í sínum eigin heimi eins
og gengur og gerist í venjulegum
líkamsræktarstöðvum. Í CrossFit
er fólk að tala saman, hvetja hvort
annað, hafa gaman af og vina-
sambönd myndast. Við viljum
hafa æfingarnar eins fjölbreytt-
ar og skemmtilegar og hægt er,“
segir Hallgrímur. Allir þjálfarar
CrossFit Power hafa lokið þjálf-
aranámskeiði í CrossFit.
Í húsnæði CrossFit Power hafa
undanfarin rúm tuttugu ár verið
starfræktar líkamsræktarstöðvar
og er aðstaðan því góð. „Við erum
búnir að vera að laga hér til, mála
og taka gólfin í gegn. Við verðum
með ný tæki og flottar græjur en
sama gamla góða andrúmsloftið
sem hefur verið hér undanfarin ár
verður hér áfram.“
Nánari upplýsingar um starf-
semi stöðvarinnar má finna á
heimasíðu hennar, crossfitpower.
is.
Í CrossFit er fólk
að tala saman,
hvetja hvort annað, hafa
gaman af og vinasam-
bönd myndast.
LÍKAMSRÆKT Í 20 ÁR
CrossFit Power er til húsa á
Suðurlandsbraut 6b á bak við
Nings. Húsið á sér langa sögu á
sviði líkamsræktar en það var fyrir
meira en tuttugu árum síðan að
Gym80 opnaði þar líkamsræktar-
stöð. Sú stöð var rekin meðal
annarra af Jóni Páli heitnum og
voru margir kraftmolar sem ólust
upp í líkamsræktarstöðinni.
Árið 2005 hóf Bootcamp
starfsemi í húsnæðinu en fyrir-
tækið yfirgaf Suðurlandsbrautina
nú í sumar. Starfsemi hússins
hefur verið til fyrirmyndar frá
upphafi og er umtalað hversu
góður andi svífur yfir hús-
næðinu. Það var þess vegna sem
stofnendur CrossFit Power gátu
ekki hugsað sér að láta húsnæðið
verða að bílaverkstæði eins og
er í mörgum húsum þar í kring
og slógu til og stofnuðu nýja
CrossFit-stöð.
CROSSFIT FYRIR ALLA
Það er enginn of gamall fyrir
CrossFit og CrossFit er ekki of
erfitt fyrir einn eða neinn þar sem
hægt er að sníða allar æfingar í
CrossFit að líkamlegum þörfum
hvers og eins. Ein helsta reglan í
CrossFit er sú að hverja einustu
æfingu, sem gerð er, er hægt
að skala niður og mæta þannig
þörfum allra. Með því er átt við
að æfingin er gerð erfiðari fyrir
þá sem eru góðir og léttari fyrir
þá sem eru ekki eins reynslu-
miklir. CrossFit Power býður upp á
grunnnámskeið í hverjum mánuði
þar sem hægt er að byrja hvenær
sem er. Þar geta þeir sem aldrei
hafa prófað CrossFit og eru ef til
vill ekki í sínu besta formi lært
æfingarnar á réttan hátt. Stöðin
býður líka upp á hraðnámskeið
sem haldin eru á einni helgi. Þar
getur fólk sem er í ágætu formi
en hefur ekki stundað CrossFit
áður lært undirstöðuatriðin og
þannig orðið tilbúið til að mæta á
reglulegar æfingar.
Ný stöð í gömlu húsi með sál
CrossFit Power opnar nýja stöð að Suðurlandsbraut 6b. Starfsfólk stöðvarinnar leggur áherslu á góða og
persónulega þjónustu og er andinn í húsinu sagður sérstaklega góður enda er það líkamsræktarfólki að
góðu kunnugt. Þar hafa líkamsræktarstöðvar verið með aðstöðu undanfarin rúm tuttugu ár.
Hallgrímur og félagar hans í CrossFit Power eru á fullu að gera nýju stöðina klára en hún opnar þann 1. september næstkomandi. MYND/GVA