Fréttablaðið - 11.08.2012, Qupperneq 72
KYNNING − AUGLÝSINGCrossFit LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 20126
ast alfarið grænmetisæta. Hún
hefur ávallt haft varann á hvað
varðar töku fæðubótarefna, sér-
staklega eftir að hún eignaðist
dóttir sína sem er enn á brjósti.
„Ég rakst á PRO-VX próteinið frá
Sci-MX hjá Líkama og lífsstíl sem
inniheldur engar dýraafurðir og er
unnið úr sojabaunum, hrísgrjón-
um og fleiru. Það hefur aukið styrk
minn talsvert. Nýlega fór ég að taka
CREA+ kreatín frá Sci-MX og varð
alveg hissa hvað það jók kraftinn
í beinu samhengi við inntöku.“
Spurð um framtíðina segist Anna
stefna á næsta heimsmeistaramót
í Crossfit og að ná lengra í ólymp-
ísku lyftingunum. Gaman verð-
ur að fylgjast með afrekum Önnu í
framtíðinni enda við öllu að búast
þegar þvílík afreksíþróttakona er
á ferð.
Anna leggur stund á doktors-nám við Háskóla Íslands. Meðfram stífu námi iðkar
hún Crossfit af miklum móð. Hún
hefur einungis æft greinina í tæpt
ár en hefur náð undraverðum ár-
angri. Anna komst meðal annars
á Evrópumeistaramótið í Crossfit
sem haldið var í Danmörku fyrr í
sumar auk þess að slá tvö Íslands-
met í ólympískum lyftingum á móti
sem haldið var á Akureyri í júlí.
„Ég æfði áhaldafimleika á yngri
árum en lenti í óhappi á æfingu
og fór úr hryggjarlið. Ég var allt-
af slæm í bakinu og mátti lítið gera
án þess að bólgur tækju sig upp. Þá
svaf ég illa og mig verkjaði í allan
skrokkinn.“ Anna hélt að hún gæti
aldrei stundað álíka íþrótt og fim-
leika þar sem æfingar eru stífar og
miklar kröfur gerðar. „Eftir að ég fór
að æfa Crossfit gat ég farið að gera
alls kyns lyftur sem áður hefðu sett
bakið á mér í hnút. Crossfit er því
fullkomið æfingarkerfi fyrir mig.“
Anna missti móður sína úr
krabbameini árið 2010 sem var
henni mikið áfall. Í kjölfarið breytti
hún mataræði sínu og gerðist nán-
Rannsókn sem framkvæmd var af
vísindamönnum við háskólanum
í Michigan sýnir fram á það með
óyggjandi hætti að kvæntir menn
borða oftar grænmeti en einhleyp-
ir kynbræður þeirra – til að halda
friðinn heima fyrir.
Karlmenn eru til í að belgja sig út
af spergilkáli eingöngu til að halda
rólegheitalífi heima. Í flestum til-
fellum er það konan sem kaup-
ir í matinn og eldar hann. Hún er
því nokkuð einráð um hvað boðið
er upp á í hádegis- eða kvöldmat.
Flestir karlmennirnir sögðu að þeir
borðuðu hollan mat vegna þess að
konan byði upp á hann.
Margir kvæntir karlmenn „stel-
ast“ í skyndimat ef konan er að
heiman eða þeir sjálfir. „Þegar
konan er ekki heima finnst mér
mjög gott að fara á veitingahús sem
býður upp á hlaðborð. Þá getur
maður borðað eins og maður vill,“
sagði einn þátttakandinn í könn-
unni. Þá kom í ljós að eiginmenn-
irnir sögðust ekki eingöngu fá holl-
ari mat heldur eru húsmæðurn-
ar hættar að kaupa inn gos, nasl,
kex og sælgæti. Þær hugsa mun
meira um kaloríufjöldann heldur
en karlarnir.
Könnun þessi var einungis
gerð á meðal bandarískra blökku-
manna. Að sögn aðstoðarprófess-
ors sem vann við gerð hennar verð-
ur nú lögð áhersla á aðra hópa karl-
manna. Með þessari rannsókn er
hægt að skoða innkaupavenjur
á heimilum. „Annar þátttakandi
sagði að það hlytu að vera einhver
takmörk fyrir því hversu mikið af
kalkúnakjöti væri á boðstólum.
Hann kallaði eftir fjölbreyttari kjöt-
tegundum á kvöldverðarborðið.
Karlarnir ættu hins vegar að gæta
sín á aukakílóunum og hugsa um
heilsuna.“
Kvæntir menn búa við
hollara mataræði
Einhleypir karlmenn borða síður grænmetisrétti en þeir kvæntu. Þökk sé eiginkonum.
Líkami og lífsstíll er einkaumboðs-
aðili Sci-MX fæðubótarefna á Íslandi.
Hjá Sci-MX eru engar málamiðlanir
gerðar hvað gæðin varðar. Allar vör-
urnar eru framleiddar í Evrópu undir
ströngustu reglugerðum sem finnast í
heimunum. Með hinum einstöku háu
stöðlum á hráefnavali, nákvæmri framleiðslutækni og gríðarlegum hrein-
leika er tryggt að þú getir keypt allar vörur okkar með algjörri fullvissu
um gæðin, öryggi, nákvæma innihaldslýsingu og virkni. Hver einasta
framleiðslulota gengst undir ítarlega efnagreiningu, er 100% rekjanleg
ásamt því að vera með ISO-9001 (BS EN ISO 9001 : 2000) og ISO-17025
vottanir.
Sci-MX er eini fæðubótarefnaframleiðandi í Evrópu sem uppfyllir að
fullu strangar reglugerðir og staðla Matvælaöryggisstofnunar Evrópu
(EFSA). Einnig er Sci-MX eina ESB skrásetta fæðubótarvörumerkið í
Evrópu. Nánari upplýsingar er að finna á: www.thinnlikami.is
Doktorsnám,Crossfit, brjóstagjöf og lyftingar
Anna Hulda Ólafsdóttir leggur stund á doktorsnám í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Meðfram námi æfir hún Crossfit og
ólympískar lyftingar af krafti. Hún sló tvö Íslandsmet í ólympískum lyftingum í sumar.
Anna Hulda Ólafsdóttir hefur æft Crossfit í tvö ár og náð undraverðum árangri. MYND/ANTON
Harpa Melsteð stundaði handbolta í 25 ár og var landsliðskona til margra ára. Þegar hún lagði skóna á hilluna eftir að hafa átt seinna
barnið sitt vantaði hana nýtt áhugamál. „Ég próf-
aði ýmislegt á þessum tíma. Ég fór í mömmuleikfimi
eftir að ég átti strákinn og fór svo í ræktina í hina og
þessa tíma. Svo kynntist ég Crossfit og féll fyrir því.
Þar fann ég æfingakerfi sem virkar og er skemmti-
legt í leiðinni,“ segir Harpa.
Hún segir hópastemmninguna sem ríkir í Cross-
fit hafa haft mikið um það að segja að hún hreifst af
því. „Ég er vön að vera í hópíþrótt og er mikil félags-
vera og því hentar mér ekki að fara ein í ræktina. Í
Crossfit skiptir félagsskapurinn miklu máli og ég er
búin að kynnast mörgu skemmtilegu fólki. Ég var
líka fljót að komast í gott form enda hafði ég ágæt-
an grunn. Ég tel að ég sé í mínu besta alhliða formi
núna enda er Crossfit svo fjölbreytt. Í því þarf fólk að
vera tilbúið að gera hvað sem er og geta tekist á við
alls kyns æfingar.“
Þrátt fyrir að hafa ekki áformað að taka frek-
ari þátt í keppnisíþróttum er Harpa farin að keppa
í Crossfit. „Ég hef tekið þátt í Þrekmótaröðinni þar
sem eru fjórar keppnir á ári. Svo keppti ég á Evrópu-
leikunum sem fram fóru í Danmörku fyrr í sumar.
Þar sem ég er orðin 37 ára gömul keppti ég ekki í ein-
staklingskeppninni en ég tók þátt í liðakeppninni á
leikunum. Þar náðum við að nýta styrkleika hvers
annars og náðum ágætum árangri,“ segir hún.
Harpa er komin með þjálfararéttindi og er sjálf
farin að þjálfa Crossfit. „Fyrir mér er mjög mikil-
vægt að gera allar æfingar á réttan hátt og ég passa
mjög vel upp á að þeir sem eru að æfa hjá mér æfi
rétt. Ég er sjúkraþjálfari líka og þetta snýst alltaf um
að hlusta á eigin líkama. Helsti kosturinn við Cross-
fit finnst mér vera að þar þurfa allir að fara í gegnum
grunnnámskeið í upphafi.“
Félagsskapur og fjöl-
breytni helstu kostirnir
Harpa Melsteð, sem er mörgum kunn sem handboltakona, hefur undanfarin
tvö ár iðkað Crossfit. Hún segir Crossfit vera bæði skemmtilegt og árangursríkt.
Harpa tekur á því á æfingu. Hún segist vera í sínu besta alhliða
formi á ævinni eftir að hún byrjaði að æfa Crossfit. MYND/ÚR EINKASAFNI