Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 78
11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR34
„Pabbi var búinn að spá þessu. Hann
sagði um leið og ég byrjaði í guð-
fræðinni að ég yrði Hólabiskup, þó
engin biskupsstaða væri þar á þeim
tíma. Hann fær því miður ekki að lifa
þann dag því hann dó fyrir sjö árum,“
segir séra Solveig Lára Guðmundsdótt-
ir sem á morgun verður vígð vígslu-
biskup Hólastiftis. Hún verður fyrst
kvenna til að gegna slíku embætti og
hlýtur vígslu af fyrsta kvenbiskupi
landsins, frú Agnesi M. Sigurðardótt-
ur. Tímanna tákn.
Séra Solveig Lára hefur verið prest-
ur á Möðruvöllum í Hörgárdal í tólf ár
og undirbýr nú flutning milli héraða,
ásamt manni sínum séra Gylfa Jóns-
syni. „Við búum hér í mjög stóru húsi
og okkur fylgir mikið dót sem við erum
að sortera,“ segir hún. „Biskupssetrið
á Hólum er reyndar stórt líka, þó bara
tvær hæðir en hér eru þrjár. Við höfum
gott af því að minnka við okkur draslið
en þetta er heilmikið stúss. Við vorum
fjögur sem fluttum hingað en dætur
okkar eru orðnar 22 og 24 ára og flytja
ekki með okkur. Þær eru báðar hér
heima núna að fara í gegnum ferming-
arkortin sín, gömlu skólabækurnar og
vídeóspólurnar, þannig að „henda, gefa,
geyma“ lögmálið er hér í fullu gildi.“
Hólastifti nær frá Hrútafirði til
Djúpavogs og í kosningabaráttunni
segir séra Solveig Lára þau hjónin hafa
ferðast um það mest allt. „Við heilsuð-
um upp á presta og sóknarnefndarfor-
menn sem voru heima. Fórum þó ekki
út í Grímsey en ég ætla að láta það
verða meðal minna fyrstu verka að
fara þangað og hlakka til því til Gríms-
eyjar hef ég aldrei komið.“
Séra Solveig Lára tekur við embætti
1. september. Nóg verður að gera hjá
henni fyrstu dagana því 1. september
verður kirkjuþing og 2. september 80
ára afmæli kirkjunnar á Siglufirði. En
áður en að því kemur segir hún þau
hjónin ætla að skreppa til Þýskalands,
á Lúthersslóðir, með fleira kirkjunnar
fólki, undir handleiðslu séra Gunnars
Kristjánssonar og Önnu M. Höskulds-
dóttur konu hans. „Það verður gaman
að komast aðeins í frí,“ segir hún.
Presturinn á Hofsósi er sóknar-
prestur á Hólum að sögn séra Sol-
veigar Láru. „Þetta er í fyrsta skipti
á mínum 29 ára starfsferli sem ég
verð ekki sóknarprestur, heldur mun
ég hafa yfirumsjón með kirkjustarfi í
öllu stiftinu. Séra Jón Aðalsteinn Bald-
vinsson, sem hefur gegnt þessu emb-
ætti síðustu níu ár, hefur stutt vel við
það starf. Nú er komið að mér að vera
slíkur bakhjarl og þar kemur reynsla
mín úr prestsstarfinu sér vel. Fólk veit
að það getur leitað til prestanna hve-
nær sem eitthvað bjátar á og það þarfn-
ast uppörvunar og hvatningar. Þann-
ig er vígslubiskupinn til staðar fyrir
presta og safnaðarstarfsfólk og veit-
ir því andlega handleiðslu. Eitt af því
sem ég vil beita mér fyrir í embætt-
inu er að efla Hólastað enn frekar sem
kirkjulegt setur, vera þar með kyrrð-
ardaga, námskeið og andlega uppbygg-
ingu fyrir það frábæra fólk sem vinnur
fyrir kirkjuna.“
Skrifstofa vígslubiskups er í Auð-
unarstofu, en hún er eftirlíking timb-
urstofu sem stóð á Hólum frá 1317 til
1810. „Ég hlakka alveg ótrúlega til að
fara í vinnuna í það dásamlega hús á
hverjum degi,“ segir séra Solveig Lára
og það eru lokaorð í þessu spjalli.
gun@frettabladid.is
timamot@frettabladid.is
Eitt af því sem ég vil beita mér fyrir í embættinu
er að efla Hólastað enn frekar sem kirkjulegt setur,
vera þar með kyrrðardaga, námskeið og andlega uppbygg-
ingu fyrir það frábæra fólk sem vinnur fyrir kirkjuna.“
BRAGI ÓLAFSSON rithöfundur á afmæli í dag.
„Við erum alltaf að passa hvert upp á annað með mismunandi árangri.“50
Merkisatburðir
1580 Katla gýs.
1794 Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur gengur við
annan mann á Öræfajökul. Er þetta önnur ferð manna á tind-
inn.
1938 Baden-Powell, upphafsmaður skátastarfs, og hópur
skátaforingja frá Englandi koma til Reykjavíkur.
1951 Á Bíldudal er afhjúpaður minnisvarði um Pétur J. Thor-
steinsson og konu hans Ásthildi, en Pétur rak þar verslun og
þilskipaútgerð og gerði síðar út frá Reykjavík.
1973 Austurstræti í Reykjavík er gert að göngugötu til reynslu.
1979 Flak af Northrop-flugvél sem nauðlenti á Þjórsá og sökk
þar 1943 er tekið upp og gefið safni í Noregi.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
MAGNÚS JAKOB MAGNÚSSON
til heimilis að Kötlufelli 11,
er látinn.
Guðmundur Magnússon Jóhanna Helgadóttir
Halldóra Magnúsdóttir
Gunnar Kári Magnússon Nana Egilson
Halla Magnúsdóttir Marías H. Guðmundsson
og frændsystkini.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR
áður til heimilis að
Nökkvavogi 42, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju
mánudaginn 13. ágúst kl. 14.00. Sérstakar
þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Sauðárkróks fyrir natni og alúð við umönnun hennar síðustu
æviárin. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík
kl. 08.00 að morgni útfarardags.
Páll K. Gunnarsson Esther Þorgrímsdóttir
Guðmundur Gunnarsson Bjarma Didriksen
Sigurður D. Gunnarsson Anna S. Gunnarsdóttir
Oddur Gunnarsson Áslaug Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐNÝJAR SÆBJARGAR
JÓNSDÓTTUR
frá Skerðingsstöðum, Reykhólasveit,
sem andaðist fimmtudaginn 12. júlí og
jarðsett var frá Reykhólakirkju laugardaginn 21. júlí 2012.
Finnur Kristjánsson
Jón Árni Sigurðsson Steinunn Rasmus
Kristján Finnsson Margrét Ásdís Bjarnadóttir
Karlotta Jóna Finnsdóttir Ásgeir Þór Árnason
Agnes Finnsdóttir Pálmi Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
hafa sýnt fjölskyldunni samúð vegna fráfalls
og útfarar mömmu okkar, tengdamömmu,
ömmu og langömmu,
KRISTJÖNU MILLU
THORSTEINSSON
viðskiptafræðings,
Haukanesi 28, Garðabæ.
Áslaug S. Alfreðsdóttir Ólafur Örn Ólafsson
Haukur Alfreðsson Anna Lísa Björnsdóttir
Ragnheiður Alfreðsdóttir
Katrín Guðný Alfreðsdóttir Árni S. Snæbjörnsson
Geirþrúður Alfreðsdóttir
Elías Alfreðsson
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
RAGNARS MICHELSEN
blómaskreytingamanns.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga
Karitas, starfsfólks krabbameinsdeildar
11 E á Landspítalanum og líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi, fyrir einstaka
umönnun og nærgætni í veikindum hans.
Guð veri með ykkur öllum.
Aðstandendur og vinir.
SÉRA SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR: VÍGIST SEM VÍGSLUBISKUP Á MORGUN
Pabbi var búinn að spá þessu
SÉRA SOLVEIG LÁRA „Við búum hér í mjög stóru húsi og okkur fylgir mikið dót sem við erum að sortera,“ segir séra Solveig Lára sem brátt flytur
frá Möðruvöllum að Hólum en er greinilega ekki búin að pakka öllum bókunum niður. MYND/HEIÐA.IS