Fréttablaðið - 11.08.2012, Síða 90

Fréttablaðið - 11.08.2012, Síða 90
11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR46 Tónlistarhátíð hefst í Strand- arkirkju í Selvogi klukkan 14 á morgun, 12. ágúst, sem standa mun yfir tvær helgar. Elísabet Waage hörpuleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari leika efnis- skrá með björtu yfirbragði þar sem hljóðfærin blandast í verk- um eftir Couperin, Saint-Saëns og Granados. Einnig hljóma íslensk lög eftir Sigfús Einarsson og Árna Thorsteinsson og nýlegt verk eftir John Speight. Þar birt- ast draumkenndar sýnir en ljúf- sárar laglínur og fjörugir dansar einkenna tónleikana. Síðari tónleikar hátíðar- innar verða sunnudaginn 19. ágúst klukkan 14 og þá verð- ur jafnframt árleg uppskeru- messa í Strandarkirkju í umsjá séra Baldurs Kristjánssonar og messu og tónleikum fléttað saman á sérstakan hátt. Á tón- leikunum koma fram Björg Þór- hallsdóttir sópransöngkona, sem er listrænn stjórnandi hátíðar- innar, Elísabet Waage hörpuleik- ari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Með björtu yfirbragði í Strandarkirkju GUNNAR KVARAN OG ELÍSABET WAAGE Ljúfsárar laglínur og fjörugir dansar einkenna tónleikana í hinni mögnuðu Strandarkirkju. Bækur ★★★ ★★ Draugaverkir Thomas Enger Uppheimar Morð í myndveri Skindauði eftir Thomas Enger var einn allra besti krimminn sem út kom á íslensku í fyrra og það var því með nokkurri eftirvænt- ingu sem lesturinn á nýju bókinni, Drauga- verkjum, hófst. Enger er flinkur höfundur og aðal- persónan, blaða- maðurinn Henning Juul, er sympatísk og fersk tilbreyting frá hinum dæmigerða norræna lögreglufor- ingja. Skemmst er þó frá því að segja að vegna mikilla væntinga valda Draugaverkir nokkrum von- brigðum. Engu að síður er sagan hin athyglisverðasta og töluvert fyrir ofan meðallag hvað varðar glæpasögur. Dæmdur morðingi hringir í Juul og segist geta sagt honum hvað olli dauða sonar hans, en með því skilyrði að Juul takist að sanna sakleysi hans. Áður en til þess kemur er þó morðinginn myrtur í sjónvarpsupptöku og Juul stendur frammi fyrir því, að því er virðist, vonlausa verkefni að leysa gátuna um morðið á honum, auk morðs- ins sem hann sat inni fyrir og ofan í kaupið að reyna að grafast fyrir um orsökina fyrir íkveikjunni sem olli dauða sonar hans sjálfs. Draugaverkir er um margt hefð- bundnari glæpasaga en Skindauði, skipulögð glæpastarfsemi, gengja- stríð og leigumorðingjar eru í forgrunni og fyrir þennan lesanda hér er það engan veginn jafn áhugavert og sögur af glæpum sem spretta af persónulegum hvötum, en það er auðvitað smekksatriði. Glæponarnir eru líka staðlaðar steríótýpur og satt best að segja verður sálarstríð Juuls blessaðs agnarlítið þreytandi til lengdar þótt skömm sé frá að segja. Bestu sprettir sögunnar eru frásagnir af hinum ofurvenjulega hljóðmanni sjónvarpsstöðvar sem allsendis óvart dregst inn í mið- punkt atburðarásarinnar. Elskhugi fyrrum eiginkonu Juuls fær hér líka uppreisn æru frá fyrri bókinni og samskipti þeirra eru einn dýnamís- kasti þáttur sögunnar. Langt er þó frá því að manni leiðist við lesturinn, til þess er Enger alltof fær penni og góður sögumaður. Sennilega má skrifa deyfðina sem á köflum leggur textann undir sig á hið algenga annarrar bókar heil- kenni og óhætt að hlakka til næstu bókar hans, sem án nokkurs vafa er væntanleg þar sem þessi endar á upphafi nýrra átaka. Þýðing Höllu Sverrisdóttur er áferðargóð og rennur áreynslulaust án nokkurs teljandi þýðingarkeims. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Fínasti krimmi frá höfundi sem gefur fyrirheit um enn betri tilþrif í framtíðinni. MUNDU AÐ EFNI SEM ÞÚ SETUR Á NETIÐ ER ÖLLUM OPIÐ, ALLTAF! www.saft.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.