Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2012, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 13.08.2012, Qupperneq 2
13. ágúst 2012 MÁNUDAGUR2 Ætlar þú að breyta um lífsstíl? Heilsulausnir henta einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúk- dóma og/eða sykursýki. Hefst 27. ágúst Kynningarfundur Fimmtud. 16. ágúst kl. 17:30 Allir velkomnir MANNLÍF Sunnlendingar og Hún- vetningar hafa nú hafist handa við að koma höfuðritum sínum á refla að hætti evrópskra miðaldamanna. Húnvetningar eru þó lengra á veg komnir með sinn Vatnsdælurefil en ekki er enn búið að stinga nál í Njálurefil þeirra Sunnlendinga. Húnvetningarnir tóku hins vegar fyrsta sporið þann 16. júlí í fyrra og miðar refilsaumnum vel að sögn Jóhönnu E. Pálmadóttur á Akri en hún hefur forgöngu um þetta umfangsmikla verk. „Fullsaumaður verður hann 46 metrar en nú eru búnir 3,3 metr- ar,“ segir Jóhanna. „Okkur ligg- ur ekkert á, aðalatriðið er að hafa gaman meðan við komum saman og saumum.“ Hún áætlar að verkið taki um áratug og á meðan gefst tími til að huga að því hvar hýsa skuli refil- inn. „Ég hef nú sagt í gríni að það ætti bara að byggja hús utan um hann. Það hefur nú oft verið byggt hús á Íslandi en aldrei verið saum- aður refill nema þá kannski eitt- hvað á landnámstíð.“ Hún hefur aldeilis notið full- tingis síns heimafólks sem er dug- legt við að koma við í Textílsetr- inu í Kvennaskólanum á Blönduósi. „Ég var að taka þetta saman en við erum búin að fá 535 heimsóknir og á bak við þessa 3,3 metra liggur 947 klukkustunda saumaskapur.“ Jóhanna segir sér renna blóðið til skyldunnar en hún er komin af Ingimundi gamla, landnámsmanni þeirra Húnvetninga, í 37. lið. Þessi myndarskapur hreyfði við Sunnlendingum svo þær Gunnhild- ur E. Kristjánsdóttir og Christina Bengtsson tóku sig til og fengu Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur til að teikna upp refilinn en hún var einmitt Húnvetningunum innan handar með sama hætti. Hann mun verða á bilinu 80 til 100 metrar og þar á bæ gefa menn sér rúman ára- tug til verksins. „Það fer allt eftir því hvað fólk verður duglegt að taka þátt í þessu,“ segir Christina. Saumaskapurinn mun fara fram í Sögusetrinu á Hvolsvelli og verður fyrsta sporið tekið þann 2. febrúar næstkomandi. Sigurður Hróarsson, forstöðumaður Sögu- setursins, fagnar þessu framtaki en neitar því þó ekki að stundum kæmi það sér ágætlega að búa á Kjalarnesi en ekki á Njáluslóð- um en Kjalnesingasaga er stutt í annan endann. Bæði Jóhanna og Christina segj- ast vona að framtak þeirra verði til þess að fólk taki við sér víða um land. „Það væri svo gaman ef heimamenn myndu refilsauma sitt höfuðrit svo allar Íslendinga- sögurnar verði til í þessu formi,“ segir Christina sem er frá Svíþjóð en segist bera Njálu í blóðinu eftir þrjátíu ára Íslandsdvöl. jse@frettabladid.is Njála sem mun ná tæpa hundrað metra Á Blönduósi og Hvolsvelli vinna heimamenn nú að því að sauma sín höfuðrit á refla. Njála verður tæplega hundrað metra löng og Vatnsdæla einir 46 metrar. Bæði Húnvetningar og Sunnlendingar taka sér áratug til að klára verkið. MYND KOMIN Á NJÁLUREFILINN Hér eru þær Kristín Ragna Gunnarsdóttir teiknari, Gunnhildur E. Kristjánsdóttir og Christina Bengtsson með refilinn sem á aldeilis eftir að teygjast í annan endann. FJÖLMIÐLAR Í Fréttablaðinu á laugardag birtist auglýsing undir yfirskriftinni „Ef kristið fólk þegir þá talar Biblían …“ Þar var birt tilvitnun í fyrra Korintubréf Biblíunnar. Þau mistök voru gerð við birtingu auglýsingarinnar að krefjast þess ekki að auglýsandinn nafngreindi sig. Kaupandi auglýs- ingarinnar er Söfnuður Moskvu- Patríarkatsins á Íslandi, öðru nafni Rússneska rétttrúnaðar- kirkjan. Beðist er afsökunar á mis- tökunum. - bj Auglýsing með biblíutilvitnun: Rétttrúnaðar- kirkjan keypti auglýsinguna BANDARÍKIN, AP Paul Ryan verð- ur varaforsetaefni repúblikan- ans Mitts Romney í forsetakjöri í Bandaríkjunum í nóvember. Þetta tilkynnti Romney um borð í herskipi í Virginíuríki á laugar- dag. Ryan hefur verið þingmað- ur Wisconsin í neðri deild banda- ríska þingsins síðan árið 1999 en hann er aðeins 42 ára gamall. Mikil leynd ríkti um val Rom- ney á varaforsetaefni sínu en með Ryan innanborðs mun fram- boðið bjóða upp á skýran valkost á öndverðum meiði við framboð demókratanna Baracks Obama og Joes Biden. Ryan þykir höfða meira til fólks yst á hægri væng stjórnmálanna en hann hefur meðal annars lagt til að velferð- arkerfið í Bandaríkjunum verði einkavætt. Ryan er frjálshyggjumaður og hefur lengi haldið því fram að stefna ríkisstjórnar Obama í efnahagsmálum sé röng. Hann er jafnframt helsti höfundur að til- lögu repúblikana til fjárlaga og andstæðingur umbóta Obama á heilbrigðiskerfi alríkisins. Framboðsstjóri Obama svaraði útspili Romney með yfirlýsingu þar sem hann sagði hugmyndir Romney og Ryan í efnahagsmál- um byggja á gallaðri kenningu. Þar væri reynt að efla ríkissjóð með skattalækkunum á þá ríkari og skattahækkunum á millistéttina og eldri borgara. Formaður lands- nefndar demókrata sagði að Rom- ney og Ryan myndu endurtaka mis- tök George W. Bush, forvera Obama í embætti forseta. - bþh Mitt Romney, forsetaframbjóðandi repúblikana, höfðar til kjósenda yst á hægri væng stjórnmálanna: Paul Ryan valinn varaforsetaefni Romney Á FRAMBOÐSFUNDI Mitt Romney og Paul Ryan leiða framboð repúblikana til forseta Bandaríkjanna gegn Barack Obama, sitjandi forseta. NORDICPHOTOS/AFP HORFIN Einu vísbendingarnar sem lög- reglan hefur um hvarf Sigrid eru sokkur, strigaskór og farsími. NOREGUR Vika var í gær liðin síðan hin 16 ára Sigrud Giskegj- erde Schetnes hvarf á leið heim til sín i Østensjø-hverfinu í Ósló. Norska lögreglan virðist engu nær um hvarf stúlkunnar en alls hafa borist um 1.500 ábendingar frá almenningi. Einu vísbendingar lögreglunnar eru sokkur, striga- skór og farsími sem fundust á leik- velli í nágrenni heimilis Sigrid. Lýst hefur verið eftir tveimur bílum í tengslum við hvarfið en þeir sáust í nágrenni leikskólans þar sem talið er að Sigrid hafi horfið, um kortér eftir miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 5. ágúst. Lögreglan telur ekki alla von úti um að finna Sigrid á lífi. - áp Um 1.500 ábendingar borist: Leitin að Sigrid heldur áfram ÍRAN, AP Tveir öflugir jarðskjálftar riðu yfir norðvest- urhluta Írans á laugardag og urðu minnst 250 manns að bana. Ríkissjónvarpið í Íran sagði þúsundir til við- bótar vera særðar. Um 16.000 manns eru heimilislaus eftir skjálftana og búa nú í 5.000 neyðartjöldum. Fyrsti jarðskjálftinn, sem varð rétt fyrir klukkan fimm að staðartíma, mældist 6,4 stig. Hann var á tíu kílómetra dýpi norður af borginni Tabriz. Seinni skjálftinn reið yfir ellefu mínútum síðar og mældist hann 6,3 stig og á svipuðum stað og dýpi. Skjálft- arnir fundust víða við suðvesturströnd Kaspíahafs og ollu skelfingu meðal þeirra sem þá fundu. Um 36 eftirskjálftar fylgdu skjálftunum stóru. Að minnsta kosti tuttugu þorp jöfnuðust við jörðu í skjálftunum og 130 þorp til viðbótar eru mjög illa farin. Fólki á skjálftasvæðinu var gert að eyða aðfaranótt sunnudagsins utandyra ef fleiri skjálft- ar myndu ríða yfir. Yfirvöld í Íran óttuðust að fjöldi látinna myndi aukast því björgunarsveitir voru enn að grafa fólk úr rústunum þegar skyggja tók á laugardag. Leit var hætt í gær og athyglinni beint að heimilislaus- um. - bþh Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir Íran á laugardag og jöfnuðu hús við jörðu: Yfir 250 látnir og þúsundir slasaðar RÚSTIR EINAR Heilu þorpin jöfnuðust við jörðu í Íran á laugardag. Fólki var gert að gista undir berum himni aðfaranótt sunnudags vegna hættu á fleiri skjálftum. NORDICPHOTOS/AFP LONDON, AP Tvö hundruð slökkvi- liðsmenn voru kallaðir út er eldur braust út í endurvinnslustöð í Austur-London um hádegi í gær. Endurvinnslustöðin er um ell- efu kílómetra frá ólympíuþorpinu en slökkviliðið réði niðurlögum eldsins í tæka tíð fyrir lokahátíð Ólympíuleikanna sem fór fram í gærkvöldi. Eldurinn hafði því engin áhrif á Ólympíuleikana en á einum tímapunkti sást reykjar- strókur í loftinu yfir London. Engin slys urðu á fólki og er orsök brunans ekki kunn. - áp Endurvinnsla brann í London: Slökktu eldinn fyrir lokaathöfn BANDARÍKIN Verslunarkeðjan Safeway í Bandaríkjunum hefur tekið í notkun persónubundið afsláttarkerfi sem byggir á upplýs- ingum sem fást í gegnum notkun viðskiptavina á hollustukortum fyrirtækisins. New York Times greinir frá þessu. Í persónubundna afsláttar- kerfinu getur munað þó nokkru á verði vöru milli einstaklinga sem nota hollustukortin, allt eftir því hvort viðskiptavinirnir eru taldir líklegir til að fjárfesta í vörunni eður ei. Kaupvenjur notendanna er hægt að greina í gegnum hollustu- kortin. - kg Safeway í Bandaríkjunum: Ólík verð fyrir viðskiptavini LOKAHÁTÍÐ Bruninn hafði ekki áhrif á lokahátíð Ólympíuleikanna sem fram fór í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS Ragnhildur, skálaðirðu í einum ísköldum Duff þegar þú fékkst fréttirnar? „Nei, ég er frekar vonlaus í áfengis- drykkju og fékk mér límonaði í staðinn.“ Framleiðandinn Ragnhildur Thordarson hefur verið ráðin ráðgjafi hjá teikni- myndaseríunni The Simpsons. Ég hef nú sagt í gríni að það ætti bara að byggja hús utan um hann. JÓHANNA E. PÁLMADÓTTIR FORGÖNGUKONA UM VATNSDÆLAREFIL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.