Fréttablaðið - 13.08.2012, Side 48

Fréttablaðið - 13.08.2012, Side 48
13. ágúst 2012 MÁNUDAGUR24 sport@frettabladid.is Íslenskir landsliðsmenn voru á skotskónum um helgina í síðusta leikjum sínum fyrir landsleikinn við Færeyjar á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn. Aron Einar Gunnarsson skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Cardiff City á Newcastle í æfingaleik, Alfreð Finnbogason skoraði tvö og lagði upp eitt í 7-2 sigri Helsingborg á Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni og Kolbeinn Sigþórsson tryggði Ajax 2-2 jafntefli á móti AZ Alkmaar í fyrstu umferð hollensku deildarinnar. HANDbolti Aron Pálmarsson var valinn í úrvalslið handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en valið var tilkynnt fyrir úrslita­ leik Svía og Frakka í gær. Aron spilaði frábærlega með íslenska landsliðinu á mótinu og var alls með 37 mörk og 24 stoðsendingar í 6 leikjum. Aron, sem er aðeins 22 ára gamall, þótti líka vera besta vinstri skyttan að mati sérstakrar valnefndar hjá IHF. Þetta er fimmta stórmót íslenska landsliðsins í röð þar sem Ísland á fulltrúa í úrvalsliði og alls hafa íslenskir handboltamenn átt sjö sæti í þessum fimm úrvals­ liðum. Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson hafa komist tvisvar í úrvalslið stórmóta frá og með Ólympíuleikunum í Peking en Aron er fimmti íslenski leikmað­ urinn sem fær svona mikla viður­ kenningu fyrir frammistöðu sína á stóra sviðinu. Íslenskir leikmenn hafa því verið í sérflokki á síðustu stór­ mótum ef marka má valið á úrvals­ liðum mótanna. Hér er undanskilið heimsmeistarmótið í Króatíu 2009 en íslenska liðið var ekki með á því móti. - óój Aron Pálmarsson er fimmti Íslendingurinn sem kemst í úrvalslið stórmóta frá og með ÓL í Peking 2008: Aron besta vinstri skyttan á leikunum í London aron Pálmarsson Kom að meira en tíu mörkum í leik á leikunum í London. FréttabLaðið/vaLLi Ól 2012 Kári Steinn Karlsson sá til þess að Ólympíuleikarnir enduðu á jákvæðum nótum fyrir íslenska keppnisliðið en hann varð í 42. sæti í maraþonhlaupi karla sem fór fram í hjarta Lundúna í gær. Hann hljóp á 2.18:47 klst. sem er um einni og hálfri mínútu frá Íslandsmeti hans. Engu að síður er árangurinn sérlega góður því brautin var hæg og margir hlaup­ arar sem áttu betri tíma en Kári Steinn komu á eftir honum í mark eða féllu einfaldlega úr leik. „Þetta snerist frekar um að taka fram úr heldur en að keppa við tímann,“ sagði hann við Frétta­ blaðið eftir hlaupið í gær. „Á stór­ mótum eins og Ólympíuleikum skiptir tíminn engu máli – það eina sem fólk vill vita er í hvaða sæti maður lenti.“ 98 af keppendunum 105 höfðu hlaupið hraðar en Kári Steinn átti best á sínum ferli en hann var að þreyta aðeins sitt þriðja maraþon frá upphafi í gær. Árangurinn er í því ljósi sérlega góður. Þungt stórborgarloft Kári Steinn segir að aðstæður hefðu verið nokkuð erfiðar – en þó ekki alslæmar. „Það hefði getað verið 30 stiga hiti og sól allan tím­ ann,“ sagði hann en sólin skein þó lengst af í keppninni þó svo að hitastigið hafi ekki farið yfir 25 gráður. „Það var því nokkuð þungt loft hér í miðri stórborginni og maður fann fyrir því. Ég svitnaði mikið og passaði mig vel upp á að drekka mikið á leiðinni. Það borgaði sig því menn hrundu niður eins og dauðar flugur síðustu kílómetr­ ana, væntanlega vegna vökva­ skorts.“ Kári Steinn vann sig úr 94. sæti eftir fyrstu fimm kílómetrana og upp í 42. sæti. Hann vann sig upp um sæti hvert skipti sem millitími var tekinn, alveg fram á síðustu metrana. „Mér finnst ég hafa gefið allt í þetta. Maður nær aldrei 100 pró­ sent úr sér og mikil kúnst að halda einbeitingu allan tímann. Vissu­ lega komu kaflar þar sem ég hefði getað gert betur en ég tók samt vel á því og kláraði mig svo alveg á síðustu metrunum.“ Heyrði reglulega í Íslendingum Ótrúlegur fjöldi áhorfenda kom sér fyrir við hlaupaleiðina sem lá frá Buckinghamhöll í vestri og Lundúnaturni í austri. „Þetta var mjög flott leið og margar flottar byggingar á leið­ inni. Stundum leið manni eins og bíl í Formúlu 1 eftir að hafa farið í gegnum allar þessar beygjur. En það gerði þetta bara enn skemmti­ legra,“ sagði hann. „Það var samt hálfgert sjokk að fara af stað og fá þennan mann­ fjölda til að taka á móti manni. Maður sá að þetta voru ekki bara 2­3 raðir af áhorfendum heldur algjört mannhaf. Þetta var eins og í skrúðgöngu og lætin voru því­ lík,“ segir hann. „Það var erfitt að halda ró sinni í upphafi og lá við að það væri þægilegra að hlaupa þá spotta þar sem áhorfendur máttu ekki vera. En þegar þreytan tók yfir hætti maður að taka eftir þessu.“ Hann segist þó hafa heyrt kallað á sig með reglulegu milli­ bili. „Ég heyrði alltaf reglulega í Íslendingum og var mjög gott að finna fyrir stuðningnum.“ á nóg eftir Hann segist vera sáttur við niður­ stöðuna og 42. sætið. Það gefi góð fyrirheit fyrir framhaldið. „Þetta voru mínir fyrstu Ólymp­ íuleikar og innan við ár frá því ég hljóp maraþon í fyrsta skipti. Ég á því nóg eftir og stefni enn hærra á næstu mótum og næstu Ólympíu­ leikum.“ Gaf allt sem ég átti í síðustu metrana Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi á lokadegi ÓL í London í gær. Hann var um einni og hálfri mínútu frá Íslandsmetinu sínu en skilaði sér engu að síður í 42. sæti af 105 keppendum. kominn Í mark Kári Steinn Karlsson kemur hér í mark í maraþoninu í gær fyrstur Íslendinga á Ólympíuleikum. FréttabLaðið/vaLLi eiríkur stefán ásgeirsson og Valgarður Gíslason fjalla um ÓL 2012 eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is HANDbolti Frakkar urðu í gær ólympíumeistarar í handbolta karla eftir 22-21 sigur á Svíum í úrslitaleik. Frakkar vörðu þar með titil sinn frá því fyrir fjórum árum þegar þeir unnu Íslendinga í úrslitaleik. Frakkar töpuðu bara einum leik á mótinu og það var á móti Íslendingum. Þeir hafa nú unnið sex stórmótagull á síðustu sex árum eða á öllum stóru mótun- um, ÓL (2008, 2012), HM (2009, 2011) og EM (2006, 2010), tvisvar sinnum. Krótar fengu brons- ið eftir léttan sjö marka sigur á Ungverjum, 33-26. Íslenska landsliðið endaði í 5. sæti sem er þriðji besti árangur Íslands. - óój Frakkar ólympíumeistarar: Sex stórmóta- gull á sex árum THierry omeyer Er búinn að vinna 32 stóra titla á ferlinum. nordicphotoS/aFp Golf GKG og GR tryggðu sér sigur í Sveitakeppni GSÍ í gær. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar varð Íslandsmeistari í karlaflokki eftir 4­1 sigur á Golfklúbbi Setbergs í úrslitaleik. Golfklúbbur Reykjavíkur var búinn að vinna sveita­ keppni karla undanfarin tvö ár en endaði nú í þriðja sætinu eftir að hafa unnið Keili í leiknum um þriðja sætið. Konurnar í GR héldu aftur á móti sigur­ göngu sinni áfram með því að vinna Keili 3­2 í úrslitaleiknum og vinna Sveitakeppnina þriðja árið í röð. GKG tók bronsið eftir sigur á NK. Systkinin Alfreð Brynjar Kristinsson hjá GKG og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hjá GR unnu bæði sína leiki í úrslitunum en þetta var eftirminnileg helgi hjá fjölskyldunni því Alfreð gifti sig á laugardagskvöldið. - óój Sveitakeppni GSÍ um helgina: Alvöru helgi hjá fjölskyldunni alfreð brynjar krisTinsson Ól í Peking 2008 Snorri Steinn Guðjónsson 6,0 mörk í leik Guðjón valur Sigurðsson 5,4 Ólafur Stefánsson 3,6 em í austurríki 2010 Ólafur Stefánsson 4,0 Hm í svíþjóð 2011 alexander petersson 5,9 em í serbíu 2012 Guðjón valur Sigurðsson 6,8 Ól í london 2012 aron pálmarsson 6,2 Íslendingar í úrvalsliðum:

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.