Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 68

Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 68
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjaþjónusta4 Mikilvægt er fyrir yfirmenn fyrir- tækja að starfsfólk þess skili full- um afköstum. Til að ná sem mestu út úr hverjum starfmanni þarf andinn á vinnustaðnum að vera góður og allir sáttir við stöðu sína og hlutverk. Ýmislegt er hægt að gera til að hlúa að starfs- fólki og halda því ánægðu. Nudd Margir vinna líkamlega krefjandi vinnu, meðal annars þeir sem þurfa að standa eða sitja við tölvu allan daginn. Gott er fyrir þetta fólk að brjóta stundum upp vinnu- daginn og komast í nudd, þó ekki væri nema létt herðanudd. Vinnu- staðurinn gæti til dæmis tekið þátt í að niðurgreiða kostnað við nudd eða jafnvel fengið nuddara til að koma og nudda fólk við skrif borðið á vinnutíma. Góð tengsl Þeir starfsmenn sem eru í góðum tengslum við yfirmenn sína og finna fyrir því að samstarfsfólki sé umhugað um þá eru líklegri til að líða betur í vinnunni. Það er auð- velt fyrir yfirmenn að sýna fram á þetta einfaldlega með því að spyrja starfsfólk sitt hvernig það hefur það. Flestir brosa og þykir vænt um hlýhuginn sem býr að baki spurn- ingunni. Aðrir grípa tækifærið og létta af sér áhyggjum sem hafa mögulega verið að plaga þá. Verðlaun fyrir góð störf Mikilvægt er fyrir starfsfólkið að finna að verk þess séu metin að verðleikum. Þegar vel hefur geng- ið með ákveðið verk er tilvalið fyrir yfirmenn að verðlauna starfsfólk- ið á einhvern hátt. Þetta þurfa ekki endilega að vera háar fjárhæðir. Flestir verða ánægðir þegar stjór- inn kemur til dæmis óvænt við í bakaríi og kemur með köku með kaffinu eða býður upp á einn kald- an öl eftir vinnu á föstudegi. Starfsfólkið mikilvægast Starfsfólk er ein mikilvægasta auðlind hvers fyrirtækis og því mikilvægt að hlúa að því. NORDIC PHOTO/GETTY Guðmundur Sigurðsson ætti að vera Íslendingum vel kunnur eftir að hafa rekið fyrirtækið Vogabæ í 27 ár. Vogabæ seldi hann í ársbyrjun 2008. Í fram- haldinu keyptu hann og sonur hans Kerfi ehf. sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu rekstrar vara til fyrirtækja. „Við seljum og leigjum kaffi- og vatnsvélar í öllum stærð- um og gerðum og þjónustum þær með allt sem til þarf; vatnsbrúsa, kolsýruhylki, fjölbreytt úrval af kaffi og kaffibaunum auk þess að lagfæra vélarnar ef eitthvað kemur upp á,“ segir Guðmundur. Leiga eða kaup? Bæði er mögulegt að kaupa vélar hjá Kerfi og leigja. Ef um leigu er að ræða er undirritaður þjónustusamning- ur þar sem upplýsingar um verð og innifalda þjónustu koma fram. „Þá er greitt ákveðið mánaðargjald sem felur í sér leigu á vél og nauðsynlega þjónustu við hana. Einnig er hægt að bæta í samninginn annarri þjón- ustu, svo sem kaupum á kaffi, glös- um, pappír og fleiru. Aðalsmerkið er skjót þjónusta „Okkar meginmarkmið er að veita skjóta og góða þjónustu. Ef hringt er fyrir hádegi með erindi eða pönt- un vegna vélar, þjónustum við hana samdægurs. Við erum að keppa við stóra aðila og teljum okkar veita betri þjónustu. Það er okkar aðalsmerki.“ Kaffivélar fyrir veislur Kerfi ehf. leigir einnig út til skamms tíma sem er einkar hentugt fyrir ein- staklinga sem eru að halda veislur eða viðburði og vantar kaffivélar eða annað til þess. Allt fyrir reksturinn Það er tímafrekt að kaupa rekstrar- vörur á mörgum stöðum fyrir fyrir- tæki. Með því að eiga viðskipti við Kerfi ehf. leysist það á augabragði. „Við erum með allt sem þarf. Hvort sem það eru einnota glös, eldhús- pappír, sápuskammtarar, mjólk, prentarapappír, kakóduft eða hvað sem er fyrir reksturinn, þá eigum við það til.” Öflug heimasíða Á heimasíðu Kerfa ehf. er vefversl- un með myndum og verði á öllum vörum. Með einum smelli er hægt að panta vörur sem svo eru sendar á áfangastað. Sjá nánari upplýsingar um Kerfi ehf. á www.kerfi.is. Allt á einum stað Kerfi ehf. selur rekstrarvörur og sérhæfir sig í þjónustu við önnur fyrirtæki. „Markmiðið er að veita skjóta og góða þjónustu,“ segir Guðmundur Sigurðsson. Það er tímafrekt að versla á mörgum stöðum. Hjá Kerfi ehf. fæst allt á einum stað. MYND/VILHELM Landsbjörg treystir á Vodafone Slysavarnafélagið Landsbjörg reiðir sig á öruggt og víðtækt fjarskiptakerfi okkar. Við einföldum hlutina með hagkvæmum og öruggum lausnum fyrir félagasamtök og fyrirtæki. Hafðu samband við Fyrirtækjaþjónustu Vodafone í síma 599 9500 eða á firma@vodafone.is Þín ánægja er okkar markmið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.