Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Mánudagur skoðun 12 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Fasteignir.is Apótek 17. september 2012 218. tölublað 12. árgangur É g trúði þessu nú varla sjálfur fyrr en ég fékk senda mynd af vörunni tilbúinni. Þetta er auðvitað stórt skref, að koma fyrstu vörunni sinni á er-lendan markað,“ segir Stefán Pétur Sól-veigarson vöruhönnuður en spænska fyrirtækið Doiy Design hefur sett spag-ettímælinn Ég gæti borðað heilan hest í dreifingu um allan heim. Rétt tæpt ár er síðan Stefán hannaði mælinn og því óhætt að segja að mælir-inn hafi slegið strax rækilega í gegn.„Það má segja að hann hafi strax farið á flug í hönnunarbloggheimum þegar hann kom út og ummæli um hann birt-ust á hverri síðunni eftir aðra. Einhver fyrirtæki höfðu líka fljótlega samband og Doiy Design bauð mér góðan samn-ing sem ég skellti mér á. Þeir eru stórirá markaðnum í d þetta hefur tekið um það bil hálft ár þar til varan er nú komin á markaðinn,“ segir Stefán. „Nú sest ég bara niður og bíð eftir að gróðinn fari að „tikka“ inn,“ bætir hann við og hlær og segist ekki vita til þess að aðrir íslenskir hönnuðir séu undir hatti Doiy Design, enn þá. „Það gæti þó átt eftir að breytast.“Doiy design leigir framleiðsluna á spagettímælinum af Stefáni í fimm ár. Varan er merkt honum á umbúðunum og er einungis fáanleg úr grænu plasti en sjálfur hafði Stefán framleitt hann úr stáli og hvítu og grænu plasti. Hann segir einnig aðra breytingu hafa verið gerða á mælinum.„Ég hafði jafnrétti í mínum mæli, það er að segja jafn mikið MÆLIRINN Á FULLTÍSLENSK HÖNNUN Spagettímælirinn Ég gæti borðað heilan hest er kominn á erlendan markað rétt tæpu ári eftir að hann varð til á teikniborðinu. STÓRT SKREF „Þetta er auðvitað stórt skref, að koma vörunni sinni á erlendan markað,“ segir Stefán Pétur Sólveigarson. MYND/GVA ENDURVINNSLA ER TIL GÓÐSEndurvinnsla felst í því að nýta hluta sorps til að búa til nýtilegt efni með því markmiði að minnka þörf á nýjum hráefnum og draga úr mengun. Sorp, sem mögulegt er að endurvinna, er til dæmis gler, pappír, málmar, malbik, bylgjupappi, fatnaður og tiltekin plastefni. FASTEIGNIR.IS17. SEPTEMBER 2012 35. TBL. Fasteignasalan TORG kynnir einstaklega fallegt einbýlishús með rúmgóðri séríbúð í kjallara. Húsinu fylgir 39,4 fermetra bílskúr með sjálfvirkri rafmagnshurð. Við það er stór hellulögð verönd og fallegt útsýni til suðurs. Nánari lýsing er sem hér segir: Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með millihurð með gleri. Inn af forstofu er herbergi með lausum skáp og gestaherbergi með flísum á gólfi. Gengið er inn í rými með parketi á gólfi sem flæðir inn í öll svefnherbergin og upp í stofu og borðstofu. Barnaherbergin eru tvö og hjónaherbergi með skápum. Bað- herbergi er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting, handklæða- ofn og nýlegt salerni. Gengið er niður tvær tröppur í rúm- góða sturtu sem einnig er hægt að nota sem stórt baðkar. Þvotta- húsið er með flísum á gólfi og út- gengi út á suður svalir. Eldhús er með ljósri viða innréttingu og eyju með borðplötu úr teini. Ný- legur stálháfur er í eldhúsi. Tengi er fyrir amerískan ísskáp. Inn af eldhúsi er búr með hillum. Flísar eru á gólfi. Gengið er niður í flísa- lagt sjónvarpshol með útgengi út á stóra, skjólgóða og hellulagða ver- önd og niður í garð.Íbúð í kjallara er rú góð og björt. Forstofan er með flísum s m flæða inn alla íbúð. Svefnherber i er með lausum skápum. Baðher- bergi er með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Stórt og svart al- rými er með hvítri eldhúsinnrétt- ingu. Útgengi er úr eldhúsi á hellu- lagða verönd. Eignin stendur við jaðarbyggð og er gott útsýni til suðurs. Gróinn garður og gott viðhald er á húsinu. Rúmgóðar innkeyrslur eru bæði við bílskúr og aukaíbúð í kjall- ara. Allar upplýsingar um eignina veitir Dórothea í síma 898-3326 og í gegnum netfangið dorothea@ fasttorg is Fallegt að innan sem utan Eignin stendur við jaðarbyggð og er gott útsýni til suðurs. Landmark leiðir þig heim!* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum! 100% þjónusta = árangur* Sími 512 4900 landmark.is Magnús EinarssonLöggiltur fasteignasaliSími 897 8266 Sigurður SamúelssonLöggiltur fasteignasaliSími 896 2312 Sveinn EylandLöggiltur fasteignasaliSími 690 0820 Þórarinn ThorarensenSölustjóriSími 770 0309 Kristberg Snjólfsson SölufulltrúiSími 892 1931 Eggert Maríuson SölufulltrúiSími 690 1472 Haraldur Ómarsson sölufulltrúisími 845 8286 Sigurður Fannar GuðmundssonSölufulltrúiSími 897 5930 Rúnar GíslasonLögg. fasteignasali audur@fasteignasalan.is Viltu selja?Vegna mikillar sölu vantar mig 2ja og 3ja herbergja íbúðir í hverfum 101 og 105 Reykjavík. Ákveðnir kaupendur bíða eftir réttu eigninni. Talaðu endilega við Auði í síma 824-7772 eða audur@fasteignasalan.is HVETTU BARNIÐ TIL AÐ VERA GÆTIÐ ÞEGAR ÞAÐ VEITIR PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR Á NETINU www.saft.is APÓTEKMÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2012 Kynningarblað Ráðgjöf Heilsufarsmælingar Hjúkrunarþjónusta Vítamín Lyf Gjafavörur Stefna Apóteksins er einföld og skýr: Að tryggja viðskipta-vinum lyf, lausasölulyf og aðra vöru á lágu verði. Lyfja höfðar til skynsemi neytenda og býður hagstætt verð, einfalt vöruval, gott aðgengi og faglega þjónustu. Apótekin eru nú orðin sex talsins eftir að nýjasta Apótekið opnaði á Garðatorgi í Garðabæ í febrúar sl. Apótekið er einnig í Spönginni í Grafarvogi, Hólagarði í Breiðholti, Hagkaupum í Skeifunni, Setbergi í Hafnarfirði og á Akureyri. Apó tekið þekkist á appelsínugula litnum. Lágt lyfjaverð í 16 ár Þó að útsölustöðum Apóteksins hafi farið fjölgandi að undanförnu Það þarf ekki að fara langt fyrir lágt lyfjaverðApótekið var stofnað árið 1996 og er með sex útsölustaði. Þar er boðið upp á lyf á lægra verði og gott úrval af annarri vöru. Nýjasta Apótekið var opnað á Garðatorgi í Garðabæ fyrr á árinu og hafa viðtökurnar verið góðar hjá heimamönnum. létt&laggott Byrjaði tveggja ára Hin fjórtán ára Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skart og selur á Facebook. popp 30 Engir fordómar Hinsegin ferðaþjónustan Pink Iceland annast brúðkaup gagnkynhneigðs pars í fyrsta sinn. popp 30 SPRENGING Í ÍBÚÐAHVERFI Sjúkraflutningamenn hlúa að húsráðanda í íbúðinni þar sem sprengingin varð, örstuttu eftir að hún skók hverfið. Fremst til hægri á myndinni sést brak sem þeyttist úr íbúðinni ásamt glerbrotadrífu út á leikvöll, þar sem lítil börn voru að leik örskömmu áður en sprengingin varð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON UTANRÍKISMÁL Danir vilja leggjast á árar við lausn makríl deilunnar, að sögn Villy Søvndals, utanríkisráðherra Danmerkur. Hann segir Dani í sérstakri stöðu, verandi í Evrópusam- bandinu og í ríkjasambandi við Færeyjar. „Í krafti okkar stöðu höfum við möguleika á að byggja brú milli deiluaðila,“ segir Søvndal í viðtali við Fréttablaðið. - þj, óká / sjá síðu 8 Utanríkisráðherra Dana: Vinni að sátt í makríldeilu RIGNING norðan- og austanlands en slydda eða snjókoma inn til landsins þar. Skýjað með köflum sunnan og vestan til. Strekkingsvind- ur með norður- og austurströndinni. VEÐUR 4 8 7 5 4 6 LÖGREGLUMÁL Öflug sprenging varð í íbúð við Ofanleiti 17 um ellefu- leytið í gærmorgun. Karl maður á fertugsaldri sem var í íbúð- inni var fluttur mikið slasaður á sjúkrahús og var honum haldið sofandi í öndunarvél í gærkvöld. Hann er í lífshættu. Enn hefur ekkert verið gefið út um orsök sprengingarinnar, en samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er ekkert sem liggur fyrir um að eitthvað saknæmt hafi farið fram í íbúðinni sem hafi getað valdið slysinu. Lögregl- an tók við rannsókn málsins um klukkan hálftvö í gærdag og lauk vettvangsvinnu tækni deildar þar um sexleytið. Ekki fengust neinar upplýsingar frá lögreglunni um málið í gærkvöldi. Sigurður Ásgrímsson, fagstjóri sprengjusveitar Landhelgisgæsl- unnar, furðar sig á að lögregla hafi ekki kallað Landhelgisgæsl- una á svæðið þegar sprengingin varð. „Það hefði verið eðlilegt að gera það,“ segir Sigurður. „Ég mun óska eftir því á morgun [í dag] að fá að sjá vettvanginn og afla mér upplýsinga um þetta mál.“ Höggið fannst í öllum nær- liggjandi húsum þegar spreng- ingin varð. Glerbrot úr rúðum íbúðarinnar þeyttust allt að hundrað metra frá húsinu, meðal annars yfir leikvöll vestan við bygginguna. Mikil mildi þykir að engir fleiri hafi slasast, en börn höfðu verið að leik á vell- inum nokkrum mínútum áður en sprengingin varð. Svandís Eva Aradóttir var stödd í íbúðinni fyrir ofan þegar sprengingin varð. Hún vaknaði við höggið. „Allir öskruðu: Eldur, eldur,“ segir hún. „Við opnuðum út á svalir og þá fylltist allt af reyk. Svo fundum við mikla gas- lykt.“ Slökkvilið kom á vettvang um fimm mínútum eftir að tilkynn- ing barst. Að sögn Rúnars Helga- sonar varðstjóra gekk vel að ráða niðurlögum eldsins. Um 20 slökkviliðsmenn komu fljótlega á vettvang en síðan var kallaður út viðbótarmannskapur. Íbúðin er gjörónýt og allt sem í henni var, en eldtungur náðu upp yfir þak beggja vegna hússins með miklum, sótsvörtum reyk. Tölu- verðar reykskemmdir urðu í nærliggjandi íbúðum og húsið allt var tæmt. Íbúum var boðin áfallahjálp og gisting hjá Rauða krossinum. Sigurbjörn Guðmundsson, aðstoðarvarðstjóri Slökkviliðs- ins á höfuðborgarsvæðinu, segir málið allt hið furðulegasta. „Svona ofsalega öflug spreng- ing og gríðarlegur eldur með miklu sóti strax í kjölfarið er mjög óvenjulegt,“ segir Sigur- björn. Vægast sagt sé mjög sér- stakt að slík sprenging verði í íbúðarhúsnæði. Að minnsta kosti einn gaskútur var inni í íbúðinni þegar spreng- ingin varð, en hann var heill þegar slökkvilið kom á staðinn og fjarlægði hann. - sv / sjá síðu 4 Ekkert gefið út um orsök sprengingar Öflug sprenging varð í íbúðarhúsi við Ofanleiti í gær. Maður sem var í íbúðinni er í lífshættu. Slökkviliðsmenn segja málið afar óvenjulegt. Fagstjóri sprengju- sveitar furðar sig á því að Landhelgisgæslan hafi ekki verið kölluð á vettvang. Svona ofsalega öflug sprenging og gríðar- legur eldur með miklu sóti strax í kjölfarið er mjög óvenjulegt, SIGURBJÖRN GUÐMUNDSSON AÐSTOÐARVARÐSTJÓRI SLÖKKVILIÐSINS Meistarar FH tryggði sér Íslands- meistaratitilinn í knattspyrnu í gær. sport 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.