Fréttablaðið - 17.09.2012, Síða 8
17. september 2012 MÁNUDAGUR8
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
Caddy* kostar aðeins frá
2.950.000 kr.
(kr. 2.350.597 án vsk)
*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
Fæst einnig
fjórhjóladrifinn
Villy Søvndal, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, sótti
Ísland heim í lok síðustu
viku. Í samtali við Frétta-
blaðið segir hann upprisu
Íslands eftir hrun hafa
komið ánægjulega á óvart
og önnur lönd líti til þess
hvernig til hafi tekist. Hann
segist aukinheldur vonast
til þess að pólitísk lausn
finnist á makríl deilunni,
þar sem Danir eru í sér-
stakri stöðu sem ESB-land
og einnig í ríkjasambandi
við Færeyjar.
Søvndal tók við embætti fyrir tæpu
ári eftir sigur vinstri flokkanna
í þingkosningunum. Hann hefur
leitt Sósíalíska þjóðarflokkinn (SF)
frá árinu 2005, en sagði af sér for-
mannsembættinu fyrir nokkrum
dögum. Hann segist oft hafa milli-
lent hér á landi á leið til Grænlands,
en hefur ekki staldrað lengi við hér
áður.
„Ég hef haft standandi heimboð
frá góðvini mínum Steingrími J.
Sigfússyni, og það gleður mig að
koma loks, enda tengi ég Ísland við
heitar uppsprettur, íslenska hest-
inn og mjög fallega náttúru.“
Søvndal hitti nokkra af ráða-
mönnum Íslands hér á landi, til
dæmis starfsbróður sinn Össur
Skarphéðinsson.
„Við ræddum nokkur af okkar
helstu málum. Til dæmis tengslin
við ESB, þar sem við Danir
vorum í forystu fyrri hluta ársins.
Við viljum gjarnan greiða götu
Íslands í þeim efnum, ef Íslend-
ingar ákveða að fara þá leið, sem
er að sjálfsögðu ákvörðun íslensku
þjóðarinnar. Þá viljum við gjarna
hjálpa til við að leysa makríl-
deiluna og vera milligönguaðili
ef við getum. Þá ræddum við að
sjálfsögðu málefni norðurslóða þar
sem við höfum brýnna sameigin-
legra hagsmuna að gæta.“
Søvndal bætir því við að Dan-
mörk og Ísland hafi annars mjög
nána samvinnu á alþjóðavettvangi
þannig að á allt litið sé margt fram
undan í þeim málum.
Upprisa Íslands fyrirmynd
Ráðherrann hitti einnig Katrínu
Jakobsdóttur menningar- og
mennta málaráðherra og vara-
formann Vinstri grænna, sem er
systurflokkur SF. Meðal þess sem
barst í tal var staðan á Íslandi fjór-
um árum eftir hrun.
„Okkur finnst afar mikið koma
til þess hvernig Ísland, sem var
eitt af þeim löndum sem urðu hvað
verst úti eftir fjármálahrunið 2008,
hefur náð sér á strik á nú. Íslend-
ingar hafa náð frábærum árangri
frá hruni og ríkisstjórnin á hrós
skilið. Íslenska ríkið virðir sínar
skuldbindingar, en á sama tíma er
hér hagvöxtur sem er meiri en við
í Danmörku getum státað okkur af,
og atvinnuleysið er að minnka, og
það er vel að verki staðið.“
Aðspurður um efnahagsþreng-
ingarnar sem Danir kljást við um
þessar mundir játar Søvndal að þar
í landi geti menn lært eitt og annað
af reynslu Íslands.
„Já, klárlega. Við Steingrímur
höfum hist margoft og rætt þessi
mál, enda góðir vinir, síðast í Ósló
fyrir um mánuði síðan. Mér finnst
Ísland geta verið góð fyrir mynd
fyrir önnur ríki þar sem leiðin
út úr kreppunni hefur verið hag-
vöxtur og atvinnusköpun með
mikla áherslu á aukið félagslegt
réttlæti í gegnum skatta breytingar
og nútímavæðingu íslensks samfé-
lags. Ég er viss um að allir geri sér
grein fyrir þeim hremmingum sem
Ísland hefur gengið í gegnum og
að Ísland er viðurkennt á alþjóða-
vettvangi sem fyrirmynd að því
hvernig hægt er að beita ábyrgum
leiðum til að komast út úr kreppu.“
Sáttasemjari í makríldeilu
Danmörk er í sérstakri stöðu í
makríldeilunni milli ESB og Nor-
egs annars vegar, og Færeyja og
Íslands hins vegar. Er ekki erfitt
að samþætta hlutverk sitt sem
ESB-ríki því að eiga náið sam-
band við Ísland og vera meira að
segja í ríkjasambandi við Fær-
eyjar?
„Það má segja að einmitt í
krafti okkar stöðu höfum við
möguleika á að byggja brú milli
deiluaðila og sjá til þess að deilan
verði leyst með pólitísku sam-
komulagi og málamiðlun þannig
að ekki muni reynast þörf á að
grípa til refsiaðgerða. Við höfum
einnig sérstökum skyldum að
gæta gagnvart Færeyingum í
formi ríkjasambandsins, þann-
ig að við munum tvímælalaust
verja hagsmuni Færeyja ef deilan
kemur til kasta Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO).
En ef refsiaðgerðir á vegum ESB
verða að veruleika?
„Ef gripið verður til einhvers
konar viðurlaga vegna málsins,
leggjum við áherslu að þau verði
innan sanngirnismarka, í sam-
ræmi við aðstæður og einungis
tengd makríldeilunni. En við von-
umst svo sannarlega til þess að
ekki muni koma til þess og við
biðlum til allra málsaðila um að
pólitísk lausn finnist á málinu.“
Leið Íslands getur verið
fyrirmynd annarra þjóða
Villy Søvndal er fæddur árið 1952 og er kennari að mennt. Hann starfaði
sem slíkur til ársins 1992 þegar stjórnmálaferillinn tók við. Þá hafði hann
þegar verið virkur í verkalýðshreyfingunni um árabil.
Hann settist á þing fyrir SF sem fullgildur þingmaður árið 1994 og tók við
formannssætinu í flokknum árið 2005. Hann bast Helle Thorning-Schmidt,
formanni Jafnaðarmannaflokksins, tryggðaböndum í aðdraganda þing-
kosninganna í fyrrahaust og þrátt fyrir að SF missti sjö þingmenn tók vinstri
stjórn við taumunum og Søvndal fékk embætti utanríkisráðherra. Þetta er í
fyrsta sinn sem SF fær sæti í ríkisstjórn.
Fyrir nokkrum dögum ákvað hann að draga sig í hlé sem formaður
flokksins, að eigin sögn til að hleypa nýju fólki að fyrir næstu kosningar, en
hann hyggst þó áfram sinna utanríkisráðherraembættinu.
Stígur til hliðar úr formannsstól
1. Hvað er mesta magn kókaíns
sem vitað er um að reynt hafi verið
að smygla innvortis til landsins?
2. Hvar fann lögregla amfetamín-
framleiðslu í bílskúr fyrir helgi?
3. Hvenær hefst málflutningur í
Icesave-málinu?
SVÖRIN
SVÍÞJÓÐ Áfengisverslun sænska
ríkisins hefur ákveðið að hefja
heimsendingu á áfengi í tilrauna-
skyni á sex stöðum í landinu.
Tilraunin er svar áfengis-
verslunarinnar við auknum inn-
kaupum í gegnum internetið, að
sögn forstjórans Magdalenu Ger-
ger. Hún segir að tryggt verði að
þeir sem fái áfengi heimsent hafi
náð lögaldri.
Heimsendingin mun kosta í
kringum 250 sænskar krónur, eða
um 5.500 íslenskar krónur. - þeb
Tilraun hjá sænska ríkinu:
Svíar fá áfengið
í heimsendingu
FRÉTTAVIÐTAL: Villy Søvndal, utanríkisráðherra Danmerkur
FYRSTA ÍSLANDSHEIMSÓKNIN Villy Søvndal, utanríkisráðherra Danmerkur, hafði
stutta viðdvöl á Íslandi þar sem hann ræddi meðal annars við Össur Skarphéð-
insson og Katrínu Júlíusdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1. 1,3 kíló sem Þjóðverji nokkur reyndi að
smygla í ágústlok. 2. Við Efstasund í Lang-
holtshverfi. 3. Á morgun, þriðjudag.
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Rúnar Pálmason,
blaðamaður Morgunblaðsins,
hlaut í gær fjölmiðlaverðlaun
umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
isins sem veitt
voru í tilefni af
Degi íslenskrar
náttúru. Svan-
dís Svavarsdótt-
ir umhverfis- og
auðlindaráðherra
veitti Rúnari
verðlaunin
fyrir umfjöllun
hans um akstur
utan vega og
umgengni við náttúru Íslands.
Hjörleifur Guttormsson fékk
við sama tækifæri Náttúruvið-
urkenningu Sigríðar í Brattholti
fyrir baráttu sína fyrir verndun
náttúru Íslands.
- áp
Ráðuneyti veitir verðlaun:
Beita sér í þágu
náttúrunnar
RÚNAR
PÁLMASON
VEISTU SVARIÐ?
… við munum
tvímælalaust verja
hagsmuni Færeyja ef deilan
kemur til kasta Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar (WTO).
VILLY SØVNDAL
UTANRÍKISRÁÐHERRA DANMERKUR