Fréttablaðið - 17.09.2012, Side 18

Fréttablaðið - 17.09.2012, Side 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Förðunarfræðingurinn Ásdís Gests-dóttir, sem leggur stund á snyrti-fræði við snyrtiskólann Beauty Academy í Ármúla, er mikill skóunn- andi. Svo mikill að skórnir voru farnir að flæða út úr öllum skápum á heimili hennar í Sandgerði. Hún býr þröngt og brá því á það ráð að búa til vegghillu fyrir hælaskóna. Þar hanga nú hátt í tuttugu hælar og vekja mikla athygli gesta. Ásdís útbjó sömuleiðis hillu fyrir stígvél og aðra skó en henni telst til að hún eigi um sextíu skópör í allt. „Ég er enn með tvær skápahillur fullar af skóm en skóhillurnar léttu þó verulega skápaplássinu.“ Skódellan byrjaði snemma og Ásdís var ung að árum þegar hún dansaði um allt í hæla- skóm af mömmu sinni. „Skór eru það eina sem passar alltaf og ég klæði mig yfirleitt fyrst í skóna áður en ég ákveð dressið.“ Efnið í hillurnar fann Ásdís í timbur- sölunni í BYKO og fékk hún bróður sinn til að hjálpa sér að mæla fyrir þeim. Hún notaði kverka- og þéttilista til að útbúa hælahillurnar en venjulegar timburfjalir undir stígvélin. „Ég málaði svo herlegheitin hvít og kom það svona agalega vel út. Auk þess finnst mér ég nýta skóna betur því þeir áttu það til að gleymast lengst inni í skáp. Hælarnir eru líka margir hverjir ansi fallegir og bara hin mesta veggprýði og skapast oft miklar umræður um þá í anddyr- inu.“ En eru einhverjir í sérstöku upp- áhaldi? „Já ég var að kaupa mér eftir- líkingu af Jeffrey Campbell-skónum í Maníu. Þeir eru úr svörtu leðri með göddum og mér finnst þeir algert æði. Þá eru grænir platform-hælar líka í miklu uppáhaldi.“ HÆLARNIR UPP Á VEGG SKÓSAFNARI Að búa þröngt getur reynst forföllnum söfnurum þrautin þyngri. Ásdís Gestsdóttir brá á það ráð að hengja hælana upp á vegg. AÐEINS BROT AF ÞVÍ BESTA Það eru aðeins allra fín- ustu skórnir sem fá að fara upp á vegg. Efnið í hælahillurnar fann Ásdís í timbursölunni í Byko og er um ódýra lausn að ræða. Stendur þú í einhverjum fram kvæmdum þessa dagana á heimilinu eða hefur nýlokið við? Já, við höfum búið hér í tæplega tvö ár og erum búin að vera í framkvæmdum frá því við fluttum inn. Þetta er eldgamalt hús sem þarf að halda vel við og það var lítið hugsað um það í mörg ár áður en við keyptum það. Við smíðuðum stóran pall (sem þættirnir sem eru á RÚV voru einmitt teknir á) og svo erum við að innrétta 30 fermetra sumarbústað sem er í garðinum. Erum að gera hann að svona afslöppunar- stofu. Einhverjar framkvæmdir á döfinni? Ó já, við ætlum að smíða gróðurhús núna með haustinu sem verður klárt fyrir næsta vor. Svo ætla ég að flísaleggja baðið og þvottahúsið. Ertu dugleg að breyta og bæta heima við? Já, ég mundi segja að ég sé frekar dugleg. Mér finnst mjög gaman að breyta og bæta. Ég er líka dugleg að losa mig við hluti sem ég er orðin leið á. Ég fæ fljótt leið á uppstillingum svo ég verð alltaf að vera að breyta. Það var líka draumur að vera í gömlu húsi sem ég gæti endalaust verið að dúlla í. Svona hús sem er aldrei alveg tilbúið. Er einhver hlutur sem þig langar sérstaklega mikið í þessa dagana? Ég var að kaupa þann hlut. Mig var lengi búið að langa í gamalt hringlaga borðstofuborð úr tekki sem hægt er að stækka. Ég datt inn á snilling sem var búinn að nostra við slíkt borð og 6 stóla sem ég keypti af honum. Nú þarf ég að finna nýjan hlut til að langa í. Hver er uppáhaldshluturinn þinn í eldhúsinu? Ég er rosa- lega hrifin af ísskápnum mínum. Mér finnst hann æði. Hann er frekar lítill, svartur Gorenje Retro Look og ég fæ ekki leið á að horfa á hann. Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn á heimilinu? Ætli það sé ekki eldhús- krókurinn en þar geri ég rosamargt, borða, nota hann sem skrifstofu og fæ mér kaffi með vinum. HEIMA VIÐ | HREFNA SÆTRAN MATREIÐSLUMAÐUR HRINGLAGA BORÐ- STOFUBORÐ NÝJAST Á HEIMILINU „Ég fæ fljótt leið á upp- stillingum svo ég verð alltaf að vera að breyta,“ segir Hrefna. DRAUMUR AÐ VERA Í GÖMLU HÚSIFerðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466 Meðal námsefnis: Mannleg samskipti. Helstu áfangastaðir erlendis í máli og myndum. Mismunandi trúarbrögð. Saga landsins, menning og listir. Frumbyggjar og saga staðarins. Þjóðlegir siðir og hefðir. Leiðsögutækni og ræðumennska. Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan. Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra í leiðsögn á erlendri grund. Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason. Fararstjórn erlendis Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursso fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í. , Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. Nýtt námskeið hefst 26. september Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.