Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGApótek MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson. sverrirbs@365.is. s 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. actavis auglýsing 3 x 20 FYRSTA APÓTEKIÐ Reykjavíkur Apótek var fyrsta apótekið á Íslandi. Björn Jónsson, lyfja- fræðingur, fékk fyrstur manna hér á landi leyfi til að opna apótek og var það gert árið 1772. Apótekið var rekið samfleytt í tæp 230 ár en því var lokað árið 1999. Reykjavíkur Apótek var rekið í Nesstofu þar til árið 1833 þegar það var flutt í Thorvaldsenstræti 6. Það var lengi vel eina apótekið í Reykjavík eða allt til ársins 1919 þegar Stefán Thorarensen stofnaði Laugavegsapótek. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson keypti Reykjavíkur Apótek árið 1919. Tíu árum síðar keypti Þorsteinn húsið við Austurstræti 16 en þangað flutti apótekið þann 11. febrúar 1930 og var þar allt til ársins 1999 en húsið var lengi kennt við Reykjavíkur Apótek. Frá upphafi hefur verið starf-andi hjúkrunarfræðingur í Lyfju í Lágmúla og nú starfa þar einnig þrír sjúkraliðar. Hjúkr- unarþjónusta Lyfju veitir ýmsa sérhæfða þjónustu, t.d. aðstoð og kennslu á sérhæfðar hjúkrunar- vörur, s.s. stómavörur og fylgi- hluti, barkastómavörur, þvagleggi, sykur sýkisvörur, næringardrykki og stuðning- og þrýstisokka. Jafn- framt er gott úrval af ýmsum stoð- vörum. Heimsendingarþjónusta er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum úr Lyfju Lágmúla á vörum sem eru niðurgreiddar af Sjúkratryggingum og auk þess eru sendar sérhæfðar hjúkrunarvörur um land allt. Mælingar Auk þess að veita ráðgjöf um hjúkrunarvörur er boðið upp á ýmsar mælingar. Ein vin sælasta mælingin um þessar mundir er bein þéttnimæling. Viðskipta- vinir, og þá sérstaklega konur, eru í auknum mæli farnir að átta sig á mikilvægi þess að fylgjast vel með beinþéttninni svo grípa megi til viðeigandi ráðstafana í tíma. Í Lyfju í Lágmúla og á Smáratorgi er einnig boðið upp á mælingu á súrefnis- mettun í blóði, blóðrauðamælingu (hemóglóbín) og öndunar mælingu ásamt blóðfitu-, blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu. Blóðþrýst- ingur er mældur í öllum verslunum Lyfju. Ekki þarf að panta tíma í mælingu í Lágmúla en æskilegt er að panta tíma á Smáratorgi. Mæl- ingarnar hafa notið vaxandi vin- sælda og kunna viðskiptavinir vel að meta gott aðgengi að ýmsum sérhæfðum mælingum. Ráðgjöf og aðstoð Hjúkrunarfólk Lyfju veitir einnig góð ráð við fjölmörgu sem við kemur heilsu og heilsufars tengdum vandamálum. Lagt er mikið upp úr því að útvega þær vörur sem við- skiptavinir þarfnast. Einnig geta viðskiptavinir fengið aðstoð við að fylla út reikninga vegna tryggingar- tengdra vara á grundvelli skír teinis. Í Lyfju í Lágmúla eru einnig fjar- lægðir saumar, skipt um umbúðir á minni sárum og sprautað. Yfirferð og áfylling á sjúkrakassa er þjónusta sem mikið er nýtt bæði af einstaklingum og félagasam- tökum. Mikilvægt er að láta yfirfara sjúkrakassa reglulega svo að allt sé til alls þegar á reynir. Úrval næringardrykkja Þeir sem þurfa sérstaka tegund næringar geta einnig fengið góð ráð og leiðbeiningar hjá starfs- fólki Lyfju. Gott úrval almennra næringardrykkja er í boði, til dæmis frá Semper og Nutricia, Build up og Adosan. Einnig er gott úrval af næringu fyrir þá sem hafa efnaskiptasjúkdóminn P.K.U. Lyfja hvetur viðskiptavini til að leita til þeirra með hvaðeina sem þeir þurfa aðstoð með. Hjúkrunar- fólk og lyfjafræðingar veita faglega og góða ráðgjöf og markmið Lyfju er að veita framúrskarandi þjón- ustu og aðstoða viðskiptavini við að finna bestu lausnina. Heilsufarsmælingar og hjúkrunarþjónusta í Lyfju Þarft þú í tékk fyrir veturinn? Það getur komið sér vel að eiga aðgang að fagfólki utan sjúkrastofnana til að spara biðtíma og fyrirhöfn. Í Lyfju í Lágmúla hafa viðskiptavinir aðgang að ráðgjöf fagfólks auk þess sem vöruúrvalið er mikið. Hjúkrunarþjónusta Lyfju í Lágmúla veitir ýmsa sérhæfða þjónustu, til dæmis aðstoð og kennslu á sérhæfðar hjúkrunarvörur. MYND/GVA Njóttu stundarinnar án verkja – Bólgueyðandi og verkjastillandi Íbúfen® Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru NSAID lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar). Íbúfen er notað við vægum til meðal miklum verkjum eins og höfuðverk, mígreni, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Ekki má taka Íbúfen: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir íbúprófeni, öðrum skyldum lyfjum eða einhverju hjálparefnanna. Þeir sem fengið hafa ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli, útbrot með kláða eða ef varir, andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að hafa tekið íbúprófen eða skyld lyf. Þeir sem þjáðst hafa af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) í tengslum við fyrri notkun bólgueyðandi verkjalyfja, þjást núna af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) eða hafa áður þjáðst af slíku, tvisvar eða oftar, með alvarleg lifrar-, nýrna-, eða hjartavandamál (kransæðasjúkdómar meðtaldir), þeir sem þjást af umtalsverðum vökvaskorti (vegna uppkasta, niðurgangs eða of lítillar vökvaneyslu), eru með einhverjar blæðingar (blæðingar í heila meðtaldar), eru með sjúkdóm af óþekktum uppruna sem leiðir til óeðlilegrar myndunar blóðfrumna. Sérstök varnaðarorð: Þeir sem eru með rauða úlfa (SLE) eða aðra sjálfsnæmissjúkdóma, arfgengan sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðrauða, hemoglóbín (purpuraveiki), langvarandi bólgusjúkdóma í þörmum eins og bólgur í ristli með sárum (sáraristilbólgu), bólgur í meltingarvegi (Crohn´s) eða aðra maga- eða þarmasjúkdóma, truflanir á blóðfrumnamyndun, vandamál tengd blóðstorknun, ofnæmi, ofnæmiskvef, astma, langvarandi bólgur í nefslímhúð, kinnbeinaholum, kokeitlum eða langvarandi teppusjúkdóma í öndunarvegi, blóðrásarkvilla í slagæðum handleggja og fóta, lifrar-, nýrna- eða hjartavandamál eða háan blóðþrýsting, nýkomnir úr meiriháttar skurðaðgerð ættu ekki að nota lyfið. Meðganga/brjóstagjöf: Íbúprófen má ekki taka á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Aðeins ætti að nota Íbúfen á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu í samráði við lækni og ef það er algerlega nauðsynlegt. Íbúprófen getur gert konum erfiðara með að verða þungaðar. Þessi áhrif ganga til baka þegar hætt er að taka lyfið. Íbúprófen berst í brjóstamjólk í litlum mæli og brjóstagjöf þarf yfirleitt ekki að hætta meðan á skammtíma meðferð stendur. Ef lengri tíma meðferð er áætluð, ætti að meta hvort hætta eigi brjóstagjöf. Aukaverkanir: Svartar, tjörukenndar hægðir eða blóðlituð uppköst (sár í meltingarvegi með blæðingum), brjóstsviði, kviðverkir, meltingartruflanir, truflanir í meltingarfærum s.s. niðurgangur, ógleði, uppköst, vindgangur og harðlífi, sáramyndun í meltingarvegi með eða án rofs, þarmabólga og versnandi bólga í ristli og meltingarvegi (Crohn´s) og pokamyndun í digurgirni (rof eða fistlar), smásæjar blæðingar frá þörmum sem geta leitt til blóðleysis, sára og bólgu í munni, höfuðverkur, syfja, svimi, sundl, þreyta, æsingur, svefnleysi og viðkvæmni. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára (≥ 40 kg): 200-400 mg sem einn skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4-6 klst. millibili. Hámarks dagsskammtur er 1200 mg. Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg, 1-3 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 600 mg á dag. Börn 10-12 ára (30-40 kg): 200 mg, 1-4 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 800 mg á dag. Sjá nánar í fylgiseðli. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Nóvember 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.