Fréttablaðið - 17.09.2012, Síða 45

Fréttablaðið - 17.09.2012, Síða 45
KYNNING − AUGLÝSING Apótek17. SEPTEMBER 2012 MÁNUDAGUR 3 Viðskiptavinum fjölgar bara og fjölgar þótt við auglýsum ekki mikið. Það kemur til af því að við höfum allt- af komið mjög vel út úr verðkönnunum á lyfjum, hvort sem um er að ræða lyfseðils- skyld lyf eða lyf sem eru seld án lyfseðils,“ segir Haukur Ingason apótekari í Garðs Apó- teki. Hann segir æ fleiri komast að raun um að hægt sé að gera góð kaup á fleiru en lyfjum í Garðs Apóteki. „Margir koma gagngert til að kaupa fæðu- bótarefni og vítamín sem fást í úrvali, hjúkr- unarvörur, snyrtivörur og næringardrykki, því verð er almennt lágt í apótekinu.“ Að sögn Hauks kunna viðskiptavinir því einkar vel að Garðs Apótek sé einkarekið. „Eftir bankahrunið er fólk orðið meðvit- aðra um við hvern það verslar og virðist hafa fengið nóg af lyfjakeðjum, hvort sem þær heita Lyf og heilsa, Lyfja, Apótekið, Apótekar- inn eða Skipholts Apótek,“ upplýsir Haukur. Í Garðs Apóteki er notalegt kaffihúsahorn þar sem hægt er að setjast niður með ilm- andi kaffi, te eða vatnsglas í boði hússins. „Hverfisbúar koma hingað oft og tíðum og stundum er apótekið eins og hverfismiðstöð þar sem íbúarnir hittast og spjalla saman,“ segir Haukur ánægður. „Við erum í leiðinni fyrir íbúa stærstu hverfa borgarinnar og með tilkomu raf- rænna lyfseðla finnst mörgum þægilegt að hringja á undan sér, láta taka til lyfin sín og sækja þau á heimleiðinni upp í Breiðholt, Árbæ eða Grafarvog og nágrannasveitar- félögin Mosfellsbæ, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð og víðar,“ segir Haukur. Það sem gerir Garðs Apótek að fyrsta vali viðskiptavina er þó fyrst og fremst fyrir- myndarþjónusta og hlýlegt viðmót starfs- fólksins, í kaupauka við lága verðið. „Nýverið jukum við þjónustu í kringum stómavörur og þvagleggi, og nú geta þeir sem nota slíkar vörur snúið sér til okkar og fengið þær afhentar í apótekinu eða sendar heim til sín, hvert á land sem er,“ segir Haukur og bætir við: „Svo eru alltaf einhverjir sem segjast koma bara af því hér starfi f lottustu af- greiðslustúlkur bæjarins, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, eins og svo margt annað,“ segir Haukur og brosir. Garðs Apótek er á horni Sogavegs og Réttar holtsvegs, við brúna yfir Miklubraut. Sími 5680990. Opið er virka daga frá klukkan 9 til 18 en lokað um helgar. Sjá nánar á www. gardsapotek.is. Viðskiptavinum fjölgar bara og fjölgar í Garðs Apóteki Garðs Apótek er vel þekkt fyrir lágt lyfjaverð og úrvals þjónustu. Meðal nýjunga í apótekinu eru stómavörur, þvagleggir og næringardrykkir. Margir viðskiptavinir koma gagngert þangað til að kaupa fæðubótarefni og vítamín sem fást þar í miklu úrvali. Garðs Apótek er á horni Sogavegs og Réttarholts- vegs, við brúna yfir Miklubraut. Á efri hæð hússins hefur nú opnað Læknastöðin Sogavegi. MYND/ANTON Haukur Ingason apótekari í Garðs Apóteki með flottustu afgreiðslustúlkum bæjarins sem eru í senn rómaðar fyrir hugguleika, hlýlegar móttökur og afbragðs þjónustu. MYND/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.