Fréttablaðið - 17.09.2012, Síða 52
17. september 2012 MÁNUDAGUR20
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Marteinn Lúther negldi skjal á dyr Hallarkirkjunnar í Wittenberg og
siðbreyting og siðbót hófust. Hamars-
höggin og hugsun Lúthers opinberuðu vit-
leysur tímans, sem hægt var að leiðrétta.
Hallarkirkjan og dyr hennar eru síðan
hvetjandi tákn um að fólk sinni lífsleikni
og taki á móti Guðsgjöfunum.
ÉG VAR í Íslendingahópi sem fór um Lúth-
ersslóðir og heillaðist af dramatískri sögu
siðbótartímans, mannvirkjum og náttúru
svæðisins. En svo fengum við líka að heyra
um baráttu fólks, sem enn lifir. Á tímum
Hitlers og síðar Alþýðulýðveldisins voru
framin hryllileg ofbeldisverk gagnvart póli-
tískum andófsmönnum, umhverfis-
sinnum og kirkjufólki. Uppgjörið
er rétt að byrja og ekki útséð með
allar afleiðingar.
VIÐ HLIÐ Hallarkirkjunnar
er orðastaður, akademía sem
lútherska kirkjan í Þýskalandi
rekur. Markmið starfsins er
samtal, aukinn skilningur og
sátt. Þar heyrðum við m.a. sagt
frá viðbrögðum mismunandi
hópa eftir hrun kommúnismans.
Margir Stasiliðar hafa haldið því
fram að þeir hafi ekki gert neitt
rangt. Svo eru fórnarlömb þeirra
hinum megin borðs og bera djúp
sálarsár. Hvernig á að fyrirgefa vondu fólki
og tuddum þeirra? Flekkun feðra og mæðra
smitast í marga liði. Börn kúgara og börn
fórnarlamba glíma lengi við afleiðingar.
Ekki er þeim að kenna að þau urðu til. Þau
áttu enga sök á gerðum foreldra. Mörg börn
í Alþýðulýðveldinu fóru á mis við friðsama
æsku vegna þess að pabbi og mamma fóru
út af fyrirskipuðu spori. Sum þessara barna
eru mörkuð fyrir lífstíð og mörg bitur. Svo
eru afkomendur valdsmanna líka flekk-
aðir. Eitt þeirra dró saman hræðilega stöðu
þeirra með: „Við erum með eitruð gen.“
SÁR STASILANDSINS eru djúp ( – lesið
nýútkomna bók Önnu Funder!). Tíminn
læknar engin sár nema þau séu skoðuð,
hreinsuð og unnið með þau af heiðarleika.
Börn sorgarinnar og einnig þau með eitr-
uðu genin þarfnast sáttar. Hlutverk kraft-
mikillar kirkju er að vera farvegur hins
góða. Lífgjöf er mál Guðs sem elskar og
vill hreinsa hið sauruga. Lúthersneglan á
Hallar kirkjudyr varðar að menn geti losnað
við eitruð gen, náð sátt og búið við frið. Á
sínum tíma mótmælti siðbótarkirkjan vond-
um hlutabréfum eilífðar og nútímakirkja
berst gegn flekkun mennsku, samfélags
og náttúru. Hlutverk okkar er að hreinsa
sár og vera farvegur lífs. Eitrað samfélag
á ekki að líða og ekki heldur að fólki finnist
það hafa eitruð gen, hvorki í Þýskalandi né á
Íslandi. Siðbótar er sífellt þörf.
Við erum með eitruð gen
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
HEIÐURSGESTIR
Raggi Bjarna,
Jón Páll Bjarna
son
og Guðmundur
Steingrímsson
MIÐASALA Á MIÐI.IS
OG Í SÍMA 540 9800
ANDREA GYLFADÓTTIR · DIDDÚ · EIVÖR · ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR · GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR · LAY LOW · RAGGA GÍSLA · SIGGA BEINTEINS
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON · EGILL ÓLAFSSON · GISSUR PÁLL GISSURARSON · STEFÁN HILMARSSON
ÚTSETNINGAR & STJÓRN STÓRSVEITAR SAMÚEL JÓN SAMÚELSSON STJÓRN STRENGJASVEITAR GRÉTA SALÓME
HANDRIT & LAGAVAL GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR · GUNNAR HELGASON · MARGRÉT BLÖNDAL · SAMÚEL JÓN SAMÚELSSON
SVIÐSMYND MÓEIÐUR HELGADÓTTIR BÚNINGAR ELLEN LOFTSDÓTTIR
KYNNIR MARGRÉT BLÖNDAL LEIKSTJÓRI GUNNAR HELGASON
KOMDU MEÐ Í ÓGLEYMANLEGT FERÐALAG TIL
GULLALDARÁRANNA OG UPPLIFÐU ELLY Í MÁLI OG MYNDUM,
LJÓSLIFANDI MINNINGUM SAMFERÐARFÓLKSINS
OG AUÐVITAÐ TÓNLISTINNI SEM HÚN GAF OKKUR ÖLLUM.
www.sena.is/elly
LÁRÉTT
2. einsöngur, 6. 49, 8. hylli, 9. viðmót,
11. átt, 12. skrá, 14. land í Asíu, 16.
óður, 17. svelg, 18. flott, 20. hreyfing,
21. hófdýr.
LÓÐRÉTT
1. steintegund, 3. slá, 4. farartæki, 5.
sóða, 7. sælgæti, 10. sæ, 13. fugl, 15.
eyðimörk, 16. iðka, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. aría, 6. il, 8. ást, 9. fas, 11.
sa, 12. skjal, 14. kórea, 16. ær, 17. iðu,
18. fín, 20. ið, 21. asni.
LÓÐRÉTT: 1. gifs, 3. rá, 4. íssleði,
5. ata, 7. lakkrís, 10. sjó, 13. ari, 15.
auðn, 16. æfa, 19. nn.
G-strengs Gulli er úti og
spásserar með vini sínum
Bjössa bústaðahaus...
Þegar allt
í einu... Koma svo þaklekinn
þinn!
Bless,
Palli!
Bless,
mamma
xo
Já … Já, auðvitað
vil ég gerast áskrifandi
að tímaritinu
„Dáleiðsla“.
Drífðu þig! Þú ert búin
að vera að klæða þig í
hálftíma!
Ég finn
ekki
teygju í
réttum
lit!
Jæja, ég verð þá bara
með þessa.
Loksins!
En þá verð ég auðvitað að
skipta um bol...