Fréttablaðið - 04.10.2012, Síða 8
4. október 2012 FIMMTUDAGUR8
STJÓRNSÝSLA Fulltrúar teymis
sem vinnur að hönnun nýs fang-
elsis á Hólmsheiði undirrituðu í
gær, ásamt Ögmundi Jónassyni
innanríkisráðherra, svokallaðan
Nordic Built-sáttmála. Í frétt frá
innanríkisráðuneytinu er sátt-
málinn sagður samvinnuverkefni
sem hvetji til þróunar samkeppn-
ishæfra lausna í vistvænni mann-
virkjagerð.
„Með þeirri hugmyndafræði
er við sköpun á manngerðu
umhverfi leitast við að auka lífs-
gæði, nýta sjálfbærni, stað-
bundnar auðlindir og byggja á
norrænni hönnunarhefð eins
og hún gerist best,“ segir ráðu-
neytið.
Fram kemur að Norræna ráð-
herraráðið ásamt Nordic Innova-
tion fjármagni verkefnið. - gar
Ráðherra undirritar sáttmála:
Nýtt fangelsi
verði vistvænt
JAPAN, AP Hvergi í heiminum er
hærra hlutfall aldraðra en í Japan,
þar sem 30 prósent íbúanna eru
komin yfir sextugt. Árið 2050
verða sextíu önnur lönd komin í
sömu stöðu.
Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu frá Mannfjöldastofnun
Sameinuðu þjóðanna. Í skýrslunni
eru stjórnvöld ríkjanna hvött til
þess að hyggja að þörfum aldraðra
og tryggja að þeir geti átt gott ævi-
kvöld.
Víða er staða aldraðra bág og
fátækt meiri meðal þeirra en ann-
arra íbúa. Í Lettlandi og á Kýpur
býr til dæmis um helmingur
þeirra sem komnir eru yfir sex-
tugt við fátækt. Jafnvel í iðnvædd-
um ríkjum á borð við Japan eiga
aldraðir í erfiðleikum með að nálg-
ast nauðsynlega þjónustu.
„Meira þarf að gera til að
afhjúpa, rannsaka og sporna gegn
mismunun, misnotkun og ofbeldi
gegn öldruðum, sérstaklega
konum sem standa verr að vígi,“
segir í skýrslunni.
Nú eru 810 milljónir manna,
eða níundi hver jarðarbúi, komn-
ar yfir sextugt. Árið 2050, þegar
mannkyni hefur fjölgað úr sjö í níu
eða tíu milljarða er talið að fimmti
hver jarðarbúi verði kominn yfir
sextugt, eða allt að tveir milljarðar
manna. - gb
Einn af hverjum níu jarðarbúum er yfir sextugu:
Hlutur aldraðra í mann-
fjöldatölum stækkar ört
ELDRI BORGARAR Í JAPAN Hlutfall aldraðra er hvergi hærra en í Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SÝRLAND, AP Þrír sjálfsvígsárásar-
menn sprengdu í gær upp bíla sem
þeir óku inn á svæði stjórnarhers-
ins í Aleppo, stærstu borg Sýr-
lands. Sprengjurnar kostuðu hátt
í 40 manns lífið, en að minnsta
kosti 120 manns særðust að auki.
Fjórða sprengingin varð nálægt
gamla miðbænum í Aleppo, sem er
á menningarminjaskrá Samein-
uðu þjóðanna. Miklar skemmdir
hafa orðið á gamla miðbænum og
markaðstorginu þar, sem hefur
lengi verið vinsælt meðal ferða-
manna.
Sýrlandsstjórn kennir hryðju-
verkamönnum um sprengjuárás-
irnar.
„Þetta var eins og röð jarð-
skjálfta,“ sagði íbúi í Aleppo.
„Þetta var skelfilegt, skelfilegt.“
Harðir skotbardagar brutust út í
kjölfar árásanna.
Árásunum svipar til árása
sem hryðjuverkahópar tengdir
Al Kaída-samtökunum hafa stað-
ið fyrir, en hópar af því tagi eru
taldir hafa blandað sér í átökin í
Sýrlandi með ýmsum hætti.
Uppreisnarmenn, sem reyna að
koma Bashar al Assad forseta frá
völdum, segjast þó engin tengsl
hafa við þessa hryðjuverkahópa.
Hörð átök hafa geisað í Aleppo
í tvo mánuði, en hvorki stjórnar-
hernum né uppreisnarmönnum
hefur tekist að ná borginni á sitt
vald, ekki frekar en höfuðborg-
inni Damaskus þar sem enn eru
átök uppreisnarmanna og stjórn-
arhersins nánast daglega.
Sjálfsvígsárásir og bílspreng-
juárásir hafa orðið æ algengari
í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi,
en átökin þar hafa nú geisað í á
hálft annað ár. Frá upphafi hafa
átökin kostað meira en 30 þúsund
manns lífið og heilu hverfin eru
nú gjöreyðilögð.
Átökin eru farin að breiðast
út til landamæra Tyrklands þar
sem að minnsta kosti fimm létu
lífið í gær þegar sýrlenski stjórn-
arherinn skaut sprengjum yfir
landamærin. gudsteinn@frettabladid.is
Harðir bardagar í Aleppo
Tugir fórust þegar bílasprengjur voru sprengdar í Aleppo í gær. Miklar skemmdir hafa orðið á gamla mið-
bænum í Aleppo, sem er á menningarminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Átökin hafa nú breiðst út til landa-
mæranna. Að minnsta kosti fimm létust í árásum sýrlenska stjórnarhersins á tyrkneskan landamærabæ.
AÐ LOKINNI SPRENGJUÁRÁS Flestir þeirra sem fórust í Aleppo í gær voru hermenn sýrlensku stjórnarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
særðust og hátt
í 40 létust í
þremur sjálfs-
vígsárásum í Aleppo í Sýr-
landi í gær.
120
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvað heitir faðir tónlistarmann-
anna Ásgeirs Trausta og Þorsteins í
Hjálmum?
2. Alþjóðlegur dagur hverra er í
dag?
3. Hversu háar eru dagsektir vegna
trassaskapar við hús í borginni?
SVÖR
1. Einar Georg Einarsson 2. Dýranna 3.
Tæpar 32 milljónir