Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 12

Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 12
4. október 2012 FIMMTUDAGUR12 12 hagur heimilanna Nú er tíminn til þess að setja niður haustlauka, vilji menn njóta blóma í garðin- um eða á svölunum í vor. Til þess að allir laukarnir komi ekki upp samtímis þarf að kynna sér hver blómgunar- tími tegundanna er. Það fer allt eftir veðurfari yfir veturinn hversu snemma fyrstu haustlaukarnir koma upp. Stund- um má sjá vorboða, vetrargosa og krókus í mars, að því er Lára Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Blómavali, greinir frá. „Snæstjarna, stjörnulilja og vor- íris eru á svipuðu róli og krókus og síðan taka páskaliljurnar við,“ segir hún. Lára segir hægt að fá túlípana á þremur blómgunarskeiðum. „Það eru til túlípanar sem blómstra í lok apríl og byrjun maí. Aðrar teg- undir koma upp í maílok og byrjun júní og svo eru til seinblómstrandi túlípanar sem byrja um miðjan júní og standa fram í júlí.“ Að sögn Láru njóta snemm- blómstrandi tegundir sín hjá runn- um áður en þeir laufgast. „Snemm- blómstrandi tegundir eru einnig settar í steinhæðir til þess að þær blómstri áður en fjölæringarnir byrja.“ Jarðvegurinn þar sem lauk- ar eru settir niður má ekki vera mjög blautur. „Það er til dæmis ekki gott að vera með lauka þar sem rennur af þakinu.“ Spurð að því hvort gefa eigi laukunum næringu við gróður- setningu segir Lára það ekki bráð- nauðsynlegt. „En það má alveg strá nokkrum áburðarkornum á moldina að hausti.“ Lára bendir á að góðar upplýs- ingar um gróðursetningardýpt og blómgunartíma séu á umbúð- um utan um laukana. „Við þurf- um hins vegar að gera ráð fyrir að blómgunin sé seinni við íslenskar aðstæður.“ ibs@frettabladid.is Vorið undirbúið með gróðursetningu lauka KRÓKUS Krókus er meðal þeirra tegunda sem koma fyrst upp á vorin. HAUSTVERK Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur segir nauðsynlegt að kynna sér blómgunartíma tegundanna til þess að allir lauk- arnir komi ekki upp samtímis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON GRÓÐURSETT Laukarnir dafna best þar sem ekki er mjög blautt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Frá og með áramótum geta þeir sem ferðast með SAS-flug- félaginu talað í farsíma um borð í vélum þess sem eru með þráðlaust net. Upplýsingastjóri SAS, Knut Morten Johansen, segir í viðtali við Aftenposten að ekki sé talið að breytingin muni skapa vandamál. Gert sé ráð fyrir að fólk taki tillit til annarra flugfarþega. Flugfélagið Norwegian hefur um skeið heimilað að talað sé í farsíma um borð í gegnum SkyCall. Að sögn upplýsingastjóra Norwegian, Lasse Sandaker- Nielsen, hafa farþegar ekki kvartað undan farsímanotkun um borð. Netnotkun er innifalin í flugmiðaverði hjá Norwegian. SAS hyggst hins vegar taka gjald fyrir netnotkun um borð. ■ Fjarskipti Flugfélagið SAS heimilar að talað sé í farsíma um borð Upplýsa á um magn íbætts vatns á umbúðum fisk- og kjötvara. Ef varan er íshúðuð á íshúðin að teljast til umbúða og því ekki að koma fram í þyngd vörunnar. Þetta er ein af kröfum Neytendasamtakanna um merk- ingar á matvælum sem samþykktar voru á nýafstöðnu þingi þeirra. Á vef samtakanna er bent á að óheimilt sé að vigta umbúðir með vöru. Við útreikning á verði vörunnar eigi að draga þyngd umbúða frá. Neytenda- samtökin segja að herða þurfi verulega eftirlit eftirlits- aðila með því að verslanir fari að settum reglum. ■ Matvæli Neytendasamtökin vilja betri merkingar á matvörum GÓÐ HÚSRÁÐ Saumaskapur Nú er lítið mál að þræða nálina Hver sá sem þurft hefur að stoppa í sokka eða koma nálægt öðrum saumaskap hefur rekið sig á þann upphafsþröskuld verksins að þræða nálina. Í stað þess að sleikja endann á þræðinum og reyna þannig að beina endanum rétta leið má reyna að úða á hann hárlakki og á fingurgómana og nota til að slétta úr þræðinum og gera hann stífan. Ætti hann þá ljúflega að rata inn um nálaraugað. BÆKUR voru lánaðar út frá Landsbókasafni Íslands – Háskóla- bókasafni í fyrra. Fjöldinn er tæpum tíunda hluta undir því sem var áratug fyrr. Árið 2001 voru lánaðar út 80.879 bækur. 73.138 Borgaryfirvöld í Róm hafa sett lög sem banna vegfarendum að borða pítsur, ís, samlokur og annað úti á götu við sögufræga staði í miðjum gamla bæ Rómar, eins og Navona-torg, Panþeon og Spænsku tröppurnar. Þeir sem brjóta bannið eiga á hættu að þurfa að greiða 25 til 500 evrur, að því er kemur fram á vef norska ríkisútvarpsins sem vitnar í Daily Telegraph. Svipuð lög hafa verið sett í Flórens, Bologna og Feneyjum. Á síðastnefnda staðnum er til dæmis bannað að snæða nestið sitt á Markúsartorgi. ■ Ferðalög Bannað að borða ís og pítsur við sögulega staði í Róm Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað í Volkswagen Passat Comfortline Plus er nú fullkomið leiðsögukerfi með Íslandskorti ásamt bakkmyndavél. www.volkswagen.is Ratvís og víðsýnn Volkswagen Passat EcoFuel Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat Passat Comfortline Plus sjálfskiptur kostar aðeins 4.790.000 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.