Fréttablaðið - 04.10.2012, Page 26
4. október 2012 FIMMTUDAGUR26
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Norræna húsið í Færeyjum hefur
alveg gríðarlega gott orð á sér. Það
er ein af þessum norrænu menning-
arstofnunum sem hafa verið að gera
rosalega flotta hluti,“ segir Sif Gunn-
arsdóttir, sem ráðin hefur verið for-
stöðumaður Norræna hússins í Fær-
eyjum frá 15. janúar 2013 til fjögurra
ára. „Það var reyndar hálfgerð til-
viljun að ég rakst á auglýsinguna
frá þeim þar sem var verið að aug-
lýsa eftir nýjum forstöðumanni í
sumar. Það stendur þannig á í mínu
lífi að börnin eru flutt að heiman og
orðin sjálfstæð og við maðurinn minn
ákváðum að nú væri rétti tíminn til að
gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi
og brjóta svolítið upp. Þannig að ég lét
slag standa og sótti um.“
Hefurðu verið eitthvað í Færeyjum?
„Nei, aldrei komið þangað. En ég hef
unnið heilmikið með Færeyingum í
gegnum starf mitt hjá Höfuðborg-
arstofu. Þórshöfn var heiðursgest-
ur á Menningarnótt fyrir nokkrum
árum og eftir það mynduðust mjög
fín tengsl. Þeir hafa oft komið fram
á Menningarnótt, þótt þeir hafi ekki
verið í þessu heiðursgestahlutverki,
bæði með myndlistarsýningar og tón-
listaruppákomur, og við höfum unnið
heilmikið með sendistofunni þeirra
hér. Ég held það séu ofsalega skemmti-
legir tímar í Færeyjum núna. Mikið að
gerast í tónlist, hönnun og bókmennt-
um og ég er viss um að þetta verða
fjögur fjörug og fjölbreytt ár.“
Sif hefur verið forstöðumaður Höf-
uðborgarstofu í fimm ár, en í fimm ár
þar á undan var hún viðburðastjóri hjá
stofunni. Var kominn tími til að breyta
til? „Ég er búin að vera hérna alveg
síðan Höfuðborgarstofa var sett á
laggirnar árið 2002 og það hefur verið
dásamlegt, en ég held að það sé gott
bæði fyrir mig og Höfuðborgarstofu
að breyta til og fá nýtt blóð.“
fridrikab@frettabladid.is
SIF GUNNARSDÓTTIR: RÁÐIN FORSTÖÐUMAÐUR NORRÆNA HÚSSINS Í FÆREYJUM
RÉTTI TÍMINN TIL AÐ GERA
EITTHVAÐ ALLT ÖÐRUVÍSI
SPENNT AÐ FLYTJA Sif segist hlakka mikið til að fara til Færeyja, þar séu skemmtilegir hlutir að gerast. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR forsætisráðherra er sjötug í dag
„Samtrygging flokka og frambjóðenda um að koma í veg fyrir upplýsingar til almennings um fjármögn-
un prófkjara eða kosningabaráttu er ein alvarlegasta ógnin við lýðræðið í landinu.“ – 13. febrúar 2006
70
Leikskólar borgarinnar fengu nýja
vögguvísu að gjöf frá Reykjavík Bók-
menntaborg UNESCO í vikunni í til-
efni lestrarhátíðar borgarinnar. Hún
er samin af leikskólakennurunum
og Pollapönkurunum Haraldi Frey
Gíslasyni og Heiðari Erni Kristjáns-
syni og heitir Dramalandið og munu
börn, foreldrar og leikskólakennarar
eflaust læra hana áður en lestrarhátíð-
inni lýkur. Vögguvísa eftir Elías Mar
er meginviðfangsefni hátíðarinnar og
verður tekin til umfjöllunar í grunn-
og framhaldsskólum borgarinnar.
Leikskólabörn munu hins vegar leggja
áherslu á vögguvísur í mánuðinum og
verður hin nýja vísa þar eflaust kær-
komin viðbót.
Vögguvísa Pollapönkara
DRAMALAND FYRIR LEIKSKÓLA Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason sömdu
nýja vögguvísu fyrir leikskólabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
RÚNAR GEIR STEINDÓRSSON
Lambastekk 8, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum sunnudaginn
30. september. Útförin fer fram frá Neskirkju
þriðjudaginn 9. október kl. 13.00.
Jakobína Valdís Jakobsdóttir
Jakob Rúnarsson Rannveig Guðmundsdóttir
Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Elvar Guðjónsson
Vignir Guðbjörn Rúnarsson
Gunnar Rúnarsson
Benedikt Hans Rúnarsson Rebekka Helga Sveinsdóttir
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
FLOSA JÖRGENSSONAR
Hamrahlíð 7, Vopnafirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sundabúðar
Vopnafirði fyrir góða umönnun og hlýju.
Helga Ólafsdóttir
Sunneva Flosadóttir Sigurður Steinar Sigbjörnsson
Sölvi Flosason Sigurbjörg Halldórsdóttir
og barnabörn.
Móðir, tengdamóðir og amma,
FRÍÐA HELGADÓTTIR
Árskógum 8,
Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 26. september
á líknardeild LSH í Kópavogi. Útförin
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
5. október kl. 13.00.
Elín Bjarnadóttir
Helgi Bjarnason
Fríða Dís Bjarnadóttir Leifur Gústafsson
Fríða Stefánsdóttir Ragnar Bjarni Stefánsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
UNNAR ÁGÚSTSDÓTTUR
Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Miðvangi 14.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og
samvistarfólki Unnar á Hrafnistu fyrir allar
góðu stundirnar sem hún naut þar.
Ólafur Guðmundsson
Erling Ólafsson Margrét Sigurgeirsdóttir
Ingibjörg Svala Ólafsdóttir Björgvin J. Björgvinsson
Örn Ólafsson Kristín Jensdóttir
Friðrik Ágúst Ólafsson Erna Snævar Ómarsdóttir
Kolbrún Ólafsdóttir Hilmar Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN GUÐLAUG
SIGURGEIRSDÓTTIR
Skarphéðinsgötu 4, Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn
26. september. Jarðsungið verður frá
Fossvogskirkju föstudaginn 5. október
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort
Félags aðstandenda heimilisfólks á Droplaugarstöðum sem fást
á skrifstofu Droplaugarstaða.
Sigurgeir A. Jónsson Þóra Hafsteinsdóttir
Sonja B. Jónsdóttir Guðmundur Kristjánsson
Ívar Jónsson Lilja Mósesdóttir
Fannar Jónsson Elísabet S. Auðunsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BJÖRN ÞÓR PÁLSSON
Laufási 11, Egilsstöðum,
lést 28. september sl. á Sjúkrahúsinu
á Seyðisfirði. Útförin fer fram frá
Egilsstaðakirkju laugardaginn 6. október
næstkomandi kl. 14.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á Seyðisfirði.
Petra Björnsdóttir
Björn Magni Björnsson, Jóna Pála Björnsdóttir,
Björg Björnsdóttir og fjölskyldur
Merkisatburðir 4. október
1582 Gregory XIII páfi inn-
leiðir gregoríska tíma-
talið.
1908 Þórhallur Bjarnason
vígður biskup Íslands.
Hann var áður for-
stöðumaður Presta-
skólans.
1911 Kennsla hefst í Háskóla
Íslands.
1970 Rauðsokkahreyfingin
stofnuð á Íslandi.
1984 Allsherjarverkfall BSRB
hefst og stendur það til
30. október.