Fréttablaðið - 04.10.2012, Qupperneq 32
KYNNING − AUGLÝSINGSjúkraþjálfun & stoðtæki FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 5125427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Jón Hjaltalín Magnússon, verkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta,
hefur undanfarin ár notað „Un-
loader One“-hnéspelkuna frá Öss-
uri með góðum árangri.
Í stað aðgerðar
„Brjóskið í hægra hnénu á mér er
alveg uppurið, þar er bara bein
í bein,“ segir Jón. „Fyrir fjórum
árum síðan fór ég að finna fyrir
óþægindum og verkjum í hnénu og
fór í liðþófaaðgerð þar sem stærsti
hluti liðþófans var fjarlægður. Í
kjölfarið kom í ljós að brjóskeyð-
ing í hnénu var einnig mikil. Stefán
Carlsson bæklunarlæknir ráðlagði
mér að prófa fyrst Unloader-spelk-
una frá Össuri og að fá innlegg í
skóinn því fóturinn er líka styttri.
Ég hef notað spelkuna frá því árið
2010 og hún hefur hjálpað mér
verulega.“
Eykur hreyfanleika
Unloader One-hnéspelkan veit-
ir stuðning og minnkar verki og
gerir notendum kleift að ganga
með hana allan daginn. Í Unloa-
der One-spelkunni eru tveir borð-
ar sem létta álagi af slitnum liðflöt-
um og auðvelda fólki með verki í
hnjám að stíga í fótinn. Borðarnir
aðlagast hreyfingum sem gerir það
að verkum að álagið flyst af slitna
liðfletinum yfir á þann heila. Not-
endur Unloader One-spelkunn-
ar svitna síður af henni en öðrum
sambærilegum hnéspelkum. Sá
hluti spelkunnar sem liggur næst
húðinni er gatað sílikon sem hleyp-
ir lofti í gegn og gerir húðinni kleift
að anda vel. Unloader One-spelkan
er árangur margra ára rannsóknar-
og þróunarvinnu Össurar.
Einföld og þægileg
Nýlega fékk Jón nýja útgáfu af Un-
loader One sem hann lætur vel af.
Það er auðvelt að koma Unloader-
spelkunni á sig og hún er bæði ein-
föld og þægileg í notkun. Hún pass-
ar undir buxurnar án þess að móti
fyrir henni. „Ég finn afskaplega
lítið fyrir spelkunni og hún truflar
mig ekki neitt. Hún léttir þrýstingi
af hnénu og styður við það þann-
ig að ég á mun auðveldara með
gang. Eftir að ég fékk nýju spelk-
una hef ég haft hana á mér nánast
allan daginn, hún er mjög þægi-
leg,“ segir hann. „Spelkan vinnur
eins og hnédeyfir, svipað og högg-
deyfar (demparar) bíla.“
Finn ekki lengur til
Jón er mörgum kunnur sem for-
maður HSÍ um margra ára skeið en
hann segir sposkur á svip að hann
hafi stundað handbolta fyrir fjöru-
tíu árum og fjörutíu kílóum síðan,
en hann var einn af „strákunum
okkar“ á Ólympíuleikunum í Mün-
chen 1972. „Ég vil ekki kenna hand-
boltanum um þessi hnévandamál
mín, slapp algjörlega við meiðsli í
honum, heldur miklu frekar yfir-
þyngd (1/10 úr tonni!) sem ég safn-
aði á mig eftir að ferlinum lauk.
Nú er ég að reyna að létta mig til
að minnka álagið á hnén. Eftir að
ég fékk spelkuna fer ég mun oftar
í lengri göngutúra og hef gaman
af og léttist um leið. Áður veigr-
aði ég mér við að fara í göngutúra,
enda hafði ég enga ánægju af þeim
því þeir reyndu svo á fæturna. Þá
rýrna vöðvar í fótum sem ekki er
gott, því vöðvarnir styðja við lið-
böndin í hnjánum. Ég fann aðal-
lega til í vinstra lærinu enda farinn
að færa álagið yfir á þann fót þegar
hægra hnéð var orðið svo slæmt,
en sjúkraþjálfari minn hefur leið-
beint mér til að laga það. Eftir að ég
fór að nota spelkuna frá Össuri finn
ég ekkert til lengur og mæli ein-
dregið með því að fólk með hnjá-
vandamál ræði við lækni sinn um
að sækja um spelkuna í stað þess
að fara í aðgerð.“
Spelkan kemur í stað hnéaðgerðar
Handboltakempan fyrrverandi, Jón Hjaltalín Magnússon, hefur notað „Unloader One“-hnéspelkuna frá Össuri undanfarin ár. Hann
mælir eindregið með notkun hennar fyrir alla þá sem hafa verki í hnjám og tapað hafa brjóski í hnjáliðum. Hann hefur sjálfur
sloppið við eða frestað hnjáaðgerð, sem hann annars hefði líklega þurft að fara í.
Jón Hjaltalín Magnússon mælir með notkun hnéspelkunnar Unloader One frá Össuri. Spelkan frá Össuri er einföld og þægileg. Hún
veitir stuðning, dregur úr sársauka og eykur hreyfanleika hjá notanda. MYND/DANÍEL
Við leggjum mikla áherslu á mannhelgi og setjum skjólstæðinga ok kar í
öndvegi,“ segir Kristján Hjálmar
Ragnarsson, sjúkraþjálfari og
annar eigenda Sjúkraþjálfunar
Kópavogs.
Hann segir sjúkraþjálfun ganga
út á að bæta færni og lífsgæði.
„Sérhæf ing sjúk raþjálfara
byggir á greiningu vandamála í
stoðkerfi og meðferðaráætlunum
til lengri eða skemmri tíma.
Þa n n ig bæt u m v ið ásta nd
skjólstæðinga okkar og aukum
vinnufærni þeirra,“ útsk ýrir
Kristján.
Fagmennska
Í Sjúkraþjálfun Kópavogs starfa
tólf sjúkraþjálfarar, þar af níu sér-
hæfðir í liðfræðum, sem er með-
ferð á hrygg og liðum.
„Hornsteinn sjúkraþjálfun-
ar sem hér er lögð til miðast við
að skjólstæðingar okkar séu virk-
ir í þeirri markmiðasetningu og
þróun sem verður í framhaldinu,“
segir Kristján.
Í Sjúkraþjálfun Kópavogs leita
einstaklingar aðstoðar vegna
minniháttar, meiriháttar eða
krónískra vandamála.
Nákvæm greining
„Sérstaða Sjúkraþjálfunar Kópa-
vogs felst í nákvæmri greiningu og
áætlun um samstarf sjúkraþjálf-
ara og skjólstæðings í upphafi. Við
skilgreinum vel hvers vegna fólk
kemur og hvert við ætlum saman.
Eftir nákvæma skoðun sjúkra-
þjálfara er lögð niður áætlun og
æfingaplan í samstarfi við skjól-
stæðinginn því við erum sannfærð
um að skorti upp á sjálfshjálp ein-
staklingsins verði árangurinn ekki
jafn góður,“ segir Kristján.
Lífsgæðin í húfi
Í Sjúkraþjálfun Kópavogs er að-
búnaður og tækjakostur eins og
best verður á kosið. Í lok október
opnar æfingasalurinn eftir stækk-
un og sjúkraþjálfarar starfa í lok-
uðum herbergjum sem tryggja
einrúm og næði.
„Flestir fara til sjúkraþjálfara
þegar eitthvað bjátar á og truflar
þá í lífinu; þegar stoðkerfi líkam-
ans veldur óþægindum. Íþrótta-
fólk kemur á fyrirbyggjandi for-
sendum til að sjá hvort misvægi sé
í stoðkerfinu sem grípa þurfi inn í
strax,“ útskýrir Kristján.
Hann segir mikilvægt að fólk
átti sig á heildrænum áhrifum
misvægis eða misálags í skrokkn-
um því þau hafi áhrif á færni,
vinnugetu og lífsgæði.
„Heildartenging við daglegt
líf, umhverfi og aðstæður skipt-
ir máli því það er ekki bara hand-
leggur sem kemur í meðferð held-
ur heil manneskja. Hana umgöng-
umst við af virðingu og horfum á
hlutina í heild en stundum þarf
að opna augu fólks fyrir því að
misvægi sé farið að trufla líf þess
meira en það áttar sig á. Þá er ekki
nóg að fara í vikulega meðferð til
sjúkraþjálfara heldur þarf við-
komandi að breyta til á öllum víg-
stöðvum.“
Sjúkraþjálfun Kópavogs er í
Hamraborg 12, 2. hæð. Sjá nánar
á www.sjk.is.
Manneskjan sett í öndvegi
Sjúkraþjálfun Kópavogs er elsta sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstöð landsins. Þar starfa tólf reyndir sjúkraþjálfarar sem vinna
með skjólstæðingum sínum að bættri færni og vinnugetu og við að ná nýjum markmiðum til að geta notið lífsins betur.
Aðbúnaður og tækjakostur er eins og best
verður á kosið. MYND/VILHELM
Kristján Hjálmar Ragnarsson er í rauðum bol lengst til vinstri. Hér er hann með samstarfsfólki sínu í Sjúkraþjálfun Kópavogs. MYND/VILHELM